Fréttatíminn - 12.11.2010, Blaðsíða 30

Fréttatíminn - 12.11.2010, Blaðsíða 30
Við vorum vinir og samband okkar þróaðist út í ástarsam- band. Það bara gerðist. Ég harma að þetta hafi gerst en það er mjög auðvelt að elska Styrmi. É g óttast mest að það fari í gang skíta- herferð gegn Gunnari manninum mín- um. Ég veit hvernig þessir menn vinna og í ljósi þess hver á Birting [innsk. blm. Hreinn Loftsson] þá kæmi mér ekki á óvart að einhver birtist á for- síðu Vikunnar og sakaði Gunnar um að hafa brotið á sér. Annað hræðist ég nú ekki,“ segir Jónína hálf- hvíslandi, spurð út í hvað hún óttist mest þegar bókin kemur út. „Það er auðveldara að ráðast á þann sem stendur mér næst heldur en mig sjálfa,“ segir hún. Og bókin er vissulega eldfim. Í henni greinir hún á opinskáan hátt frá sambandi sínu við Jóhannes Jóns- son, samskiptum við son hans Jón Ásgeir og við- skiptafélaga hans. Hún gerir upp tölvupóstsmálið fræga og samband sitt við Styrmi Gunnarsson og lýsir því hvernig hún hótaði þekktum bankastjóra að segja eiginkonunni frá samskiptum hans við vændis- konur. Af hverju skrifaðir þú þessa bók? „Ég ætlaði alltaf að skrifa bók og segja söguna eins og hún væri til að fyrirbyggja að þeir atburðir sem leiddu til hrunsins gætu gerst. Þetta átti upphaflega að vera bók um viðskiptaklíkur og meðferð þeirra á íslensku samfélagi en alls ekki á persónulegum nót- um. Það breyttist hins vegar allt þegar Sölvi kom að þessu. Hann vildi ræða um tilfinningar og þess vegna tók þessi bók þá stefnu sem hún tók. Hann hefur engan áhuga á viðskiptum heldur er svona húmanisti og vill bara ræða um tilfinningar og svoleiðis. Ég er karlinn í þessu sambandi okkar Sölva. Hann vill bara sjá mig gráta,“ segir Jónína og hlær. Auðvelt að elska Styrmi Stóra tölvupóstsmálið árið 2005 er sennilega stærsta málið sem Jónína hefur verið viðriðin undanfarin ár. Þá birti Fréttablaðið einkatölvupósta á milli Jónínu og Styrmis Gunnarssonar, þáverandi ritstjóra Morg- unblaðsins. Jónína reyndi að fá lögbann á póstana en tapaði því máli fyrir héraðsdómi og Hæstarétti. Bókin markar ákveðna lokun á kafla í lífi mínu Hún ákvað að áfrýja því til Mannréttindadómstóls Evr- ópu og beið lægri hlut þar líka. Í póstunum koma fram upplýsingar sem margir segja að marki upphaf Baugs- málsins, það er hvernig Jón Gerald Sullenberger fékk leiðbeiningar við að koma til lögreglu þeim upplýsing- um sem leiddu til húsleitar og síðan ákæru. Til að bæta gráu ofan á svart birti DV frétt þess efnis að Jónína og Styrmir hefðu verið elskendur. Jónína svaraði þeirri spurningu aldrei á sínum tíma og fór í meiðyrðamál við blaðið, mál sem samið var um utan dómstóla. En voru Jónína og Styrmir elskendur? „Við vorum vinir og samband okkar þróaðist út í ást- arsamband. Það bara gerðist. Ef ég mætti vinda ofan af því myndi ég gera það en það er bara of seint. Ég harma að þetta hafi gerst en það er mjög auðvelt að elska Styrmi. Hann er að mínu viti mjög geðugur og yndislegur maður,“ segir Jónína alvarleg. Jón Ásgeir er barn alkóhólista Jónína hefur lengi haft horn í síðu athafnamannsins Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, sem var um nokkurra ára skeið stjúpsonur hennar. Hún gefur lítið fyrir viðskipta- manninn Jón Ásgeir og það kemur skýrt fram í bókinni. Það sem vekur hins vegar athygli er að í bókinni kemur fram að hún hafi vissan skilning og samúð með Jóni Ás- geiri þrátt fyrir allt. „Jón Ásgeir er barn alkóhólista og það hefur markað hann. Ég náði aldrei neinu sambandi við hann, hitti hann bara nokkrum sinnum og ræddi aðeins einu sinni við hann almennilega. Hann ber þess merki að hafa átt erfiða æsku og ekki hjálpaði að hann leit á mig sem djöfulinn sem stal pabba hans frá mömmu hans sem hann elskar mjög mikið. Vissulega hef ég samúð með honum þótt það breyti ekki áliti mínu á honum sem við- skiptamanni. Þar er hann óheiðarlegur og margt sem hann hefur gert þolir ekki dagsljósið,“ segir Jónína. Hún og Jóhannes Jónsson, einatt kenndur við Bón- us, voru mest umtalaða og umdeildasta par landsins á fyrstu árum þessarar aldar. Í bókinni lýsir hún fyrstu kynnum þeirra í flugvél á leið til Kaupmannahafnar, tilhugalífinu og sambandinu sem varði í þrjú ár. Þrátt fyrir hún hafi látið stór orð falla um Jóhannes á undan- förnum árum er ekki annað að sjá í bókinni en að hún hafi sæst við hann. „Auðvitað óska ég þess stundum að ég hefði tekið aðra flugvél, til dæmis til London, þegar ég hugsa til baka,“ segir hún og rifjar upp fyrsta skiptið sem þau hittust. Það var snemma árs 1999 í flugvél sem var á leiðinni til Kaupmannahafnar. „Ég vissi ekkert hver maðurinn var þegar ég hitti hann fyrst en hann þekkti Stefán, manninn minn. En eftir þessa flugferð varð ekki aftur snúið. Lífið hefði sennilega verið einfaldara ef ég hefði ekki farið til Kaup- mannahafnar þennan dag,“ segir Jónína og brosir. Veit eiginkonan af þessu, Hreiðar? Hún nafngreinir þrjá menn í tengslum við dómkvaðn- ingu í Bandaríkjunum vegna viðskipta við bandarísku vændisþjónustuna Miami Beach Escort Service. Um- ræddir menn eru Kaupþingsstjórarnir Sigurður Einars- son og Hreiðar Már Sigurðsson og Tryggvi Jónsson, fyrrverandi aðstoðarforstjóri Baugs. Spurð hvort henni finnist það nauðsynlegt segir hún að þetta séu opinber gögn sem hún vitni til. „Þessi gögn hafa verið opin almenningi á baugsmal- id.is undanfarin ár en enginn blaðamaður hefur nennt að skoða þetta. Þetta eru opinber gögn og í þeim kemur ekkert annað fram en að þessir aðilir þurfi að mæta fyrir dómstól í Bandaríkjunum og leggja fram gögn í tengslum við viðskipti við þessa vændisþjónustu,“ segir Jónína ákveðin. En Jónína gerir meira en það. Á einum stað í bókinni hótar hún Hreiðari Má að segja eiginkonu hans frá at- höfnum hans á Delano-hótelinu á Miami og í bátnum fræga, Thee Viking. Þetta gerðist á einkafundi þeirra í höfuðstöðvum Kaupþings. Þar spyr hún hann hvort eiginkonan viti af kvaðningunni og hvað henni myndi finnast um athafnir hans á Miami. Á endanum brotnar Hreiðar Már niður og grátbiður hana að segja ekki frá þessu. Samkvæmt bókinni endar Jónína samtalið á orð- Athafnakonan umdeilda, Jónína Benediktsdóttir, gefur út ævisöguna Jónína Ben í samvinnu við fjölmiðlamanninn Sölva Tryggvason. Bókin, sem beðið hefur verið eftir með mikilli eftirvæntingu, kemur út í dag, föstudag, og verður aðeins seld í verslunum N1. Óskar Hrafn Þorvaldsson hitti Jónínu á heimili hennar og ræddi við hana um bókina. Ljósmyndir/Hari 30 fréttir Helgin 12.-14. október 2010
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.