Fréttatíminn - 12.11.2010, Page 43
Vikan sem Var
Út yfir gröf og dauða
„STEF-gjald af allri tónlist við jarðar-
farir“
Innheimt er höfundarréttargjald vegna
opinbers flutnings allrar tónlistar við
jarðarfarir og skiptir þá ekki máli
hversu stór hluti tónlistar og sálma
nýtur höfundarréttarverndar. Þókn-
unin er 5% af heildarlaunum þeirra
sem flytja tónlistina.
Hvar er tortímandinn?
„Geimvera í íslenskum
stjórnmálum“
„Ég er geimvera
í íslenskum stjór-
nmálum sem enginn
veit almennilega
hvernig hann á að
takast á við. Síðan er
spurningin: Er einhver Arnold
Schwarzenegger þarna úti?; og ég held
ekki,” sagði Jón Gnarr borgarstjóri, í
Kastljósi Sjónvarpsins.
Forgangsröðunin í lagi
„Bæjarráð Akraness bjargaði
keilunni“
Grundvöllur fyrir rekstri keilufélags
á Akranesi var brostinn vegna lélegs
ástands búnaðar. Fyrir lá að hætta
með keilu í bænum eða gera upp
búnaðinn. Segja má því að bæjarráð
Akraness hafi bjargað keilunni með
því að samþykkja gerð sex milljóna
króna framkvæmdasamnings við
Keilufélag Akraness.
Stórveldi leitar að bananahýði
„Grömsuðu í sorpi nágrannanna“
Óeinkennisklæddir starfsmenn
öryggisfyrirtækisins Securitas sinntu
eftirliti fyrir bandaríska sendiráðið í
Reykjavík. Sendiráðið hefur staðfest
að svipað eftirlit sé stundað hér á
landi og í Noregi og Svíþjóð. Meðal
verkefna þeirra var að fara í gegnum
sorpúrgang nágranna sendiráðsins.
Er fullreynt með umsókn Ís-
lendinga?
Vill Indverja í Öryggisráðið
Barack Obama, forseti Banda-
ríkjanna, er því fylgjandi að Indland
fái fast sæti í Öryggisráði Sameinuðu
þjóðanna. Hann greindi frá þessu í lok
heimsóknar sinnar til Indlands.
Með ástarkveðju frá 200
Kópavogi
„Ég er brjáluð, er maðurinn klikkaður?“
Heiður Hjaltadóttir, formaður
skíðadeildar Breiðabliks, tjáir sig um
hugmyndir borgarstjóra um að loka
Bláfjöllum. „Þetta er hætt að vera
fyndið, við erum hætt að hafa húmor
fyrir svona löguðu,” segir formaðurinn
sem biður borgarstjórann vinsamlega
að líta upp úr froðukaffinu og beina
sjónum út fyrir hundrað og einn.
Smiðjuvegi 34 |Rauð gata | www.bilko.is | Sími 557-9110
Jeppadekk
DEKK
PERUR
RAFGEYMAR
RÚÐUÞURKUR
BREMSUKLOSSAR
ALÞRIF & TEFLONBÓN
SMURÞJÓNUSTA
SÆKJUM OG SKILUM
Allt á einum stað!
Smiðjuvegi 34 |Rauð gata | www.bilko.is | Sími 557-9110
Umfelgun með afslætti
þessa dagana fyrir bæði fólksbíla og jeppa!
Frábært verð
Komdu núna og fáðu fría vetrarskoðun í leiðinni!
G
RA
FI
KE
R