Fréttatíminn - 12.11.2010, Blaðsíða 6

Fréttatíminn - 12.11.2010, Blaðsíða 6
Á höfuðborgarsvæðinu eru þó nokkuð margar fiskbúðir. Úrval er mismikið og framsetning misjöfn. Sumar fiskbúðir eru nútímalegar og gljáandi og bjóða upp á framúrstefnulega rétti samhliða hefð- bundnari, á meðan aðrar búðir líta út eins og allar fiskbúðir gerðu fyrir þrjátíu árum. Allar búðirnar eiga það þó sameiginlegt að kaupa hráefnið af sama uppboðs- markaðnum, og það virðist ekki vera stíf verðsamkeppni í fisksölu í Reykjavík. Og þó. Ég athugaði verð á fimm algengum fisktegundum/réttum í átta fiskbúðum og tveimur stórverslunum. Þetta eru niður- stöðurnar. Nokkur verðmunur er á ýsuréttum, plokkfiski og fiskbollum, en það verður að taka með í reikninginn að innihald rétt- anna er mismunandi eftir búðum. Þessi könnun tekur aðeins mið af verði, ekki gæðum – sumir myndu jafnvel ganga svo langt að segja að hér væri verið að bera saman epli og appelsínur. Samanburður á verði þorsks og skötu- sels er markvissari. Mestur er munurinn á skötusel. Tvær verslanir bjóða kílóverð undir 2.000 krónum og er fiskbúðin í Spönginni með besta verðið. Það er 84% lægra en hæsta skötuselskílóverðið sem ég fann. Mun minni munur er á þorsk- flökum, þar er 25% munur á hæsta og lægsta verðinu. Að lokum má geta þess að fiskur er hollur og góður – staðreynd sem flestum ætti að vera fullkunnugt um – og Ís- lendingar ættu að borða fisk að minnsta kosti einu sinni í viku, helst tvisvar (eða oftar!). Dr Gunni er UmboðsmaðUr neytenda Ábendingar og kvartanir: drgunni@centrum.is Hvað kostar fiskurinn? Gunnar Hjálmarsson drgunni@centrum.is Verðkönnun á fiski Þorskflök (1 kg - roðlaus og beinlaus) Skötuselur (1 kg - Úrbeinaður) Ýsuréttur (1 kg) Plokkfiskur (1 kg) Fiskibollur (1 kg) Fiskbúðin, Freyjugötu 1590 2490 1290 1290 1090 Hafberg, Gnoðarvogi 1680 2390 1680 1680 1090 Fiskikóngurinn, Sogavegi 1990* 2890 1390 1590 1190 Gallerý Fiskur, Nethyl 1990 3290 1890 1590 1590 Fiskbúðin, Spönginni 1590 1790 1690 1490 1290 Fiskbúðin, Sundlaugavegi 1690 2990 1590 1390 1390 Fiskbúð Hólmgeirs, Þönglabakka 1790 1990 1680 1480 1480 Vegamót, Nesvegi 1790 2990 1690 1690 1490 Hagkaup, Eiðistorgi 1698 Ekki til 998 1498 1398 Nóatún, JL-húsinu 1698 Ekki til 1498 1359 1149 *þorskhnakkar s kilanefnd Glitnis hef-ur farið fram á kyrr-setningu á lúxusvillu Lárusar Welding, fyrr- verandi forstjóra Glitnis, og Range Rover-bifreið hans vegna dómsmáls sem skila- nefndin stendur í gegn Lárusi og fimm öðrum einstaklingum tengdum Glitni. Lögmaður Lár- usar hefur mótmælt kyrrsetn- ingunni og er tekist á um lögmæti hennar fyrir Héraðsdómi Reykja- víkur. Um er að ræða helmings- hlut í tæplega 300 fermetra ein- býlishúsi Lárusar og konu hans í Hlíðunum. Áður hafði skilanefndin kyrrsett eignir Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, bæði fasteignir, bifreiðar og jarðir, en Pálmi Haraldsson greiddi fimm hundr- uð milljóna króna tryggingu til að kom- ast hjá kyrrsetningu. Málið snýst um sex milljarða króna  dómsmÁl kyrrsetningarbeiðni Skilanefnd Glitnis vill kyrrsetja lúxusvillu Lárusar Welding Tekist á um lögmæti kyrrsetningarbeiðni skilanefndarinnar fyrir héraðsdómi. Lárus Welding berst gegn kyrrsetningunni. lán Glitnis til FS38, dótturfélags Fons, sem var í eigu Pálma Haraldssonar, sumarið 2008 vegna breska skartgripa- fyrirtækisins Aurum Holding. Með láninu eignaðist Glitnir veð í Aurum en FS38 fékk fjóra milljarða sem not- aðir voru til að greiða skuldir og tvo milljarða sem runnu annars vegar til Fons og hins vegar til Jóns Ásgeirs Jó- hannessonar. Skilanefndin fer fram á sex milljarða í skaðabætur frá þeim sex sem er stefnt. Auk Jóns Ásgeirs, Lárusar og Pálma eru það þau Magnús Arnar Arngrímsson, fyrrverandi fram- kvæmdastjóri fyrirtækjasviðs, Rósant Már Torfason, fyrrverandi fjármála- stjóri, og Guðný Sigurðardóttir, fyrr- verandi starfsmaður lánasviðs bank- ans. Magnús Arnar hefur farið fram á frá- vísun málsins og verður sú beiðni tekin fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur í byrjun desember. Óskar Hrafn Þorvaldsson oskar@frettatiminn.is Hörku- spennandi unglingasa ga „... spennuþrungin og mjög skemmtileg.“ Marta María Arnarsdóttir, 13 ára pressan.is (um Núll núll 9) Hvernig tengist eldgömul ljósmynd bíómyndinni Avatar og dularfullum mannaferðum á Snæfellsnesi? Þokan er hörkuspennandi unglinga- saga eftir Þorgrím Þráinsson, sjálf- stætt framhald metsölubókarinnar Núll núll 9 Verðlaunahöfundurinn Þorgrímur Þráinsson í essinu sínu! Skilenfd Glitnis vill kyrrsetja þetta glæsihýsi Lárusar í Hlíðunum. Ljósmyndir/Hari 6 fréttir Helgin 12.-14. nóvember 2010
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.