Fréttatíminn - 12.11.2010, Blaðsíða 8
Fjölþrepa
bakbrettið
• Eykur sveigjanleika
• Linar bakverki
• Bætir líkamsstöðu
• Auðvelt í notkun
• Má nota hvar sem er Verð: 7.950 kr.
Stórhöfða 25 • Sími 569 3100 • www.eirberg.is
Opið virka daga kl. 9 -18 og á laugardögum kl. 11 - 16
Ómissandi
Hrein íslensk náttúruafurð
ms.is
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
4
18
5
0
Farðu inn á www.oddi.is
og búðu til persónulega gjöf.
Vegleg innbundin myndabók með þínum myndum.
Hannaðu þína
eigin myndabók
á oddi.is VERÐ FRÁ
6.990 kR.
EINTAkIÐ
Hjálparstarf
Prjóna, hekla og sauma fyrir bágstadda
Þ að kom Hafdísi Priscillu Magnús-dóttur og fjölskyldu hennar í opna skjöldu þegar litla stúlkan hennar
var tekin með bráðakeisaraskurði eftir 32
vikna meðgöngu 25. júlí á síðasta ári. Hún
var rétt sjö merkur og 32 sentimetrar þeg-
ar hún fæddist. Hafdís fær vökudeildinni,
sem litla stúlkan hennar dvaldist á í tæpar
sjö vikur, seint fullþakkað og hefur hrund-
ið af stað óhefðbundinni söfnun. Ríflega
fimm hundruð hafa skráð sig í hóp hennar
á Facebook sem ætlar að prjóna með henni
ogguponsulitlar húfur á litlu kollana sem
dveljast á deildinni. Hafdís ætlar að af-
henda húfurnar um jólin.
„Við maðurinn minn ákváðum strax að
á afmælisdegi dótturinnar og á aðfanga-
dag færum við með eitthvert smotterí á
deildina. Við tókum hins vegar eftir því á
jólunum í fyrra að deildin var að drukkna
í kökum og góðgæti, þannig að í ár lang-
aði mig frekar að gefa eitthvað sem nýtt-
ist,“ segir hún. Ákvörðunin vatt upp á sig
eftir að hún bað nokkra vini um aðstoð við
prjónaskapinn.
Minning sem ekki gleymist
Vistin á vökudeild var fjölskyldunni erfið.
„Litla dóttir mín þurfti að vera í öndunar-
vél í tvo daga eftir fæðingu. Hún var mjög
veikburða og tvísýnt um líf hennar, en með
góðri hjálp náði hún sér og ber engan skaða
af því að hafa fæðst fyrir tímann,“ lýsir Haf-
dís.
„Ég átti tvo stráka eftir venjulega fulla
meðgöngu, þannig að ég bjóst engan veg-
inn við þessu. Það byrjaði að blæða. Ég
ætlaði í skoðun og ein, en maðurinn minn
neitaði því og fór með mér. Í fyrstu átti að
leggja mig inn yfir nótt og maðurinn minn
ákvað því að halda heim á leið, en starfs-
fólkið náði honum í stiganum á leiðinni út
Hundruð kvenna um allt land prjóna nú
í gríð og erg fyrir jólaúthlutun hjálpar-
stofnana. „Við viljum hjálpa til við og gefa
þeim sem ekki eiga hlý prjónaföt fyrir
veturinn,“ segir Aðalheiður
Rúnarsdóttir prjóna-
kella. Bunkar af
prjónuðum, saumuðum
og hekluðum fötum
hrúgast upp á heimili
prjónakellu og vin-
kvenna hennar um allt
land. Þá hefur hún komið
upp lager, sem verður flokkaður síðasta
dag mánaðarins, í Guðríðarkirkju í Grafar-
holti. Þar hittast vinkonur prjónakellu
einu sinni í mánuði með handaverk sín
og þær og fleiri alla þriðjudaga frá
klukkan 19.30.
„Það fór hreinlega með
mig að sjá þessar bið-
raðir í sjónvarpinu í
einum fréttatímanum.
Ég viðurkenni að ég grét
og fór að hugsa um hvað
ég gæti gert en ég prjóna
út í eitt, á fullt af garni og afgöngum,
og ákvað að gera það sem ég geri best;
prjóna,“ segir Aðalheiður.
Skipta á afrakstrinum jafnt milli Mæðra-
styrksnefndar og Fjölskylduhjálparinnar
hér syðra en það sem til fellur úti á landi
rennur til þeirra hjálparstofnana sem
starfa á hverjum stað fyrir sig.
Þeir sem vilja komast í samband við
prjónakellu og vinkonur hennar geta
fundið síðuna hennar á Facebook,
Prjóna Kella, eða sent póst á netfangið:
prjonakella@gmail.com. - gag
„Við vorum
einfaldlega svo
ánægð með
að hún væri á
lífi en fengum
skellinn heima
þegar við
áttuðum okkur
á því hve
hættulegt er að
eignast fyrir-
bura.“
Vökudeild fimm Hundruð manna facebook-Hópur prjónar Húfur
Þakkar lífgjöfina með
ogguponsulitlum húfum
Hafdísi og Jóni Baldri var brugðið þegar þriðja barn þeirra fæddist óvænt á 32. viku meðgöngu.
Þau sóru að gefa vökudeildinni alltaf gjafir á afmælisdegi dóttur sinnar og á jólum. Nú hefur Hafdís
hrundið af stað prjónaátaki svo að öll börnin sem dvelja á deildinni prýði húfur í réttri stærð.
og var honum þá tilkynnt að ég væri á leið
í keisaraskurð. Hálftíma seinna var stúlkan
fædd.“
Hafdís lýsir því hvernig maðurinn henn-
ar rétt sá litlu stúlkuna áður en hlaupið var
með hana á vökudeild, framhjá foreldrum
þeirra sem voru að stíga inn á spítalann og
sáu því læknana þeysast hjá með barnið.
„Áfallið kom eftir á. Já, í rauninni ekki
fyrr en við komum heim með hana því þeg-
ar á þessu stendur er nær ómögulegt að
meðtaka allar upplýsingarnar. Við vorum
einfaldlega svo ánægð með að hún væri á
lífi en fengum skellinn heima þegar við átt-
uðum okkur á því hve hættulegt er að eign-
ast fyrirbura.“ Þá höfðu þau hjónin staðið
vaktirnar sitt í hvoru lagi heima fyrir með
sonunum, fjögurra og sjö ára, annars vegar
og svo með dótturinni á spítalanum.
„Synir okkar tóku þessu vel en fannst
skrýtið að eiga systur sem þeir fengu ekki
að hitta,“ segir Hafdís. Svínaflensufarald-
urinn hafi séð til þess: „Þeir fengu tvisvar
að sjá hana í gegnum glerrúðu á þessum
sjö vikum.“
Börnum sinnt af alúð
Hafdís vonar að húfurnar eigi eftir að reyn-
ast vel á deildinni. „Og skili allar húfurnar
sér ætti lagerinn að endast í þrjú ár,“ seg-
ir hún og hlær. „Eftir þessa reynslu ber
ég ótrúlegt traust til starfsfólksins sem
sinnti dóttur minni. Þetta er engin færi-
bandavinna, heldur heyrði maður hvernig
læknar, hjúkrunarfræðingar og sjúkraliðar
töluðu af ástúð til barnanna. Það var svo
gott að vita af barninu í góðum höndum
þegar við vorum ekki á staðnum.“
Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
gag@frettatiminn.is
Nýfædd, slöngum
þrædd á vökudeild
Landspítalans. Emma
Sigrún átta tímum
eftir fæðingu, komin í
öndunarvél.
Hafdís, Jón Baldur Baldursson, Sigurgeir Árni og Alexander Gauti með litlu stúlkunni Emmu Sigrúnu. Hún varði fyrstu sjö vikum
lífs síns á vökudeild, fæddist 1.750 g og varð léttust 1.400 g þar til hún náði sér á strik. Ljósmynd/Hari
8 fréttir Helgin 12.-14. nóvember 2010