Læknablaðið - 15.10.1980, Blaðsíða 36
250
LÆKNABLADID
eitt brýnasta úrlausnarefnið í heilbrigðis-
pjónustunni.
Aðalfundur telur, að ekki megi dragast
lengur að koma á fót framhaldsmenntun
lækna á íslandi. Fundurinn skorar á forseta
læknadeildar og ráðuneytisstjóra heilbrigðis-
málaráðuneytis að beita sér fyrir pví í samráði
við nefnd L. í. um framhaldsmenntun, að slík
starfsemi hefjist sem fyrst.
Aðalfundur telur brýnt að hraða endurskoð-
un reglugerðar um veitingu lækninga- og
sérfræðileyfa og skorar á stjórn læknadeildar
að sjá til þess, að tillögur að nýrri reglugerð
liggi fyrir eigi síðar en í lok þessa árs.
Fundurinn telur nauðsynlegt, að lækna-
samtökin fái aðild að slíkri endurskoðun og
felur stjórn félagsins að taka upp viðræður við
læknadeild í pví skyni.
Aðalfundur sampykkir að fylgja eftir fyrri
sampykktum félagsins unt undirbúning að
stofnun MIDBÓKASAFNS í læknisfræði
með pví að fara pess á leit við Fleilbrigðis-
málaráðuneytið og Menntamálaráðuneytið, að
pessi ráðuneyti skipi nefnd, sem semji reglu-
gerð ásamt framkvæmda- og kostnaðaráætlun
fyrir miðbókasafn i læknisfræði.
Aðalfundur beinir pví til heilbrigðisráð-
herra, að héraðsskylda ungra lækna verði af-
numin nú pegar. Telur fundurinn, að leysa
purfi læknaskort dreifbýlisins með öðrum
hætti en skylduvinnu lækna.
Aðalfundur beinir þeim tilmælum til stjórn-
ar L. í., að hún hlutist til um það, að ávallt séu
til reiðu upplýsingar um fjölda starfandi sér-
fræðinga í hverri sérgrein, svo og fjölda
þeirra, sem sérnám stunda í hverri grein.
Aðalfundur skorar á lækna að taka hvorki
við stöðum né stöðubreytingum, nema pær
hafi áður verið auglýstar.
Jafnframt hvetur fundurinn samninganefnd-
ir lækna til að koma því inn í kjarasamninga,
að vinnuveitendum sé óheimilt að ráða í stöðu
eða breyta stöðu, nema hún hafi áður verið
auglýst.
Fundurinn telur pó ekki nauðsynlegt að
auglýsa stöður, sem eru veittar til 6 mánaða
eða skemmri tíma.
Eyjólfur Haraldsson í rædustól.
Adalfund L. í. á Húsavík sátu rúmlega 30 fulltrúar.