Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.10.1980, Page 13

Læknablaðið - 15.10.1980, Page 13
LÆKNABLADID 231 ætla aö gagn væri af koboltmeðferð fyrir aðgerð. Á þetta benda Burge (1) og Naykaya- ma (7). í skrifum þeirra kemur fram, að hægt er að gera óskurðtæk æxli skurðtæk með geislun fyrir aðgerð. Árið 1967 birti K. Naykayama grein um geislameðferð (pre-operative irradi- ation) og sýndi fram á, að um pað bil helmingi fleiri sjúklingar voru lifandi 5 árum eftir aðgerð, par sem forgeislun var viðhöfð, en par sem skorið var upp án forgeislunar (7). Burge (1) hefur einnig lýst góðum árangri pegar pessari aðferð hefur verið beitt. Árið 1972 var tekin upp sú stefna á handlæknisdeild Landspítalans, að láta sjúklingana fá geisla- meðferð fyrir aðgerð. Sjúklingarnir hafa síðan verið skornir upp u.p.b. 6-8 vikum eftir geislun. Þegar sjúklingar pessir hafa síðan verið skornir upp, hefur komið í Ijós, að mikill samdráttur hefur orðið á æxlisvef eftir geislunina. Æxlið hefur yfirleitt breyst í örvef, en í honuni hafa síðan fundist einstaka krabbameinseyjar. Burge (1) lýsir einnig pessu sama fyrirbrigði. Þegar borin er saman tímalengd einkenna sjúklinga fyrir sjúkdómsgreiningu og æviskeið peirra eftir uppskurð, sýnist ekki mikill munur á, hvort peir hafa haft einkenni í 4 mánuði eða í 1 ár, sjá töflu II. Þetta er sama niðurstaða hjá Kyllönen (6). Það mætti pó ætla, að peim sjúklingum, sem hafa haft einkenni í 1 ár, hefði orðið Iengra lífs auðið eftir aðgerð, ef sjúkdómurinn hefði greinst fyrr. Þar sem víðtæk krabbameinsleit í maga og vélinda hefur verið framkvæmd, t.d. í Japan hefur sjúkdómur pessi greinst fyrr, og er sennilegt að pað ásamt forgeislun sé ein af ástæðum hins góða árangurs, sem par hefur náðst í meðferð pessa sjúkdóms (1, 7, 8). Sjúkrahúsdauði á Landspítalanum eftir brottnám á krabbameini í vélinda reyndist 22,5 %, sem er allnokkru hærra, en pað sem fram kemur hjá Kairaluoma (2), en par reynd- ist sjúkrahúsdauði 15 %. Hins vegar er sjúkrahúsdauði nokkru lægri en hjá Kock (3), en par reyndist sjúkrahús- dauði eftir brottnám 29 %. Burge (1) gefur upp sjúkrahúsdauða 25,9 %, en Gunnlaugsson (3) birtir tölur frá 2 ólíkum tímabilum 15,9 % og 11,7 %. Það lítur út fyrir, að meðalaldur sjúklinga með krabbamein í vélinda hér á landi sé hærri, en gerist og gengur í öðrum löndum. Ef bornar eru saman tölur frá Finnlandi og Svípjóð annars vegar og íslandi hins vegar, kemur í ljós, að meðalaldur finnskra og sænskra sjúkl- inga er miklu lægri en hjá okkur. Hjá Kyllö- nen (6) er meðalaldur 56 ár, en hjá Kairaluoma (4) er meðalaldur 62 ár. Hjá Kock (5) sýnist meðalaldur vera milli 60 og 70 ára. Á pað skal bent, að karlmenn verða að meðaltali 70,8 ára, en konur 77 ára á Islandi samkvæmt nýjustu niðurstöðum Hagstofunnar. íslendingar fá pví krabbamein í vélinda í mörgum tilfellum um pað bil sem meðalævi peirra er að ljúka. Þetta hefur að sjálfsögðu sína pýðingu, pegar reikna skal út hve margir eru lifandi 5 árum eftir aðgerð. Það skal bent á, að Kyllönen (6) telur 37 % sjúklinga lifandi 5 árum eftir algjört brottnám æxlis, ef sjúkrahúsdauði er dreginn frá, en hins vegar er meðalæviskeið lifenda í pessum sjúklingaflokki 22 mánuðir eftir að- gerð. Meðalæviskeið sjúklinga Landspítalans eftir algjört brottnám er 21,2 mánuðir, en ef sjúkrahúsdauði er dreginn frá lifa peir í 33 mánuði og 21 dag að meðaltali eftir aðgerð. Elsti sjúklingur, sem skorinn var upp, var 86 ára. Það voru 8 sjúklingar 80 ára og eldri, sem skornir voru upp. Tveir pessarra sjúklinga dóu sjúkrahúsdauða eða 25 %. Þetta er sama prócenttala sem kemur fram í töflu V yfir algjört brottnám æxlis. Þetta gæti gefið vísbendingu um, að réttara er að meta skurðhæfni sjúklinga út frá líffræði- legum aldri, en tölulegum. Allir voru peir pó dánir innan 1 árs. Hugsanlegt er, að í pessum tilfellum hefði koboltmeðferð ásamt krabba- meinslyfjum gefið jafn góða raun. Ekki mun vera hægt að benda á hliðstæðar tölur í ritum peim, sem vitnað er í, af peirri einföldu ástæðu að mikil tregða ríkir í peim löndum að skera upp fólk sem komið er yfir sjötugt og munu peir sjúklingar yfirleitt vera sendir í geisla- meðferð. Ef litið er á árangur geislameðferðar annars staðar í heiminum, sýnist heldur ekki vera glæsilegur árangur. Voultinainen (9) og Gunn- laugsson (3) birta svipaðar tölur lifenda 3 árum eftir byrjun geislameðferðar. Þrátt fyrir lélegan árangur skurðaðgerða, pegar um krabbamein í vélinda er að ræða, sýnist pó uppskurður vera pað besta, sem hægt er að bjóða sjúklingunum. Það sýnir sig, að peir sjúklingar hafa lifað lengst eftir sjúkdómsgreiningu, par sem hægt hefur verið að framkvæma algjört brottnám æxlis. Nayka- yama (7, 8) og Burge (1) hafa sýnt fram á svo

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.