Fréttatíminn - 12.11.2010, Síða 50
Þ essi ákveðni stíll hefur notið talsverðra vinsælda á Norðurlöndunum og oftast
má sjá nokkur sjúskuð húsgögn á
síðum danskra glanstímarita sem
fjalla um heimili og hönnun. Stíll-
inn er þó vandmeðfarinn því línan
er fín á milli þess að hann sé smart
eða hreinlega sóðalegur. Eitt
lykilatriðið til að láta hann ganga
upp er að velja húsgögn sem eru
falleg í laginu. Vel getur verið að
eitt slíkt leynist inni á heimilinu,
í geymslunni, á antíksölum eða
Góða hirðinum. Ágætt er að leita
að fyrirmynd áður en haldið er af
stað. Þær er að finna víða, bæði á
vefnum og í tímaritum og blöðum.
50 heimili Helgin 12.-14. nóvember 2010
Yfir 400 einfaldar og fljótlegar
uppskriftir úr hinum sívinsælu þáttum
Eldsnöggt með Jóa Fel.
Eldað mEð
Jóa FEl
Ný matreiðslubók
frá Jóa fel er væNtaNleg
á Næstu dögum
F
A
B
R
IK
A
N
Heimavinna nýtt verður notað
Ákveðinn sjarmi
er yfir gömlum
slitnum viðar-
húsgögnum þar
sem málningin er
farin að mást af og
viðurinn lætur á sjá.
Aðferð til að
sjúska húsgögn:
1Húsgagnið er málað. Fyrst er það þrifið vel til að losa alla fitu og jafnvel pússað létt yfir með
sandpappír. Húsgagnið er grunnað
með grunnmálningu og svo málað.
Athugið að fara eftir leiðbeiningum á
umbúðum um þurrktíma málningar-
innar.
2Þegar málningin er vel þornuð, eftir einn til tvo daga, er hægt að fara yfir með sandpappír
hér og þar. Ágætt er að sjá fyrir sér
fyrst hvar væri líklegt að húsgagnið
myndi sjúskast og ráðast á þá staði
með sandpappír. Mikilvægt er þó að
fara sér hægt og nudda ekki of fast.
3Til að láta viðinn sjúskast enn frekar er hægt að setja keðju inn í koddaver og slá í hús-
gagnið hér og þar til að fá dældir í það.
Einnig er hægt að þrýsta á viðinn með
smáu skrúfjárni eða pinna til að láta
líta út fyrir að skordýr hafi gert göt í
viðinn.
Önnur ágæt aðferð er að láta hús-
gagnið standa úti og láta það veðrast,
þannig gránar viðurinn svipað og
rekaviður, en hafa skal hugfast að
hann verður veikari fyrir vikið og
líklegri til að brotna upp. Þessi aðferð
virkar best á húsgögn sem eru úr
gegnheilum viði, eða á húsgögn úr
málmi sem hafa verið máluð.
Þæfð ull
Nú er bíómyndin Beðmál í borginni 2 komin út á DVD og þá er hægt
að sökkva sér ofan í hana með pásutakkann að vopni, frysta mynd-
ramma á skjánum og rannsaka það sem fyrir augu ber. Fatatískan er
vissulega grípandi en innanhússhönnunin er ekki síðri. Íbúð Carrie og
Big er veisla fyrir augað og uppspretta hugmynda, auk þess sem þar
er að finna hönnun sem vekur athygli. Þar á meðal er blár skemill sem
hefur þýðingarmiklu hlutverki að gegna í innilegri senu á milli Carrie
og Big. Skemillinn er verk finnska hönnuðarins Anne Kyyro Quinn
sem vinnur nánast einvörðungu með þæfða ull. Og að sjálfsögðu er blái
skemillinn úr þæfri ull. Í viðtali við listrænan stjórnanda myndarinnar
varð þessi skemill fyrir valinu því blái liturinn kallaðist á við bláu veggina í
gömlu íbúðinni hennar Carrie og vegna þess hvernig þæfða ullin sem saumuð
er utan um hann gerir hann einstakan og athyglisverðan. Anne Kyyro Quinn hannar
einnig púða úr þæfri ull og býr til úr henni stór listaverk sem sum hver þekja heilu veggina.
Beðmál í Borginni
Skemilinn Lola eftir hina
finnsku Önnu Kyyro Quinn
Sjúskuð
húsgögn
Ákveðinn sjarmi er yfir gömlum slitnum viðarhúsgögnum
þar sem málningin er farin að mást af og viðurinn lætur á
sjá. Með tímanum og við notkun ná húsgögnin þessu slitna
útliti en hægt er að flýta fyrir ferlinu með einfaldri aðferð,
sé óskað eftir þessu sérstaka útliti.
Þetta skrifborð er sérsmíðað en látið líta út fyri
að vera gamalt með sérstakri vinnsluaðferð.
Hugmynd
Pappírs-eldstæði
Draumurinn um arin í stofunni getur ræst á einfaldan og ódýran
máta með því að láta prenta stóra mynd af arni og koma fyrir í
stofunni. Reyndar fylgir sá ókostur að ekki er hægt að kveikja upp
í arninum. Kosturinn er sá að ódýrt er að innrétta með þessum
hætti, auðvelt að skipta út fyrir annað og eldhættan er engin.
Hugmyndina má útfæra á marga vegu og jafnvel nota ljósmyndir
innan úr kastölum eða bókasöfnum.