Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.10.1980, Síða 28

Læknablaðið - 15.10.1980, Síða 28
242 LÆKNABLADID úr manséttunni og handarlimnum ýmist haldið á lofti smá stund, svo blóðið rynni úr honum eða að blóðið var tæmt úr honum með Esmarchs bindi. Síðan var þrýstingurinn hækk- aður í blóðþrýstingsmanséttunni par til hann var örugglega fyrir ofan systoliskan þrýsting. Var þrýstingurinn þannig hafður á bilinu 200- 280 mm/Hg. Þá var deyfilausninni dælt um nálina inn í bláæðakerfi handar og framhand- leggs. Magn deyfiefnis og deyfivökva fór eftir þyngd sjúklings. Stefnt var að því, að deyfiefn- ið væri sem næst 1,5 mg®kg og magn deyfi- vökvans nægilega mikið til þess fylla bláæðakerfið (sjá töflu I). Notað var 0,5 % Marcain (Buþivacaine) án adrenalins og það þynnt með 0,9 % saltvatni, þar til hæfilegt vökvamagn var fengið. Þar sem hægt var að koma nálinni fyrir fram undir hnúum og aðgerðin fólst t.d. í setningu á úlnliðsbroti, var nálin oftar en hitt látin óhreyfð þar til brotið hafði verið sett, röntgen- myndir teknar og gengið frá umbúðum. Var þessi háttur á hafður til þess að hindra blóðleka úr stungugatinu en talsverður þrýstingur verð- ur í bláæðunum fyrst í stað eftir að deyfilausn- inni hefur verið dælt í þær. Var nálin þannig ekki fjarlægð fyrr en deyfivökvanum hafði verið sleþþt úr handleggnum. Væri nálinni komið fyrir í æðinni ofar á handarlimnum eða skurðaðgerð þyrfti að framkvæma á hendinni, var óhjákvæmilegt að taka nálina áður en meðferð hófst. Til þess að draga úr blóðleka var þá reynt að þrýsta að stungustaðnum nokkra stund eftir að nálin var fjarlægð. Áskilið var, að deyfiefninu yrði haldið í handleggnum minnst 15 mín. eftir inndælingu en með því að meðferð var yfirleitt ekki lokið á svo skömmum tíma, var þessi tími að jafnaði nokkru lengri. Eftir að deyfivökvanum var slepþt úr handleggnum var ástand sjúklings kannað m.t.t. þeirra auka-áhrifa deyfingarlyfs- ins, sem helzt var að vænta. Þegar notuð er ein blóðþrýstingsman- Tafla I. (4) Bupivacaine Heildarmagn f’yngd sj. í kg 0.5 % deyf. vökva 80 .................... 24 ml 60 ml 70 .................... 20 50 60 .................... 18 45 50 .................... 16 40 40 .................... 12 30 Fjöldi Aldursdreifing sjúklinganna sétta, verður vefurinn undir henni ódeyfður og takmarkar verkur þar þá deyfingartímann. Úr þessu má bæta með því að nota tvær mansétt- ur. Er sú fyrri lögð ofarlega á upphandlegginn og deyft með venjulegum hætti. Að því gerðu er önnur mansétta lögð á handlegginn ofan olnboga og þar með á deyfðan vef en fyrri manséttan fjarlægð. Fyrir kom, að þessi að- ferð var notuð. EFNIVIÐUR Hér var alls um að ræða 100 sjúklinga á aldrinum 8-92 ára, (sjá mynd), 73 konur og 27 karla. Á einum sjúklingi var deyfður ganglimur neðan hnés. Á öllum hinum var deyfður handarlimur framan olnboga. Á einum sjúk- lingi voru deyfðir báðir handarlimir og urðu því deyfingar alls 101. í 87 tilfellum var deyfingin notuð til þess að setja brot á framhandleggsbeinum, þar af í eitt sinn brot um miðjan framhandlegg en í hinum tilvikunum um úlnlið. Tvisvar voru sett brot á miðhandarbeinum. Hjá þremur sjúklingum voru saumaðar sinar, hjá einum taug í hendi. Gert var að liðbandaáverkum í hendi hjá tveimur. Hjá einum var saumað stórt handarsár. Þrívegis var fjarlægður aðskotahlutur úr hendi. Ein aðgerð var gerð á sinaslíðraþrengslum (De Quervain). Þá var fjarlægður aðskotahlut- ur úr il hjá þeim, sem deyfður var á fóturinn. Hjá 79 var deyfiefni dælt í æð á handarbaki en á öðrum ofar á handarlimnum þar af 10 í

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.