Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.10.1980, Page 18

Læknablaðið - 15.10.1980, Page 18
236 LÆKNABLADIÐ eitt tilfelli meö krabbamein í eggjastokkum ásamt meinvörpum, eitt tilfelli með pekkt krabbamein í brjósti og meinvörp í grindar- holi, eitt tilfelli með fitupoka innan á kviðvegg, og eitt tilfelli reyndist vera »túffa« innbökuð í samvexti við vinstri eggjaleiðara. Sá sjúk- lingur hafði áður verið skorinn upp úti á landi vegna utanlegsfósturs og önnur aðgerð gerð í Reykjavík vegna botnlangabólgu. Túffa pessi var nú fjarlægð með uppskurði. Kviðarholsspeglun var gerð hjá samanlagt 14 sjúklingum undir aðalsjúkdómsgreining- unniblæðingartruflun. Langflestirpessarasjúkl- inga eða samanlagt 12 voru með endurteknar blæðingartruflanir og flestir á aldrinum í kringum og eftir tíðabrigði og hafði í öllum pessum tilfellum verið gert endurtekið útskaf á legi en án árangurs. Tilgangur með kviðar- holsspeglun í pessum tilfellum var að útiloka sjúkdóma í eggjastokkum og pá sérstaklega krabbamein. Flestir pessara sjúklinga voru feitir og pví erfitt að gera nákvæma skoðun hvað varðar eggjastokkana. í engum pessara tilvika fannst neitt athugavert við eggjastokk- ana, en ef pessi háttur er hafður á pá uppgötv- ast eitt og eitt tilfelli af krabbameini í eggja- stokkum, sem annars myndi ekki uppgötvast fyrr en alltof seint. Samanlagt 13 sjúklingar voru kviðarhols- speglaðir undir ábendingunni »annað« og skiptast peir pannig: Tveir með verulega karlhárdreifingu (hirsutismus) til að útiloka æxli í eggjastokkum sem ekki sást. Prír með áður greint krabbamein í leit að meinvörpum í kviðarholi, einn með hita af ópekktum upp- runa og engin skýring fannst við kviðarhols- speglun. Einn með bilirubinemiu og með lifrarstækkun, en skýring fannst ekki við kviðarholsspeglun. Einn til að útiloka »retro- peritonealt« æxli sem fannst ekki. Einn með æxli í brjóstholi og leitað að meinvörpum í kvið sem fundust ekki. Tveir með óljós kviðar- holseinkenni og skýring fannst ekki. Einn með lykkju, sem týndist inn í kviðarholið við keisaraskurð, sem gerður var ári áður og lykkjan var fjarlægð við kviðarholsspeglun. Engar alvarlegar aukverkanir voru við pess- ar aðgerðir. Hjá 19 sjúklingum fór koldioxiðið ekki inn í kviðarholið (extraperitonealt), en fór síðar eftir tilraunir inn í kviðarholið (intraperi- tonealt) og truflaði petta ekki kviðarhols- speglun í neinu tilfelli. Nú orðið eru notuð fullkomnari innblásturstæki og pess vegna er pessi hugsaniega aukaverkun úr sögunni. Tvisvar var gerð aðgerð (laparotomia) í sömu svæfingu vegna slagæðablæðinga. í öðru til- vikinu var klippt á samvexti eftir áður gerða gallblöðrutöku (cholecystectomi) nokkru áður og í hitt skiptið klippt á samvexti í grindarholi. Báðir pessir aukakvillar komu á fyrstu árun- um, en engar slíkar núna síðustu árin. Engar alvarlegar aukaverkanir voru í sambandi við svæfinguna. Almennt má segja að flestum sjúklingum heilsaðist fljótt og vel eftir kviðar- holsspeglunina og voru mættir til vinnu sinnar um pað bil viku eftir aðgerð. Rætt hefur verið að framan um kviðarhols- speglanir í samanlagt 498 tilvikum. Þetta er pað stór sjúklingahópur að ætla má að nokk- urt yfirlit fáist sem marktækt sé. Spurt var í upphafi hvort kviðarholsspeglanir spari upp- skurði (laparotomiur) og pá í hve miklum mæli. Ekki er hægt að gefa neinar nákvæmar fullyrðingar um petta efni, en sjúkraskrár sjúklinga hafa nokkuð verið athugaðar m.t.t. pessa. Töflurnar sýna að stór hluti sjúkling- anna fékk enga ákveðna skýringu á kvörtun- um sínum. Vitaskuld hefði ekki nema hluti af pessum sjúklingum gengist undir uppskurð, ef kviðarhosspeglun hefði ekki verið gerð. Flest bendir pó til, að verulegum fjölda pessara sjúklinga hafi verið spöruð slík aðgerð. Til dæmis má nefna, að af 15 sjúklingum, sem voru með bráða grindarholsverki og voru grunaðir um utanlegspykkt, reyndust 7 eftir kviðarholsspeglun ekki vera með pann sjúk- dóm og par af leiðandi að öllum líkindum verið sparaður uppskurður. Af 4 sjúklingum í flokknum prálátir grindarholsverkir og með kliniska sjúkdómsgreiningu utanlegspykkt reyndist einn vera með bólgur og var sparaður uppskurður. 51 sjúklingur í flokknum fyrirferð- araukning í grindarholi voru kviðarhols- speglaaðir og purfti aðeins að gera upp- skurð (laparotomiu) í 8 tilfellum. Er augljóst mál að ef kviðarholsspeglun hefði ekki verið til pá hefði purft að gera uppskurði í miklu fleiri tilfellum, sérstaklega m.t.t. krabbameinshættu. Tafla 9. Kvörtun Fjöldi sjúklinga Skýring fékkst ekki Þrálátir grindarholsverkir .. . 215 112(52 °/o) Bráðir grindarholsverkir ... . 104 20(19 «/o) Ófrjósemi . 101 47 (42 °/o) Alls 420 1 79 (47 %)

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.