Fréttatíminn - 12.11.2010, Page 62

Fréttatíminn - 12.11.2010, Page 62
Hugarástand breytir miklu Skammdegismyrkrið hefur mikil áhrif á okk- ur. Það stýrir því hvernig við högum okkur og við reynum að berjast á móti því. Við þurfum að venjast þessu myrkri á hverju ári og erum alltaf jafn vonsvikin þegar að því kemur. En það er ekki bara myrkrið sem hefur þessi áhrif á okkur. Við vöknum á morgnana og kuldinn, snjórinn og já, myrkrið blasa við okkur. Þá fer skammdegisþunglyndið að láta á sér kræla. Eða við segjum svo. Það eru þessir ákveðnir þættir sem vinna saman. Við reynum að harka af okkur fyrstu vetrarmánuðina. Vælum örlítið og þráum breytingu í lífinu. Þótt desember sé í rauninni kaldasti og dimmasti mánuðurinn eru október og nóvember verstir. Í desember birtir nefnilega alltaf til og hátíðaskapið dregur okkur áfram. Þetta er hugarástand sem breytir svo miklu fyrir okkur. Á köldum vetrarmorgnum þráir maður ekk- ert heitar en að liggja lengur í rúminu og fara ekki fram úr nema til að hita sér kakó. En svo auðvelt er það ekki. Maður staulast fram úr í kuldanum, treður sér í þrennar buxur, byrgir sig upp að treflum, svo eru það kuldaskórnir og þykki góði kuldagallinn. Nei, reyndar ekki, en það væri óskandi. Við klæðum okkur í heilsárs fötin sem við notum sumar sem vetur. Látum okkur hafa það. Hneppum kannski úlpunni þétt að okkur. En það er það eina. Við Íslendingar gerum svo margt til að berjast á móti vetrinum og skammdegisþunglyndinu sem fylgir því. Við þurfum bara að finna jákvæðu leiðina og fylgja henni. Hugarástandið sem ég talaði um skiptir svo miklu máli. Ef við höfum eitt- hvað að hlakka til, mun það drífa okkur áfram gegnum kuldann, veturinn og myrkrið. 62 tíska Helgin 12.-14. nóvember 2010 tíska Kolbrún Pálsdóttir skrifar Mánudagur Kjóll: Keyptur á flóamarkaði af vinkonu Skór: H&M Undirpils: Spúútnik Sokkabuxur: Kvosin Þriðjudagur Peysa: Rokk og rósir Pils: Spúútnik. Skyrta: Spúútnik Miðvikudagur Kjóll: Spúútnik Sokkabuxur: Hagkaup Skór: Spúútnik Skart: Spúútnik Mikill innblástur frá sígaunum Unnur Andrea Einarsdóttir er 29 ára og hefur mikinn áhuga á því sem hún gerir í lífinu. Hún elskar vinnuna sína, tónlist, myndlist og finnst ekkert skemmtilegra en að dansa. „Minn stíll er rosalega margbreytilegur og ég tek alltaf svona tímabil. Hef alltaf gert það síðan ég man eftir mér. Einn daginn er ég í stuði til að klæðast fötum eins og í myndum frá sjöunda áratuginum og annan daginn er ég í algjöru Star Wars-stuði. Svo ef ég þarf að jarðtengja mig og fókusera, þá klæðist ég yfirleitt alltaf svörtu,“ segir Unnur og hlær. „Ég held að ég eigi ekki einhverja eina fyrirmynd sem ég lít upp til en hef undanfarið fengið mikinn innblástur frá sígaunum.“ Uppá- halds fataverslanir Unnar eru Spúútnik og Kíosk á Laugaveginum. „Fötin mín kaupi ég mest í Spúútnik en Kíosk er uppáhaldsbúðin mín. Endalaust úrval af flottum fötum þar!“ 5 dagar dress Föstudagur Kjóll: Fatamerkið Eygló. Fæst í Kíosk. Skinn: New York. Skór: Hagkaup Hláturinn lengir lífið! - Sá sem hlær mikið og lætur aðra hlæja enn meira, dregur að sér athyglina. Vísbending er gefin að þar er gaman að vera og mannfjöldinn dregst að. Komdu jákvæðu hlutunum frá þér og hrósaðu þeim sem eiga það skilið. Sjálfstraustið skiptir máli! - Reyndu alltaf að sýnast sjáfsörugg. Það virkar alltaf. Haltu augnsambandi þegar þú talar og brostu þínu nátt- úrulega brosi. Það ætti að nægja til að fólk taki eftir þér. Skapaðu þér þinn eigin stíl! - Þú gengur inn í herbergi fulls sjálfstrausti. Þér líður vel í föt- unum sem þú valdir þér í morgun, andlitsförðunin lítur vel út í dag og skart- gripirnir sem þú gengur með hentar þér vel. Þegar þér líður vel í eigin skinni, smitast það út og fólk tekur eftir þér. Litagleðin dregur að sér athygli! - Þegar aðrir klæðast svörtu, klæddu þig upp í lit. Litagleðin dregur að sér athyglina frá fjöldanum og þú verður ánægð með ákvörðun kvöldsins þegar þú heyrir að fólk talar um hversu vel þú leist út. Leyfðu húðinni að glóa! - Húðin er eitt af þeim atriðum sem flestir taka best eftir, við fyrstu kynni. Reyndu að hlúa að henni vel. Gættu þess hvað þú setur ofaní þig, æfðu oft og passaðu vel upp á húðina. En ef þetta mis- tekst og þú sinnir þessu ekki nægilega, getur þú notað rakakrem til að jafna úr húðinni, kinnalit og sólarpúður sem mun gera þig ferskari. Þú munt ljóma! Snyrtifyrirtækið Berndsen & Co sem ofurstílistinn og hárgreiðslumeistarinn Kalli Berndsen á, flytur inn nýjung sem farin er að slá rækilega í gegn hér á landi. Batiste Shampoo er þurrsjampó í spreybrúsum með frískum ilmi. Spreyjað er í rótina eða allt hárið og ekki er nauðsynlegt að skola það úr. Að hrista hárið eða greiða í gegnum það ætti að vera nóg! Sjampóið hentar vel fyrir þá sem eru á hraðferð og hafa takmarkaðan tíma. Frábær lausn til þess að hressa upp á rótina á augabragði. Spreyið leysir umframfitu úr hársverðinum sem gerir það að verkum að hárið virkar sem nýþvegið og gefur einnig flotta og náttúrulega lyftingu. Hægt er að fá sjampóið með mismunandi lykt og er hver gerðin annarri ferskari. ORIGINAL er lyktarlaust og hentar því vel fyrir bæði kynin og svo eru aðrar gerðir sem bera kókosilm og ávaxtailm og falla kannski fremur undir sjampó fyrir kven- menn. Einnig er hægt að velja sjampó eftir háralit, svo alltaf er hægt að finna það sem hentar manni best! Hressir upp á hárið á augabragði Hlutir sem gera þig eftirtektarverða! Sérhver kona ætti að vita hvernig vekja á athygli. Hvernig þú berð þig, hverju þú klæðist og hvað þú segir skiptir máli í samskiptum við aðra og smávægilegar og kynþokkafullar hreyfingar eru góð vísbending um persónuleika þinn. Hvað sér fólk við þig við fyrstu kynni? Fimmtudagur Jakki: Second hand- búð í New York Pils: Spúútnik Skór: Hagkaup.

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.