Fréttatíminn - 12.11.2010, Blaðsíða 2

Fréttatíminn - 12.11.2010, Blaðsíða 2
3,3% Lækkun Evru gagnvart doLLar Í liðinni viku Evran veikist en krónan sem klettur Evran gefur enn eftir gagnvart Banda- ríkjadal og hélt áfram að veikjast í gær. Þá kostaði evran 1,3715 dollara og hafði veikst um 3,3% í liðinni viku. Það sem veldur þessum viðsnúningi, að því er fram kemur hjá greiningu Ís- landsbanka, eru vandamál skuldsettra evruríkja. Jákvæðar hagtölur vestra styðja við dollar. Íslenska krónan er hins vegar stöðug sem klettur, að vísu í skjóli gjaldeyrishafta. Evra kostar nú 153 krónur en dollar 111 krónur. -jh grunuð um milljóna dollara svik Íslensk kona, Helga Ingvarsdóttir, er grunuð um að hafa haft milljónir dollara af bandarískum auðkýfingi í félagi við unnusta sinn, vickram Bedi. Parið er sakað um að hafa haft af roger davidson, tón- listarmanni og milljarðaerfingja, að minnsta kosti sex milljónir dollara með því að telja honum trú um að lífi hans væri ógnað. Bedi segir hins vegar að Davidson hafi greitt af fúsum og frjálsum vilja til að koma í veg fyrir að upplýs- ingar úr tölvu, sem var sýkt af tölvuveiru, kæmust í hendur yfirvalda. Helga og Bedi eru í gæsluvarðhaldi en þau eru búsett í new York. -jh Skatttekjur ríkissjóðs undir áætlun Á fyrstu níu mánuðum ársins voru inn- heimtar tekjur ríkissjóðs rúmlega 335,8 milljarðar króna sem er 28,5 milljarða króna aukning frá sama tímabili í fyrra. Þrátt fyrir þessa aukningu eru skatttekjur og tryggingagjöld undir áætlun. Greining Íslandsbanka segir ekki koma á óvart að tekjur ríkissjóðs séu undir áætlun enda hafi bati efnahagslífsins dregist á langinn. Þá hafi sumar aðgerðir til aukinnar skatt- heimtu ekki borið þann ávöxt sem reiknað var með. -jh atvinnuleysi eykst Skráð atvinnuleysi í nýliðnum október var 7,5% og jókst um 0,4 prósentustig milli mánaða. Að meðaltali voru 12.062 atvinnulausir í mánuðinum. Meðal karla var atvinnuleysið 7,8% en 7,2% meðal kvenna. Vinnumálastofnun áætlar að atvinnuleysi aukist í nóvember og verði á bilinu 7,6-8%. Í nýrri könnun Samtaka atvinnulífsins kemur fram að á næstu sex mánuðum áforma fyrirtæki að fækka starfsfólki um 1,1%, sem nemur tæplega þúsund störfum. -jh Hæstiréttur þyngdi dóm yfir Sophiu Hansen Hæstiréttur þyngdi í gær dóm yfir Sophiu Hansen fyrir að bera rangar sakargiftir á Sigurð Pétur Harðarson. Héraðsdómur hafði dæmt Sophiu í sex mánaða skilorðs- bundið fangelsi en Hæstiréttur dæmdi hana í tólf mánaða skilorðsbundið fangelsi. Tekist var á um undirskrift á þremur viðskiptabréfum, að upphæð rúmlega 42 milljónir króna, þar sem Sophia taldi að nafn sitt hefði verið falsað af Sigurði Pétri. Hann var hreinsaður af sökunum þar sem rithandarsérfræðingar töldu að Sophia hefði sennilega sjálf skrifað undir bréfin. -jh Þ etta var nú ekki sölusýning en mörg verkin voru seld áður en sýn-ingin var opnuð og þau sem eftir voru fóru fljótt,“ segir Eggert Pétursson myndlistarmaður. Blómamyndir Eggerts eru mjög eftirsóttar og hjá galleríinu i8, sem höndlar með verk Eggerts, eru alltaf einhverjir á biðlista eftir myndum. „Það er alltaf fólk sem bíður eftir því að eignast verk og það var búið að tala við einhverja af þeim fyrir sýninguna.“ Eggert lætur eftirspurnina þó hvergi raska ró sinni og stendur ekki sveittur við að mála myndir til þess eins að anna eftir- spurninni. „Fólk verður bara að gjöra svo vel að bíða. Ég geri það sem mér sýnist hverju sinni og svo kemur bara í ljós hvort einhver vill það eða ekki, enda er það ekk- ert endilega takmarkið að selja verkin.“ Börkur Arnarson hjá i8 segir verðlag- ið á verkum Eggerts misjafnt og ráðist meðal annars af viðfangsefni listamanns- ins hverju sinni, sem og stærð verkanna. Stærstu myndirnar seljist á eitthvað í kringum sex milljónir króna. „Hann legg- ur mikla vinnu í verk sín, mikinn undir- búning og rannsóknarvinnu, og listinn  EggErt Pétursson Langur biðListi Eftir bLómamyndum Þetta var nú ekki sölusýn- ing en mörg verkin voru seld áður en sýningin var opnuð og þau sem eftir voru fóru fljótt. Eggert seldi verk fyrir 42 milljónir Málverk listmálarans Eggerts Péturssonar af íslenskum blómum eru eftirsótt af listunnendum. Eggert opnaði nýlega sýningu á sjö verkum í Hafnarborg og þau seldust öll á augabragði. Hvert verk er metið á um sex milljónir króna þannig að ætla má að söluverðmæti sýningarinnar hafi verið í kringum 42 milljónir. Eggert Pétursson hefur um árabil málað íslenska flóru. Myndir hans af blómum njóta mikilla vinsælda og biðlistinn er langur. yfir þá sem bíða eftir myndum hans er langur,“ segir Börkur sem telur að íslensk- ir aðilar hafi keypt flest ef ekki öll verkin. Aðspurður segist Eggert vera sáttur við verðmatið á myndunum. „Jújú. Ætli það ekki. Þetta er hátt verð, og þó. Kannski ekki. Ég veit það ekki. Ætli það fari ekki eftir því hvernig á það er litið. Og vissulega eru stóru myndirnar mjög tímafrekar.“ Í verkunum sem eru til sýnis í Hafnar- borg sækir Eggert innblástur í smágerðan gróður sem vex í hrauninu í nágrenni við sumarbústað hans í Úthlíðarhrauni í Bisk- upstungum. Hann hefur undanfarin ár ein- beitt sér að gróðri á þessum slóðum þar sem hann fer í langa göngutúra. Sýningin nú markar ákveðin tímamót þar sem Egg- ert hyggst snúa sér að öðrum svæðum í bili. „Ég er búinn að vera á gangi í Úthlíð- arhrauni í sjö eða átta ár og sótt innblástur í blómin í hrauninu og finnst kominn tími til að hvíla þetta svæði. En ég held mig að sjálfsögðu áfram við það að mála blóm.“ Þórarinn Þórarinsson toti@frettatiminn.is Óskar Hrafn Þorvaldsson oskar@ frettatiminn.is  rEykjavíkurborg LaunagjöLd Launakostnaður menntasviðs á pari við lítinn grunnskóla Launakostnaður aðalskrifstofu mennta- sviðs Reykjavíkur var 197 milljónir króna á síðasta ári, rétt tíu milljónum lægri heldur en Grandaskóla sem sér um að mennta 255 börn í 1. til 7. bekk. Aðspurð hvort kostnaður við yfirstjórn grunnskólanna sé farinn úr böndunum segir Oddný Sturlu- dóttir, formaður menntaráðs Reykjavíkur- borgar, að allt sé til skoðunar. „Við veltum við hverjum steini í þeirri viðleitni okkar að hagræða. Við skoðum að sjálfsögðu miðlæga stjórnsýslu [innsk. blm. eins og til að mynda aðalskrifstofu menntasviðs] í því sambandi,“ segir Oddný. Aðspurð segir Oddný að starf mennta- sviðs sé mjög víðtækt og starfsemin viða- mikil. „Þar fer fram stefnumótun, eftirlit og síðan eru það auðvitað mannauðsmál- in. Það starfar gríðarlegur fjöldi kennara undir þessu sviði og því gefur það auga- leið að launakostnaðurinn er mikill,“ segir Oddný. -óhþ Launa- kostnaður menntasviðs er hærri en Hvassaleitisskóla Selásskóla Ártúnsskóla korpuskóla Sæmundarskóla Klébergsskóla oddný Sturludóttir, formaður menntaráðs reykjavíkur- borgar. 2 fréttir Helgin 12.-14. nóvember 2010
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.