Fréttatíminn - 12.11.2010, Page 54
54 heimili Helgin 12.-14. nóvember 2010
Ef þú kemur að borða á Saffran á
sunnudögum með mömmu eða pabba
þá máttu velja þér rétt af matseðli
litla fólksins og færð hann frítt!
Gildir fyrir börn 10 ára og
yngri,
til 15. des. og eingöngu ef
borðað
er á staðnum með fullorðnum.
Og munið:
Skrímsli borða ekki krakka
sem borða hollan mat!
Allt í lit Úr svarthvítu í lit
Svarthvít heimsklassahönnun hefur nú tekið á sig nýjan
lit, eða öllu heldur liti, því í auknum mæli er farið að
framleiða þekkta hönnun í lit. Fyrirtækið Vola, sem
framleiðir meðal annars blöndunartæki fyrir bað og eld-
hús, býður nú upp á krana hannaða af Arne Jacobsen í
sterkum regnbogalitum. Sama gildir um húsgagnafram-
leiðandann ítalska CASSINA sem hefur hafið framleið-
slu á frægum LC2 -stólnum, hönnuðum af Le Cor-
busier, í sælgætislitum. Naumhyggja síðari
ára stendur nú inni á heimilum eins og hvítur
strigi og bíður þess að litirnir fylli rýmið
og útlit er fyrir að af nægu verði að taka.
Smáhlutir
og nostalgía
Jólastjaki með útlínur jólatrés vakti mikla athygli á nýafstaðinni
handverkssýningu Handverks og hönnunar í Ráðhúsi Reykjavíkur;
svo mikla að stundum myndaðist biðröð við stjakann. Guðný Haf-
steinsdóttir keramiker er hönnuður og skapari stjakans.
Guðný Hafsteinsdóttir á vinnustofu sinni í Kópavoginum.
Örsmáir vasar sem geta staðið við hvern disk á matarborðinu. Þessir eru hluti af
jólalínu Guðnýjar.
É g er afskaplega mikið fyrir smáa hluti,“ segir Guðný Hafsteinsdóttir keramiker.
„Ætli ég hafi það ekki frá dvöl-
inni í Danmörku en þar er algengt
að skreyta með smáhlutum.” Um
leið handfjatlar hún litla vasa sem
standa þrír saman á borði á vinnu-
stofunni hennar í Kópavoginum og
lýsir því hvernig þessir litlu vasar
geti staðið við matardiskana á jóla-
borðinu. Vinnustofan er björt og út-
sýnið sláandi. Vinnustofan er einn
af eftirlætisstöðum Guðnýjar, annar
er eldhúsið.
„Eldhúsið er einn af mínum eftir-
lætisstöðum og mér finnst mjög fal-
legt að skreyta borðið með mörgum
smáum hlutum, það er alltaf pláss
fyrir þá á borðinu og þeir
eru aldrei fyrir neinum.“
Jólastjakinn, sá af grip-
um Guðnýjar sem vakti
einna mesta athygli á
nýafstaðinni sýningu
Handverks og hönn-
unar í Ráðhúsi Reykja-
víkur, er reynar enginn
smágripur, eða hvað?
„Hann er samsettur úr
litlum kertastjökum
og smáfuglum, það er
hægt að taka stjakana
af grindinni sem þeir standa á og
nýta þannig á marga vegu,“ segir
Guðný.
Notagildi er henni hugleikið og
kallar hún eldhúslínu sína Not. „Not
er nostalgísk lína því ég sæki form
eldhúshluta úr æsku minni og nota
í mína hönnun auk þess að nota
mín eigin form í bland. Þegar ég
var barn voru þetta hversdagslegir
hlutir en í dag vekja þeir notalegar
tilfinningar auk þess sem ég átta
mig betur á fegurðar- og hönnun-
argildi þeirra. Köflótta mynstrið
sem gengur einnig eins og minni í
gegnum línuna er fengið úr gömlum
viskustykkjum sem enn eru fram-
leidd.“
Í hönnun sinni notar Guðný
viskustykki sem koma
frá vinnustof-
unni Ási og fær
þar jafnframt af-
ganga og notar
Köflótta mynstrið
sem gengur eins
og minni í gegnum
línuna er fengið úr
gömlum visku-
stykkjum sem enn
eru framleidd.