Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.10.1980, Page 21

Læknablaðið - 15.10.1980, Page 21
LÆKNABLADIÐ 237 Tafla 9 skýrir sig mikið til sjálf. Þar kemur fram að við kviðarholsspeglun finnst engin bein skýring við kvörtunum sjúklings í allt að því frá 19 og upp í 52% tilvika. Er augljóst mál að margir uppskurðir (laparotomiur) hafa verið sparaðir í þessum sjúklingahópi. Spurn- ingunni hvort kviðarholsspeglun breyti oft annars líklegri meðferð má að nokkru leyti svara með tilvitnun í töflurnar. T.d. kemur í Ijós að í töflunni um bráða grindarholsverki í sambandi við sjúkdómana bráð eggjaleiðara- bólga og utanleggsþykkt eru aðeins 60 % líkur á að finna réttan sjúkdóm með kliniskri greiningu. Minna má á mikilvægi þess að upþgötva bráða eggjaleiðarabólgu hjá ungri stúlku, leggja hana inn á sjúkrahús og gefa henni nægilega meðferð, þar sem frjósemi hennar er í veði. Á tveim fyrstu töflunum, þ.e.a.s. bráðir og þrálátir grindarholsverkir eru samanlagt 319 sjúklingar. Af þeim sjúklingum sem fengu ákveðna kliniska greiningu reyndist hún vera rétt í rúmlega 70 % tilvika sam- kvæmt kviðarholsspeglun. Miklu stærri hluti af þessum sjúklingahópi eða samanlagt 227 sjúklingar fengu óákveðna kliniska greiningu fyrir kviðarholsspeglunina og má segja að speglunin sé þá mjög mikilvæg til að fá rétta sjúkdómsgreiningu og þar með rétta meðferð. Samanlagt voru samvextir klipþtir hjá 74 einstaklingum og það lækningaskyni vegna óþæginda sjúklings, en ekki liggur fyrir árang- ur þeirra aðgerða. Þess má geta, að af öllum sjúklingahópnum, þ.e.a.s. 498 þá voru 125 með ör eftir áður gerðan botnlangaskurð eða einn af hverjum fjórum. Af þessum sjúklingum voru 40 % með samvexti undir botnlangaörinu og tæplega 60 % af þeim sem höfðu þessa samvexti voru með óþægindi undir örinu. Þetta bendir lækn- um á að hafa það í huga að samvextir undir botnlangaöri eru algengir og einnig óþægindi af slíkum samvöxtum. Ekki hefur verið athug- uð tíðni á samvöxum undir öðrum örum eftir uppskurði, en það er tilfinning okkar að samvextir undir botnlangaörum séu mun al- gengari en allir aðrir samvextir. Við höfum nú leitast við í þessu yfirliti að sýna fram á gagnsemi kviðarholsspeglunar fyrir sjúklinga og teljum það óvéfengjanlegt að þjóðfélagslega sparist mikill kostnaður, bæði í legurými og einnig í færri töpuðum vinnustundum. Sjúklingum er einnig hlíft við verulegum óþægindum í sambandi við sparaða uppskurði og aukaverkanir frá þeim. Eins og áður er getið um þá hefur verið lítíð um aukaverkanir í þessum sjúklingahópi og þeim mun minni sem árin hafa liðið og tæki og tækni og þjálfun hefur batnað. SUMMARY This is a report of 498 laparoscopies done at Akranes Hospital, lceland 1971-1977. The main indications were chronic or acute pelvic pain, infertility, pelvic tumor of unknown etiology and menstrual dysfunctions. There were few complications and many unnecessa- ry laparotomies were avoided. The laparascopies reveal the inaccuracy of the clinical diagnosis in a high proportion of the cases. By this technique the patient is then assured a better treatment and a great number of unnessary laparo- tomies is avoided. Finally we point out the benefits to the community as the hospital stay is shorter and saving the patient discomfort and possible compli- cations associated with laparotomies. HELSTU HEIMILDIR Alfreðsson, J. H. Kviðspeglun. Læknablaðið 1977, 63. árg., 9.-10. tbl. bls 199-202. Brash, J. H. British Medical Journal 1, 1376-1378, 5 júní '76. Outpatient laparoscopic sterilisation. Einarsson, G. V., Björnsson, V., Ingólfsson, Á. Ófrjósemisaðgerðir í gegnum kviðarholssjá á Sjúkrahúsi Akraness frá 1973-1976. Læknablað- ið 1977, 63. árg., 9.-10. tbl„ bls 203-207. Gomel, V. Am. Journ. Surg. 131 (3); 319-23, mars '76. Laparoscopy in General Surgery. Loffer, F. D„ Pant, D. Obstet. Gynocol. Survey 1975. Indications, contraindications and complicati- ons of laparoscopy. Loffer, F. D„ Pant, D. Am. Journ. obstet. gynecol. vol. 1, 1. mai '76. Laparoscopy in the obstetric patient. Lundberg, W. I„ Wall, J. E„ Mathews, J. E. Obstet. gynecol. vol. 42, okt 73. Pant, D. Am. Journ. Obstet. et gynecol., vol. 113, 15. júní Laparoscopy: Its role in private practice. Rawlings, E. E„ Balgobin, B. British Medical Journal 29. mars 1975. Complications of laparoscopy. Sugarbaker, P. H„ Sanders J. H„ Bloom, B. S„ Wilson, R. E. The Lancet 22. febr. 1975.

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.