Fréttatíminn - 12.11.2010, Síða 25

Fréttatíminn - 12.11.2010, Síða 25
Í bókinni má finna brot af því besta sem Gestgjafinn stendur fyrir. Klassískar uppskriftir í takt við tíðarandann. Í tilefni dagsins er undirtitill nýjustu afurðar Gestgjafans. Splunkuný matreiðslubók, gefin út í tilefni 30 ára afmælis tímaritsins. 160 161 Villisveppabakafyrir 4-6 30x30 cm smjördeigsörk, 5 mm þykksmjörúði 3 bollar hrísgrjón eða þurrkaðar baunir Stingið göt með gaffli í deigið með 5 cm millibili. Úðið hringmót eða pönnu með smjör- úðanum. Leggið deigið ofan í mótið og þrýstið því upp með brúnum. Skerið deigið þannig að það verði jafnhátt og mótið. Setjið hrísgrjónin ofan á deigið í mótinu og bakið við 180°C í 15 mín. Takið þá hrísgrjónin úr mótinu og notið við annað tækifæri (grjónin er nauðsyn- legt að hafa til að fá rétt form á bökuskelina). Setjið mótið síðan aftur í ofninn í 7-10 mín. Fylling: 3 msk. olía 2 laukar, skornir í báta 500 g villisveppir, skornir í bita3 dl mjólk 3 egg salt og nýmalaður pipar 100 g rifinn ostur 3 msk. brauðraspur Hitið olíu á pönnu og steikið laukinn og sveppina í 3-4 mín. Kryddið með salti og pipar og setjið síðan í skál. Setjið mjólkina og eggin í skálina og blandið vel saman. Hellið loks blöndunni í formið með deiginu og stráið osti og raspi yfir. Bakið við 180°C í 20-30 mín. 134 135 Líbanskur kjúklingaréttur fyrir 4 2 msk. sítrónusafi 6-8 hvítlauksgeirar 1-2 tsk. óreganó 1 tsk. paprika 1 tsk. kummin 1/2-1 tsk. cayenne-pipar 1 rautt chili-aldin, saxað 1-2 tsk. púðursykur 1 laukur, sneiddur 6 kjúklingabitar Blandið öllu saman í sk ál nema kjúklingabitum . Setjið bitana í eldfast m ót og hellið krydd- leginum yfir. Geymið í k æli, helst yfir nótt. Bakið við 180°C í u.þ.b. 30-40 mín. eða þar til kjúklingurinn er steiktu r í gegn. Berið fram með kúskúsi og fersku salat i. 104 105 Þessa snúða má baka og frysta. Hitið þá síðan upp í ofnskú ffu með álpappír yfir í 10-15 mín. í 140°C heitum ofni. Hafið aðeins leng ri tíma fyrir meira magn. Fylltir blaðdei gssnúða r 28 stk. 2-3 msk . olía 1 lauku r, saxað ur smá tt 6 stilka r vorlau kur, sax aðir 1 ítalsk ur ostu r með s ólþurrk uðum t ómötum , gróft r ifinn 1 krukk a peppe ronata 1 msk. þurrkuð eða 2 m sk. fers k steins elja 1 pakki blaðde ig (6 de igblöð) 60 g sm jör Hitið of ninn í 2 00°C. St eikið la uk og v orlauk á pönnu . Setjið í skál ás amt ost inum, p eppe- ronata og stein selju. B ragðbæ tið með salti og pipar. S etjið 3 b löð af b laðdeig i á borð ið. Smyrjið með sm jöri á m illi laga . Farið e ins að v ið hin þ rjú blöð in í pak kanum . Breiðið úr fyllingu nni á bl aðdeigi ð. Rúllið lengri h liðinni á deigp lötunni upp, pe nslið að eins me ð smjöri t il að lím a samsk eytin. S kerið hv erja len gju í 14 -16 bita . Raðið bitunum á böku nar- pappírs klædda ofnplö tu, setji ð e.t.v. a ðeins a f rifnum osti á h vern sn úð og b akið í m iðjum ofni í 15 mín. 82 83 Salat með parmaskinku, perum og grilluðum aspasfyrir 4 400-500 g aspasstönglar2 perur, skornar í 8-10 báta hver2-3 msk. olía 200 g blandað salat 8 sneiðar parmaskinka eða önnur skinka sem ykkur finnst góð 100 g geita- eða mozzarella-ostur50 g ristaðar pekan- eða valhnetur Sinneps-salatsósa: 1 msk. vínedik 1 tsk. grófkornasinnepögn af sykri eða hunangi3 msk. jómfrúarolía salt og pipar Skerið örlítið neðan af aspasstönglum, skrælið neðri hlutann ef þarf, og skerið þá síðan í tvennt. Veltið aspas og perubátum upp úr olíu og grillið eða steikið á grillpönnu. Dreifið úr salatinu á fat, raðið aspas, perum, skinku, osti og hnetum ofan á. Hrærið saman edik, sinnep og sykur í skál. Hellið olíunni smátt og smátt út í og þeytið á meðan. Kryddið með salti og pipar eftir smekk. Hellið sósunni yfir salatið. Stráið svolítið af salti og nýmöluðum pipar yfir. 54 55 Draumarúllafyrir 8 6 egg 140 g sykur50 g kakó Hitið ofninn í 200°C. Þeytið saman egg og sykur þar til blandan verður ljós og létt. Sigtið kakó saman við og blandið varlega með sleikju. Setjið bökunarpappír í ofn- skúffu eða rúllutertuform og brjótið upp á endana svo þeir nái upp með hliðunum, smyrjið pappírinn með olíu eða smjöri. Hellið deiginu í skúffuna, breiðið úr því og bakið í 18-20 mín. Látið kökuna bíða í 5-10 mín. Losið um kökuna við kantana og hvolfið henni á sykurstráðan bökunar- pappír. Fylling: 225 g súkkulaði3 msk. vatn 3 egg, rauður og hvítur aðskildar 2 1/2 dl rjómi2 msk. flórsykur Bræðið súkkulaði og vatn saman við vægan hita og hrærið eggjarauður saman við. Gætið þess að hafa súkkulaðið ekki of heitt og eggjarauðurnar við stofuhita, þá fer allt vel. Best er að bræða súkkulaðið yfir vatns- baði við mjög vægan hita í 20-30 mín. og jafnvel má byrja á því um leið og byrjað er að baka kökuna. Stífþeytið eggjahvítur og bætið þeim saman við, fyrst smávegis og síðan öllu. Blandið vel saman og smyrjið yfir kökuna. Þeytið rjóma og smyrjið honum ofan á súkkulaðimúsina. Rúllið kökunni upp og sigtið flórsykur yfir. Þetta er ótrúlega ferskur og ljúffengur ís. Það er mjög gott að gera hann í ísvél en fyrir þá sem ekki eiga svoleiðis undratæki er lítið mál að frysta hann í víðu íláti og hræra í honum af og til. Hindberjaís1 lítri 250 g hindber, frosin150 g sykur250 g grísk jógúrt1 ¾ dl rjómiörlítið salt 1-2 msk. sítrónu- eða límónusafiAfþíðið hindberin og maukið í matvinnsluvél. Blandið öllu saman og hrærið þar til syk- urinn er uppleystur. Frystið. Takið út eftir 2-3 klst. eða þegar ísinn er farin að frjósa aðeins og hrærið þá í. Frystið aftur og hrærið vel tvisvar í viðbót. Ísinn geymist í frysti í 3-4 mánuði en það er gott að hræra hann upp í hrærivél ef hann hefur verið lengi í frysti. Það er fallegt að bera ísinn fram í skálum sem hafa verið kældar 2-3 klst. í frysti og setja nokkur fersk hindber með. Ný bók! Ný matreiðslubók frá Gestgjafanum Kökur, klúbbaréttir, forréttir, aðalréttir og eftirréttir sem hæfa við öll tækifæri, hvort sem er hversdags eða við sérstök tilefni. af fólki sem hef- ur framkvæmt hlutina hvað sem tautaði og raulaði – oft og tíðum án samþykkis annarra. Það er eðli málsins samkvæmt því í orðinu nýsköpun felst það að skapa eitthvað nýtt sem aðrir hafa ekki komið auga á.” Góð hugmynd? Daniel þyk ir hnyttinn í orða- vali og beittur í skrifum sínum. Hann hefur m.a. skr i fað grein um það hvernig ástríða fyrir nýjum hugmyndum getur jafnvel hindrað frumkvöðla í að ná árangri og ritaði í Harvard Business Review orðrétt: Frumkvöðlar, skiljið ástríðuna eftir í svefnherberginu! Það verður ekki hjá því komist að spyrja aðeins meira um ástríðuna í þessu viðtali. „Já, ástríðan getur vafist fyrir mörg- um,“ segir Daniel og brosir. „Ég held að það þurfi einurð og þrautseigju til að koma af stað nýrri hugmynd en ástríða er ekki hugtak sem sker úr um hvort ný hugmynd verður að stórfeng- legu fyrirtæki. Stór hluti þess að selja hugmynd fel- ur án efa í sér að sveipa hversdagslega hluti rómantík, deyfa ljósin og setja á fallega tónlist. En að mínu mati er ekki síður nauðsynlegt að draga reglulega frá tjöldin, hleypa dagsbirtunni inn og skoða viðskiptahugmyndina í birtu sem varpar skýru ljósi á allar misfell- ur og vankanta. Einungis þannig er hægt að gera góða hugmynd betri,“ segir Daniel og leggur áherslu á þá staðreynd að frumkvöðlar þurfa sífellt að spyrja sig hvernig best sé að gera hlutina. „Þeir frumkvöðlar sem hafa náð hvað mestum árangri eru þeir sem eru sífellt að velta fyrir sér hugmynd sinni og stöðugt að ræða hana við aðra. Þeir spyrja: Er hugmyndin góð? Og er ég að nýta hana eins vel og unnt er?“ Elínrós Líndal og Hildur Camilla Guðmunds- dóttir eru meðlimir í EBMLUM, sem er félagsskapur kvenna sem hafa útskrifast með MBA gráðu frá Há- skólanum í Reykjavík. Markmið félagsins er að efla tengslanet kvenna. Þetta er gert með markvissri dagskrá, fræðslu og vettvangi til umræðna. Ég held að það þurfi einurð og þrautseigju til að koma af stað nýrri hugmynd en ástríða er ekki hugtak sem sker úr um hvort ný hug- mynd verður að stórfenglegu fyrirtæki.

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.