Fréttatíminn - 12.11.2010, Page 48
48 heimili Helgin 12.-14. nóvember 2010
RÝMINGARSALA!
SELJUM ÖLL GARÐHÚSGÖGN, ÚTIELDSTÆÐI, BLÓMAPOTTA OFL.
MEÐ 40-70% AFSLÆTTI Í NOKKRA DAGA! FRÁBÆRT TÆKIFÆRI
TIL AÐ KAUPA VANDAÐA VÖRU Á PALLINN EÐA SVALIRNAR.
Opið:
Má. - Fö. 12 - 18 - Lau. 12 - 16 - Sun. 13 - 16
Kauptúni 3 • 210 Garðabær • S 771 3800 • www.signature.is
LAUGAVEGI 70 · SÍMI 534 0312 · www.village.is
Facebook: Village á Íslandi · Facebook: Miche bag Ísland
Heildsöludreifing – Sími: 847 2191
P arket unnið úr notuðum hljólbörðum kom sænska hönnunarteyminu Apoka-
lyps Labotek, eða ALT til stytting-
ar, á heimskortið þegar það hlaut
hönnunarverðlaun Wallpaper-
tímaritsins fyrr á þessu ári. Petra
Lilja og Jenny Norberg mynda
saman hönnunarteymið ALT og
heimsóttu þær Ísland á nýafstað-
inni Norrænni listahátíð og héldu
fyrirlestur undir heitinu Hönnun
fyrir Ragnarök. Þar var endurnýt-
ing og sjálfbærni til umfjöllunar
og er jafnframt inntakið í allri
þeirra hönnun. Þeim er annt um
umhverfið og finna til ábyrgðar
sem hönnuðir. Meðal annars þess
vegna ferðast þær um heiminn og
halda fyrirlestra og auk þess hafa
þær þróað eigin hönnunaraðferð
sem felst í því að hluturinn eða
varan sem þær hanna verður
að uppfylla ströngustu skilyrði.
Aðferðin er nefnd Þátíð Nútíð
Framtíð og felst meðal annars í
því að skoða vöru frá upphafi til
enda; hvaðan hráefnið kemur,
hvernig það bregst við ólíkum að-
stæðum og hvað verður um það
eftir notkun. Auk þess sem þær
vilja aðeins framleiða vörur sem
hafa daglegt notagildi, eins og til
dæmis gólfefni. ALT hefur gefið
hluta af þeim fjórum milljónum
hjólbarða sem Svíar henda á ári
hverju nýtt líf sem gúmmíparket
og blómapottar. Einnig búa þær
Petra Lilja og Jenny til sápu úr
endurunninni djúpsteikingarolíu
frá veitingahúsum í Suður-Svíþjóð
og lampa úr bráðnu plasti sem fer
til spillis þegar verið er að stilla
vélar til plastframleiðslu. Ein af
vinnureglum ALT er að leita ekki
langt yfir skammt að hráefni og
nota helst það sem er að finna í
nánasta umhverfi. Þá getur leit-
in að hráefni leitt þær á nýjar og
ókunnar slóðir.
Endurnýting og sjálfbærni
Apokalyps Labotek hlaut hönnunarverðlaun Wallpaper fyrir parket unnið úr notuðum hjólbörðum.
Hönnun fyrir ragnarök
Sænska hönnunar-
teymið Apokalyps
Labotek, sem
hannað hefur park-
et úr hjólbörðum,
sótti Ísland heim á
dögunum og ræddi
þar um endurnýt-
ingu og sjálfbærni í
hönnun.
Að setja plötu á fóninn er fjarri því að heyra fortíðinni til þótt heil kyn-
slóð fólks hugsi til hinna gömlu góðu daga þegar plötuspilara ber á góma.
Skífuþeytarar hafa um árabil notað plötuspilara og sumir telja ekkert skáka
hljómgæðum plötunnar. Nú virðist plötuspilarinn sækja í sig veðrið því
það virðist komið í tísku að eiga plötuspilara inni í stofu svo að hægt sé að
skella plötu á fóninn.
„Krakkar niður í fjórtán ára aldur sýna plötunni mikinn áhuga. Þeir
hafa þá rekist á plötusafn foreldra sinna niðri í geymslu og uppgötva fullt
af góðri tónlist. Það er sífellt að verða
algengara að ný tónlist sé gefin út
á vínyl og áhugi á hljómplötum
er mikill í dag og fer ört vax-
andi,“ segir Óðinn Valdimars-
son hjá Hljómsýn í Ármúla
sem selur meðal annars
handsmíðaða plötu-
spilara frá austur-
ríska fyrirtækinu
Pro-Ject. Hann bætir
jafnframt við að í dag seljist
plötuspilarar mun betur en geisla-
spilarar. „Það er ekkert sem toppar hljóm-
gæðin á plötunni.“
Fjólubláir og bleikir litatónar
Fjólubláa og bleika litatóna má
nú þegar sjá í nýjum vörulínum
og líklegt er að þeir sæki í sig
veðrið á nýju ári. Erfitt
er að segja til um hvað
veldur því að einn litur
verður vinsælli en
annar, en samkvæmt
sérfræðingum sem spá fyrir
um vinsældir lita er talið að
heimsástandið sé slíkt í dag að
fólk leiti að jafnvægi og merk-
ingu. Fjólublár er litur andans og
kallar á innri ró og því sá litur sem
táknar hugarfar flestra í dag.
Fjólubláir
litatónar, frá
vínrauðum til
dökkbleikra,
eru þeir litir
sem spáð er að
verði sterkastir í
heimilishönnun
á komandi ári.
Stólinn Pelican í dökkbleiku
eftir danska hönnuðinn Finn
Juhl. Hann er einkenn andi
fyrir hönnun Finns Juhl þar
sem megináherslan er lögð á
þægindi.
Babell-kökudiskurinn
frá Koziol hefur
verið framleiddur
í ótal litum. Þessi
er á litinn eins
og eggaldin og
það er einn af
nýju litunum
á Babell.
Kökudiskurinn fæst
hjá DUKA í Kringlunni og í
Kokku við Laugaveg.
Tannburstaglas
og sápudiskur úr
fjólubláu gleri
eftir íslenska
hönnuðinn Siggu
Heimis, fyrir IKEA.
FlowerPot-ljós í
fjólubláu eftir Verner
Panton. Flower-
Pot-ljósin fást
hjá Epal.
Bleikt swing-glas
frá Leonardo eftir
hönnuðinn Sebastion
Conran. Framleitt í
takmörkuðu upplagi.
Leonardo-glösin fást
í DUKA í Kringlunni.
Bleikt
drykkjar-
glas frá
Habitat.
HeiTT
Plata á fóninn
Lampinn
Blob sem
unninn er
úr bræddu
plasti sem
fellur til við
framleiðslu
á plasti.
Litríkt gúmmíparket úr endurunnum hjólbörðum.