Fréttatíminn - 12.11.2010, Side 17
– Lifið heil
www.lyfja.is
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/L
Y
F
5
21
65
1
1/
10
ÍS
LE
N
SK
A
/S
IA
.IS
/L
YF
5
16
26
0
9/
10
Þjónustan er veitt virka daga frá kl. 8 til 17.
Veitum ýmsa sérhæfða þjónustu, m.a. ráðgjöf
við val og notkun á vörum fyrir sykursjúka.
Láttu okkur mæla blóðsykurinn.
Hjúkrunarþjónusta
í Lyfju Lágmúla
Ertu orkulaus?
Viltu lifa lífinu lifandi?
Súr eða basísk / ur?
Hátt eða lágt pH gildi?
Fyrirlestur um pH lífsstíl – mikilvægi basískrar næringar
Fyrirlesturinn er haldinn
á Maður lifandi Borgartúni 24
Mánudaginn 15. nóv. kl. 19.00
Fyrirlesarar eru:
Hanna Laufey Elísdóttir, Guðrún Helga Rúnarsdóttir
næringarráðgjafar og microscopistar
Aðgangur kr. 1500
HJÁ OKKUR
RÆÐUR ÞÚ
HVAÐ ÞÚ BORGAR.
sé gert. Það er ekkert í embættis-
mannakerfinu, ekki lögin, ekki fjöl-
skyldan því hún er föst í netinu og
ekki allt það fólk sem hefur vitneskju
um ofbeldið. Ég sætti mig ekki við
það. Aldrei, aldrei. Og ég kem aldrei
til með að láta börnin mín bera þenn-
an kross með sér til næstu kynslóð-
ar,“ segir hún.
„Það er ekki það að fólk trúi okkur
ekki. Það trúir okkur og einn bræðra
minna orðaði það svo að þau systkin
okkar ætluðu að sýna okkur skiln-
ing en ekki stuðning. En við höfum
ekkert að gera með skilning ef við
höfum ekki stuðning því sprengi-
krafturinn er í stuðningnum. Hann
er hreyfiaflið. Þá gerist eitthvað.“
Þær systur segja ekkert að þeim,
þær séu hólpnar en vandinn liggi
í þögninni. „Við höfum sótt okk-
ar frelsi og það felst í því að segja
frá og hafna ofbeldinu alls staðar.
Vefurinn sem ættingjar okkar eru
fastir í er sá að þeir vilja velja sér
aðstæðurnar þar sem þeir styðja
okkur. Það gengur ekki. Þeir verða
að taka afstöðu. Annað hvort styðja
þeir ofbeldið eða ekki. Kjósi þeir að
gera það ekki, þurfa þeir að standa
við það hvar sem er, hvenær sem er.
Það er skrefið sem sumir okkar ætt-
ingja taka nú og fá bágt fyrir, því það
er reynt að halda þeim inni í netinu.
Allt til dagsins í dag hefur ofbeld-
ismaðurinn verið varinn af netinu.
Hann hefur ekki þurft að verja sig.
Hann hefur getað beitt fjölskyldu
sinni og okkar. Við reynum ekki að
setja okkur í spor fjölskyldu hans,
líðan hennar hlýtur að vera skelfileg.
Við verðum að halda áfram baráttu
okkar og stöðva hann. Hann er stór-
hættulegur og það vita allir sem hafa
umgengist hann.“
Þjóðin meðsek, þegi hún
Þær kalla á aðgerðir með því að
birta reynslu sína á netinu. „Núna
veit þjóðin þetta og við drögum hana
til ábyrgðar með okkur. Hvað ætlum
við að gera við þessar upplýsingar?
Hvað svo? Við verðum að taka nýtt
skref. Við viljum afnema fyrningar
á brotum gegn börnum því allir sem
kynna sér sögur barna átta sig á
því að þær eiga ekki við. Mörg hver
munum við ekki smáatriði úr æsku
sem við höfum bælt. Ég kemst aldrei
inn í minningarnar mínar nema í
brotum,“ segir Ingibjörg og beygir
af. Sigurlína grípur boltann á lofti.
„Fórnarlömb barnaníðinga loka á
minningar. Það eru varnir líkamans
og þær koma jafnvel ekki fram fyrr
en brotin eru fyrnd.“
Ingibjörg segir ekkert geta stöðv-
að þær systur í dag. „Það sem við
getum gert er að fylgja sannleikan-
um og hann dregur okkur áfram.“
Sigurlína segir það markmið þeirra
í lífinu að opna málið og klára það:
„Við ætlum að taka á þessu máli á
meðan maðurinn er á lífi.“ Þær nefna
bautasteina á brautinni til sannleik-
ans. Bók Thelmu og biskupsmálið.
Tíðarandinn sé breyttur og tæki-
færið til staðar.
„Við fáum endalausa pósta frá fólki
sem segir okkur sína sögu. Þöggun-
in í samfélaginu í kringum barnaníð-
inga er viðbjóður. Fólk verður að átta
sig á hvernig vefurinn er spunninn í
kringum ofbeldismenn og þagnar-
múrinn reistur.“ Nú sé stundin runn-
in upp þar sem vefurinn sé rakinn
upp. „Það er svo auðvelt að rekja
sögu þessa manns. Af hverju er það
ekki gert?“ Þótt mál þeirra systra
séu fyrnd sé engin ástæða til að láta
kyrrt liggja. Rannsaka þurfi sögu
hans og annarra manna í hans stöðu
því enginn viti hvað þeir hafist að
nú. „Við skiljum þegar fullorðið fólk
segist hafa rétt, en hefur það engar
skyldur? Það verður að bera ábyrgð
á gjörðum sínum sem fullorðið fólk.“
Bréf þeirra systra er á vefnum:
http://reynslusaga.blogspot.com/
Helgin 12.-14. nóvember 2010