Fréttatíminn - 12.11.2010, Qupperneq 15

Fréttatíminn - 12.11.2010, Qupperneq 15
EKKI LÁTA SÍMAFÉLAGIÐ ÞITT SEGJA ÞÉR HVAR ÞÚ ÁTT AÐ SPARA. það er hreinlega verið að skera nið- ur starfsemi. Okkar sjónarmið í HR er að það megi aldrei fórna gæðum, svo að í stað þess að skera flatt niður fækkuðum við námsbrautum og um eina deild. Við ætlum að standa vörð um gæði náms á okkar kjarnasviðum sem eru tækni, viðskipti og lög. Það er okkar stefna að halda áfram að efla stöðu okkar hvað þessi svið varðar en þar höfum við mjög sterka stöðu í íslensku háskólasamfélagi. Við útskrifum meginhluta tækni- menntaðs fólks á háskólastigi, fleiri viðskiptafræðinga en aðrir og stönd- um mjög framarlega í rannsóknum á þessum sviðum. Ef við horfum til lengri tíma held ég að lykilatriðið í því hvernig við nýtum þessa takmörkuðu fjármuni sé að horft sé til gæða starfsins og skilvirkni. Síðan þarf að horfa til þarfa atvinnulífsins. Að undan- förnu hefur mikið verið rætt um þörf á tæknimenntuðu fólki en á sama tíma er verið að skera niður í háskólunum sem mennta þetta fólk. Við stundum kennslu og rann- sóknir á sviði tækni, viðskipta og laga og höfum alltaf lagt áherslu á tengingu við atvinnulífið. Í því felst m.a. að í náminu er lögð áhersla á hagnýta þjálfun og tengingu náms- efnis við raunhæf verkefni, teng- ingu við atvinnulífið og þau verk- efni sem nemendur munu síðar fást við. Við höfum hins vegar aldrei gefið afslátt af bóklegri þekkingu. Trú okkar er að bókleg þekking nýtist nemendum betur ef hún og þau verkefni sem þeir eru að vinna tengjast.“ Námsbraut er aldrei fullbúin Gagnrýni Brynjars Níelssonar, formanns Lögmannafélags Ís - lands, á kröfur til grunnmenntunar í lögfræði í háskólum hefur vakið athygli. Rektor HR bendir á að laga- deild skólans hafi fyrst árið 2007 út- skrifað fullmenntaða lögfræðinga, þ.e. með meistarapróf. Vel hafi verið vandað til undirbúnings námsins og að tölur áranna 2009 og 2010 sýni að skólinn sé fyllilega sambærilegur við Háskóla Íslands hvað undirbún- ing nemenda varðar. „En við verð- um alltaf að skoða uppbyggingu náms með það í huga að gera enn betur,“ segir Ari Kristinn. „Náms- braut er aldrei fullbúin. Við verðum að bregðast við og skoða hvað við getum gert betur.“ Jónas Haraldsson jonas@frettatiminn.is Trú okkar er að bókleg þekking nýtist nemendum betur ef hún og þau verkefni sem þeir eru að vinna tengjast. Ari Kristinn Jónsson Við verðum alltaf að skoða uppbyggingu náms með það í huga að gera enn betur. fréttaviðtal 15 Helgin 12.-14. nóvember 2010
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.