Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.11.1982, Blaðsíða 33

Læknablaðið - 15.11.1982, Blaðsíða 33
GYNATROL* Mikið öryggi / Lágur skammtur - Hentug samsetning Vörulýsing Gynatrol er lágskammta samsett getnaöarvarnartafla. Samsetning Hver tafla inniheldur 30 mikrógrömm af etinýlöstradióli og 150 mikró- grömm af levónorgestreli. Ábending Getnaðarvörn. Frábendingar Skert lifrarstarfsemi. Saga um gulu og kláöa við þungun. Dubin- Johnsonseinkenni. Rotoreinkenni, saga um æðabólgur, - stiflur eða segrek, segicelluanaemia, brjósta- og legkrabbi, truflanir í fituefna- skiptum. Saga um herpes gest- ationis. Otosclerosis sem hefur versnað við fyrri þungun. Sérstakar leiðbeiningar Getnaðarvarnartöflur skulu aðeins gefnar konum með háþrýsting ef brýna nauðsyn ber til. Fyrir notkun ber að gera nákvæma rannsókn (líka á brjóstum), sykur- þolspróf og mæla blóðþrýsting. Meðan á meöferð stendur er mælt með rannsókn á 6 mánaða fresti. Mælt er með eftirliti á konum með sögu um lifrarsjúkdóma á 8-12 mánaða fresti. Sérstakt eftirlit ber að hafa meö konum sem þjást af kvillum sem hafa tilhneigingu til aö versna við þungun. Milliverkun Regluleg inntaka annarra lyfja (t.d. barbitúrata, hydantoínderivata og rifampisíns) um lengri tíma getur aukið tiðni ótímabærra blæðinga og haft áhrif á öryggið við inntöku getnaðarvarnartaflna. Þessi lyf hafa liklega í för með sér aukningu lifrarhvata og flýta þar með niður- broti stera. Ástæður til tafarlausrar stöðvunar á meðferð Migrenukast i fyrsta sinn eða tilhneiging til mikils höfuðverkjar, bráðar sjóntruflanir, fyrstu merki æðastiflna eða -bólgna, gula (cholestase), fjórum vikum fyrir áætlaðar skurðaðgerðir og ef um er að ræða slys, snarhækkaðan blóð- þrýsting og við þungun. Aukaverkanir Ögleði, höfuðverkur, migrena, sjóntruflanir, þyngdarbreytingar, breytingar í löngun til kynmaka, breytingar á klínískt-kemiskum normalgildum. Skömmtun Fyrsta tafla i fyrsta hring takist 5. dag tiðahrings. Svo 1 tafla á dag, þar til lokið er við pakkninguna. Þvi næst 7 daga hlé o.s.frv. (Sjá jafnframt fylgiseðil með lyfinu og leiðbeiningar fyrir notendur). Pakkningar 1 X21 tafla 3X21 tafla FERROSAN IIW Licens Wyeth Umboö: G. Ólafsson h.f., Reykjavik Okt. 81

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.