Fréttatíminn - 12.11.2010, Page 33
www.foreldrajafnretti.is
FEÐRADAGURINN
14. NÓVEMBER 2010
ÞVÍ MIÐUR!
VEGNA ÞESS AÐ EKKERT HEFUR GERST Í RÉTTINDAMÁLUM FORSJÁRLAUSRA FORELDRA
UNDANFARIÐ ÁR, NEYÐUMST VIÐ TIL AÐ BIRTA SÖMU AUGLÝSINGUNA AFTUR...
www.foreldrajafnretti.is
8. NÓVember 2009
FEÐRADAGURINN
Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra og ríkisstjórn Íslands. Hér eru blákaldar staðreyndir úr
„jafnréttis- og mannréttindaríkinu Íslandi“ Er þetta boðlegt börnum þessarar þjóðar?
SKORUM Á RÍKISSTJÓRN ÍSLANDS AÐ TAKA MEÐ FESTU Á ÞESSUM MANNRÉTTINDABROTUM!
ÞAU erU STÓrT LÝTI Á ÍSLeNSKU SAmFÉLAGI – FOrÐUmST AÐ FOrSÆTISrÁÐHerrA ÞJÓÐArINNAr
ÞUrFI AÐ bIÐJA ÍSLeNSK SKILNAÐArbÖrN AFSÖKUNAr Á KOmANDI ÁrUm………………!Styrkjum baráttuna fyrir foreldrajafnrétti þar sem vandamálin fara stöðugt vaxandi
með breyttu fjölskyldumynstri. Gerist meðlimir í Félagi um Foreldrajafnrétti - Ársgjald einungis kr 2.000. Skráning á www.foreldrajafnrétti.is.
1 Ísland rekur lestina af öllum Norður-löndunum í mál efnum skilnaðarbarna og feðra, samkvæmt nýrri skýrslu Félags-málaráðuneytisins
2 Í skýrslu Félagsmálaráðu neytisins kemur fram að mæður verða í 92-95% tilvika með lögheimili og öll helstu réttindi barna við skilnað foreldra.
3 Kynbundinn munur er meiri og alvar legri en í öðrum sambærilegum málaflokkum. ríkis rekin jafn réttis barátta neitar að horfast í augu við stað reyndirnar.
4 Börn á Íslandi eiga ekki sama rétt til feðra sinna og mæðra við skilnað. Þar með er jafnrétti kynjanna í málaflokki forsjár- og umgengnis mála ekki viður-kennt á Íslandi.
5 Sýslumannsembættin skammta flestum skilnaðar börnum 4-6 daga í mánuði með feðrum sínum. Dóms-málaráðuneytið staðfestir yfirleitt slík mannréttindabrot. Af því bara…
6 Sýslumannsembættin telja yfirleitt að skilnaðar börn eigi ekki að dvelja hjá feðrum sínum og föðurfjölskyldum á aðfangadegi jóla. Dóms málaráðuneytið staðfestir yfirleitt slík mann réttinda brot. Af því bara…
7 Sýslumannsembættin láta feður greiða meðlög alger lega óháð samvistum og eigin framfærslu þeirra við börn sín.
8 Íslenskum dómurum er ekki ennþá treyst fyrir því að komast að bestu niður-stöðu fyrir börnin þegar til forsjármála kemur, eini málaflokkurinn þar sem þeim er ekki treyst.
9 Dómara ber að svipta annað foreldri forsjá, skv. lögum, þegar til ágreinings kemur, það reynist auðvelt þegar feður eru sviptir, eins og að drekka vatn að því er virðist.
10 Tilefnislausar umgengnistálmanir eru algengar á Íslandi, þær eru gróft ofbeldi og mann réttinda brot. Tálmanir á að meðhöndla eins og hvern annan refsi-verðan glæp og ofbeldisverk. Foreldri sem þver brýtur for sjár skyldur sínar með slíku athæfi sviptir börn hinu foreldri sínu og stórfjölskyldu sinni; mánuðum og jafnvel árum saman.
11 Embætti Umboðsmanns barna er gagns laust með öllu, hefur ekki gert nokkurn skapaðan hlut til þess að leið-rétta mannréttindabrot á börnum Íslands í forsjár- og umgengnismálum.
12 Skilnaðarhrina getur fylgt í kjölfar efna-hags hrunsins, þúsundir barna verða þá af eðli legu sambandi og uppeldi hjá feðrum sínum og föður fjölskyldum. Talið er að á Íslandi séu allt að 20.000 skilnaðarbörn.
Til hamingjU mEð Daginn