Fréttatíminn - 12.11.2010, Blaðsíða 14
V ið fögnum því að vera kom-in með alla starfsemi okkar á einn stað. Það er mikil
ánægja með húsnæðið og það sem
það gerir okkur kleift að gera í okk-
ar starfi,“ segir Ari Kristinn Jóns-
son, rektor Háskólans í Reykjavík,
en nýbygging skólans við Öskju-
hlíð var vígð í gær að viðstöddu
fjölmenni. Hann segir aðalhlutverk
hússins vera umgjörð og stuðning
og að þarna fari saman fallegt hús í
fallegu umhverfi sem styðji vel við
starfsemi skólans.
„Við buðum útskrifuðum nemend-
um skólans að koma fyrir vígsluat-
höfnina og hitta starfsmenn deilda
og skoða húsið. Við viljum halda vel
utan um þá hópa sem hafa lagt leið
sína í gegnum skólann og eru núna
úti í atvinnulífinu,“ segir rektor.
Auk forseta Íslands, rektors,
menntamálaráðherra, borgarstjóra
og fulltrúa byggingaraðila tók for-
maður stúdentafélags skólans þátt
í þeim hluta dagskrár er hornsteinn
skólans var lagður, en ákveðið var
að nota loftstein í stað hornsteins.
Nærvera fulltrúa nemenda var við
hæfi, að sögn rektors, enda mikil
áhersla lögð á nemendur í starfi
skólans.
Sameiningarviðræðum við
Bifröst lokið í bili
Menn gleðjast yfir glæsilegri að-
stöðu Háskólans í Reykjavík en há-
skólar standa nú frammi fyrir niður-
skurði. Meðal þess sem rætt hefur
verið að undanförnu er sameining
HR og Háskólans á Bifröst. Þeim
viðræðum hefur nú verið hætt,
a.m.k. í bili. Ari Kristinn segir að
eftir því hafi verið leitað af hálfu
stjórnvalda hvort hægt væri að ná
samstarfi eða jafnvel sameiningu
skóla. „Rektor Háskólans á Bifröst
nálgaðist okkur í sumar og síðan
höfum við verið að skoða þetta.
Sú vinna fólst í því að athuga hvort
þetta væri skynsamlegt, fjárhags-
lega og faglega, en engin ákveðin
niðurstaða var komin. Eftir afger-
andi breytta afstöðu rektors Háskól-
ans á Bifröst sjáum við ekki að hægt
sé að halda þessari vinnu áfram,
að svo stöddu,“ segir Ari Kristinn.
„Þessu er því lokið í bili en við erum
opin fyrir því að skoða þessa leið
eða aðrar svo fremi að það verði til
að efla háskólastarf því það eru tak-
markaðir fjármunir sem við höfum.
Við verðum því að nýta þá eins vel
og við getum.“
Stöndum vörð um gæði náms á
okkar kjarnasviðum
Almennt um niðurskurð til há-
skólanna segir Ari Kristinn mikil-
vægt að horfa til lengri tíma en
næsta árs. „Háskólar voru illa fjár-
magnaðir fyrir, sérstaklega þegar
horft er til samanburðar við ná-
grannalönd. Við fengum aðeins um
helming fjárframlaga á nemanda,
t.d. í samanburði við skóla annars
staðar á Norðurlöndum. Síðan hefur
verið skorið niður. Við höfum reynt
að mæta því með hagræðingu og
starfsfólk hefur tekið á sig launa-
lækkun. Nú er hins vegar svo komið
að þetta er ekki hagræðing lengur,
Lúxus-íspinnar 3 x 120ml
298 kr.
Vanillu ís-stangir 12 x 60ml
398 kr.
Vanillu ístoppar 8 x 120ml
498 kr.
Góður ís á frábæru
verði í Bónus
BÝÐUR BETUR
menntamál nýbygging HR Vígð í gæR
Fallegt hús í
fallegu umhverfi
sem styður starf-
semi skólans
Sameiningarviðræðum Háskólans í Reykjavík við Há-
skólann á Bifröst er lokið, í bili að minnsta kosti. HR mun
standa vörð um gæði á kjarnasviðum skólans enda segir
Ari Kristinn Jónsson rektor að aldrei megi fórna gæðum
í háskólanámi.
Við vígslu nýbyggingar Háskólans í Reykjvík í gær kynnti Jón
Gnarr borgarstjóri nýjan samstarfssamning Reykjavíkurborgar,
Háskólans í Reykjavík og Skógræktarfélags Íslands um uppbygg-
ingu og uppgræðslu Öskjuhlíðar sem útivistarperlu borgarinnar.
„Við erum að taka fyrsta skrefið í þessa átt enda þykir okkur í HR
mjög vænt um umhverfi okkar, Öskjuhlíðina og Nauthólsvík, og því
fylgir ábyrgð,“ segir Ari Kristinn Jónsson rektor um þann grunn
sem lagður hefur verið að samstarfi skólans, borgarinnar og Skóg-
ræktarfélags Íslands.
„Umhverfið hér er alger perla en það er hægt að gera enn betur
og til þess eru ótal tækifæri,” segir Ari sem sér fram á tengingu
Öskjuhlíðar og Nauthólsvíkur við háskólasvæðið, m.a. með skóg-
rækt. „Þegar fólk kemur á þetta svæði er margt hægt að gera; fara
í Öskjuhlíðina, njóta Nauthólsvíkur og koma svo inn í skólann og
fræðast um það sem þar er að gerast, setjast þar á kaffihús eða fara
í Perluna.
Skólinn er opinn þeim sem sækja þetta svæði. Miðjan í honum,
sem við köllum Sólina, er opin almenningi. Við höfum lagt áherslu
á að sá hluti skólabyggingarinnar sé hluti af umhverfinu, hluti af
svæði Reykvíkinga. Þannig náum við að gefa innsýn í það sem er að
gerast í skólanum. Þessi hluti byggingarinnar er líka tilvalinn til að
miðla fræðsluefni og þar er hægt að vera með viðburði sem tengja
skólann betur við samfélagið og atvinnulífið. Við höfum alltaf litið
svo á að háskóli eigi að vera vel tengdur út í samfélagið, þekkjum
það erlendis frá þar sem háskólasvæði er hluti borgar og gefur
henni ákveðinn anda og svæðinu í kring.“ -jh
samninguR samstaRf HR, boRgaR og skógRæktaR
Uppbygging útivistarperlu
14 fréttaviðtal Helgin 12.-14. nóvember 2010