Fréttatíminn - 12.11.2010, Blaðsíða 12
m
ag
gi
@
12
og
3.
is
4
11
.0
08
Batik • Bíldshöfða 16 • 110 Reykjavík • Sími 557 2200 • sala@batik.is • www.batik.is
Föt Fyrir
káta krak
ka!
Frábært v
erð!
úlpa
Frábært verð
14.990
FireFly FreeDOM parka
Hlý vetrarúlpa með hettu
og loðkraga sem taka má af.
Barnastærðir.
Við verðum að fá viðskiptavinina að
samningsborðinu til að semja um skuldir
sínar. Það þýðir ekki að þeir haldi að
betra sé að bíða með að leysa úr vand-
anum, segir Birna Einarsdóttir, banka-
stjóri Íslandsbanka. „Þeir verða að koma
núna. Annars komumst við ekki áfram.“
Hún segir að fjárhagsleg endurskipulagn-
ing fyrirtækja hefði mátt ganga hraðar
fyrir sig. „En það eru ýmsar ástæður fyrir
því hve hægt hefur gengið. Ein er sú að
stjórnvöld hafa lofað fleiri úrræðum og
því hefur verið erfitt að draga fyrirtæki
að samningsborðinu. Þau hafa heldur
kosið frystingu lána eða aðra fram-
lengingu á vandanum. Þau hafa viljað
bíða og sjá og við höfum tekið þátt í
því.“ Þá nefnir hún að bankinn hafi ekki
vitað hvar hann stóð fyrr en efnahags-
reikningurinn var klár ári eftir hrun og
að ósveigjanlegar reglur til að gæta jafn-
ræðis milli fyrirtækja hafi hægt á ferlinu.
Birna segir fyrirtæki landsins hafa
farið í gagngerar breytingar síðustu tvö
ár. Tekjustreymi margra þeirra sé því
sterkara en bankinn hafi þorað að vona.
„Núna erum við komin á þann stað að
við þurfum að einhenda okkur í að finna
langtímalausnir fyrir fyrirtæki. Undir
lok 2011 verðum við búin að afgreiða
um 90% þessara mála; ég er fullviss um
það.“
Þ að er fráleitt að stjórnvöld breyti kvótakerfinu á þann hátt að fyrirtækjunum blæði, segir Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka. Slíkt
hefði ekki aðeins áhrif á sjávarútvegsfyrirtækin heldur
einnig veruleg áhrif á efnahag stóru viðskiptabank-
anna þriggja. Skuldir sjávarútvegsfyrirtækja skapi
fjórða stærsta lánasafn Íslandsbanka, 12 prósent eða
um 130 milljarða króna, en 24 prósent hjá Landsbank-
anum, samkvæmt nýjum uppgjörum sem hún vísar í.
„Við höfum reiknað út að breytingar á starfsum-
hverfi sjávarútvegsins hefðu veruleg áhrif á okkur hér,
en þó ekki þau áhrif að bankinn yrði gjaldþrota. Veikt
fjármálakerfi hefur hins vegar takmarkaða getu til
nýrra útlána og stuðnings við uppbyggingu atvinnu-
lífsins. Þannig að við höfum af þessu miklar áhyggjur,“
segir Birna. Hún hélt í byrjun mánaðarins erindi um
skuldastöðu sjávarútvegsfyrirtækja á aðalfundi LÍÚ,
Landssambands íslenskra útvegsmanna, þar sem hún
sagði mikilvægt að eyða óvissu og ná sátt um fyrir-
komulag fiskveiðistjórnunar sem allra fyrst.
Sjávarútvegsfyrirtæki í biðstöðu
Í máli Birnu kom fram að 84 prósent sjávarútvegsfyrir-
tækja í viðskiptum við bankann þyrftu enga eða litla
aðstoð og að afskriftir af lánum til fyrirtækjanna hefðu
verið óverulegar. Staða smærri sjávarútvegsfyrirtækja,
sem keypt hefðu aflaheimildir á nýliðnum árum, væri
helst erfið og unnið væri að endurskipulagningu þrjá-
tíu fyrirtækja í sjávarútvegi hjá bankanum.
„Við treystum á að sjávarútvegurinn myndi hjálpa
okkur út úr hremmingum efnahagslífsins; að hann
myndi fjárfesta. Tækifærin voru til staðar þótt greinin
sé mjög skuldsett, en sjávarútvegsfyrirtækin hafa
dregið saman seglin og það er ekki það sem við þurf-
um á þessum tíma,“ segir Birna.
Atli Rafn Björnsson, viðskiptastjóri sjávarútvegs-
mála á fyrirtækjasviði bankans, situr gegnt Birnu í við-
tali við Fréttatímann: „Okkur finnst eins og verið sé að
skemma gulleggið. Með breytingum getum við farið
aftur um tugi ára.“ Hann segir mikla orku fara í varnar-
baráttu sjávarútvegsins gegn óljósum fyrirætlunum
stjórnvalda. „Endurskipulagningin á að ganga út á að
koma fyrirtækjum í það horf að þau fjárfesti, ráði til sín
fólk og fari út úr kreppunni, en íslensk sjávarútvegsfyr-
irtæki gera ekki annað en fyrst og fremst að halda sjó.“
Atli segir það ekki aðeins vegna fyrirhugaðrar
fyrningar aflaheimilda heldur takist útvegsmenn á við
margar litlar breytingar. Til dæmis á veiðiskyldu eða
takmörkun á flutningi aflaheimlda á milli ára og fleiri
minni atriði. „Punkturinn er að gríðarleg orka fer í að
glíma við stjórnvöld og óvissuna sem þau hafa skapað
auk annarra.“ Gremja útgerðarmanna snýst, að hans
sögn, um að uppbyggingu til áratuga sé kastað fyrir
róða.
Sveigjanleikinn rústaður
En af hverju ver Íslandsbanki kvótakerfið? Birna segir
áhrifin af breytingu kerfisins einfaldlega það mikil.
„Þegar við lánum út, lánum við ekki eingöngu út á
veðið heldur fyrst og fremst út á sjóðstreymið. Ef það
skerðist, sem gerist efnvið förum þessa leið, kemur það
niður á afborgunarhæfni viðskiptavina okkar,“ segir
Birna. „Við höfum mestar áhyggjur af því að tekjur við-
skiptavina okkar skerðist. Þurfi sjávarútvegsfyrirtækin
einnig að kaupa sér aflaheimildir eða leigja og annað til
viðbótar verður staða þeirra mjög slæm. Við bendum á
að góð framlegð í sjávarútvegi er ekki sjálfgefin. Með
breyttu kerfi er hætta á að aflinn verði dreginn á land
á röngum tíma og rústi sveigjanleikann sem nú er og
gerir útgerðum kleift að sækja aflann þegar hann er
verðmætastur. Það er gefið að arðsemin minnkar með
breyttu kerfi,“ segir Birna.
Atli Rafn tekur undir þetta: „Af þeim tekjum sem
sjávarútvegurinn skapar eru greidd laun, þau eru
skattlögð og fyrir þær fjárfest. Heilar atvinnugreinar
byggjast upp í kringum sjávarútvegsfyrirtæki og hafa
sínar þjónustutekjur af viðskiptum við þau. Ef fyrir-
tæki í greininni hafa ekki þrótt til að fjárfesta hefur það
margföldunaráhrif í samfélaginu. Við erum því hrædd
við breytingarnar, bæði gagnvart bankanum og þeim
uppbyggingarfasa sem samfélagið er í. Við skiljum því
ekki af hverju stjórnarflokkarnir vilja keyra þetta mál
svona áfram.“
Þið óttist ekki að Íslandsbanki verði stimplaður varð-
hundur kvótakerfisins? Birna neitar því: „Ég blanda
mér ekki í þessa pólitísku umræðu, heldur horfi út frá
hagsmunum bankans og hræðist því þessar aðgerðir.“
Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
gag@frettatiminn.is
FjármálaFyrirtæki Birna Einarsdóttir Bankastjóri í viðtali
Settum traust okkar
á sjávarútveginn
Bankastjóri Íslandsbanka hefur áhyggjur af högginu sem bankinn yrði fyrir færu sjávarútvegsfyrir-
tækin í þrot. Hann geti þá ekki staðið við bakið á atvinnulífinu sem skyldi eins og þörf er á núna.
Verðum að fá viðskiptavini að samningsborðinu
Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka.
12 fréttir Helgin 12.-14. nóvember 2010