Fréttatíminn - 12.11.2010, Síða 28

Fréttatíminn - 12.11.2010, Síða 28
Þ etta er íburðar- mikil sýning og ég er bara þeirrar skoðunar að ef fólk mætir ekki á lista- sýningar þá eiga sýningarnar að mæta til fólksins þannig að ég er þakklátur fyrir að fá tækifæri til að vera með þessa sýningu í Smáralind,“ segir poppstjarnan Páll Óskar en á morgun, laug- ardag, verður opnuð ljósmynda- sýning Oddvars Hjartarsonar með myndum að Páli Óskari við aðstæður sem eru honum fjarlægar og framandi. „Þetta er fjölfarinn staður og ég vona að fólk fái nú að uppgötva Oddv- ar sem er með sýningunni að stimpla sig hressilega inn sem listamaður.“ Á sýningunni eru 34 myndir sem Oddvar hefur tekið af Páli á undanförnum þremur árum. Samhliða sýningunni gefa þeir félagar út póstkortabók með þessum sömu myndum. „Oddv- ar er snillingur í að búa til svið- settar ljósmyndir og það var svaka hasar í kringum þessar myndatökur, búningar og stund- um hönnuð sviðsmynd,“ segir Páll Óskar. Oddvar setur mig þarna í aðstæður sem er eigin- lega útilokað að ég lendi í í líf- inu eins og til dæmis þegar ég er gagnkynhneigður handbolta- kappi með eiginkonu sem er al- gjör skinka.“ „Þetta var ógeðslega gaman. Við skemmtum okkur alltaf svo vel saman enda erum við góðir vinir. Það er alltaf mikill hlátur og gaman hjá okkur,“ segir ljós- myndarinn Oddvar sem von- ast til þess að sem flestir skoði myndirnar sem hann segir að séu „gordjöss“. Páll Óskar segist ekki bein- línis taka sjálfan sig alvarlega á myndunum en þeir félagar hafi hins vegar tekið myndirnar al- varlega að því leyti að þeir lögðu ákaflega mikið í þær. Sýningin „Páll Óskar eftir Oddvar“ er á jarðhæð Smára- lindar við verslun Hagkaupa. Hún hefst klukkan 14 á laugar- daginn og stendur til jóla. Margfaldur Páll Óskar Oddvar Hjartarson ljósmyndari myndaði Pál Óskar í óvenjulegum hlutverkum. 28 ljósmyndir Helgin 12.-14. október 2010

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.