Fréttatíminn - 12.11.2010, Blaðsíða 66
66 dægurmál Helgin 12.-14. nóvember 2010
29 vítamín og steinefni · 18 aminósýrur · Blaðgræna · Omega
GLA fitusýrur · SOD eitt öflugasta andoxunarensím líkamans
Lífrænt Fjölvítamín
Eingöngu lífræn næringarefni tryggja betri upptöku og nýtingu í líkamanum.
www.celsus.is
Spirulina er blágrænir þörungar. Til að fá jafnmikið af nokkrum
völdum næringarefnum og í dagskammti af Lifestream Spirulína
þarf að borða:
· 7 gulrætur (betakarotín)
· 1 skál af fersku spínati (járn)
· 1 skál af híðishrísgrjónum (kalíum)
· 1 glas af mjólk (kalk)
· 125gr. nautakjöt (prótín + B12 vítamín)
· 30gr. hveitigrassafa (blaðgræna)
· 1 hylki Kvöldvorósarolía (GLA fitusýrur)
Súrefnistæmir umbúðirnar til að vernda næringarefnin.
Lifestream þörungarnir eru ómengaðir vegna þess að þeir eru ræktaðir í
ferskvatni eftir ströngum gæðastaðli. ISO9001 · ISO14001
Aukið úthald,
þrek og betri líðan
Styrkir fljótt líkamann gegn kvefi og flensum
WHO Alþjóðlega Heilbrigðisstofnunin telur hágæða Spirulina ákjósanlegan
næringarauka fyrir börn og fullorðna. Mörg hundruð rannsóknir hafa verið
gerðar á Spirulina og fjöldi þeirra hefur birst í virtum vísindaritum.
Lifestream Spirulina eflir einbeitingu, gefur orku,dregur úr pirringi, sleni
og sætindaþörf. Gott fyrir alla sem eru í vinnu, námi og vilja halda línunum í lagi.
Hjálpar líkamanum að losna við þungmálma, geislun og aukefni.
Greinilegur munur eftir
nokkra daga inntöku
Hress og hraust
í skóla og vinnu með
Spirulina!
Lifestream Spirulina gefur mér mjög mikla orku en ég finn ótrúlega mikinn mun þegar ég tek það inn. Þó svo að ég borði mjög hollt fæði er það Spirulina sem gerir mér kleift að hafa orku í allt sem þarf að gera en ég er í skóla, vinnu, líkamsrækt og æfi fótbolti. Hef miklu meiri úthald og er hressari á morgnana.
Daði R. Kristleifsson, 18 ára
Fæst í apótekum, heilsubúðum og Fríhöfninni
Y rsa er að láta gera gagnger-ar breytingar á húsi sínu við Selbraut á Seltjarnarnesi og
raskið er slíkt að fjölskylda hennar
þurfti að flytja sig um set á meðan
heimilið er tekið alveg í gegn. „Það
var kominn tími á framkvæmdir
og nauðsynlegt að gera húsið upp.
Við höfðum ekki sinnt viðhaldi á
húsinu sem skyldi og erum nú að
gjalda fyrir það dýru verði,“ segir
Yrsa. „Við búum í íbúð sonar míns
meðan á lagfæringunum stendur.
Vinnan við húsið byrjaði í vor og allt
tekur þetta sinn tíma en ég vonast
til að komast heim fyrir jól.“ Yrsa
segir að sú áætlun standi þó tæpt
og það verði því ljóst að tíminn fyrir
jólaundirbúninginn verði naumur.
„Það verða engar þrjú þúsund perur
á jólatrénu þetta árið, svo mikið er
víst.“
Yrsa er hins vegar á sínum rétta
stað í jólabókahasarnum og blandar
sér í slaginn með bókinni Ég man
þig. Söguefnið kallast á vissan hátt á
við aðstæður Yrsu núna en í bókinni
segir hún frá ungu pari og vinkonu
þess sem fer á útmánuðum til Hest-
eyrar í Jökulfjörðum þar sem þau
ætla að gera upp gamalt hús og opna
þar gistiheimili næsta sumar. Á
sama tíma er ungur geðlæknir, sem
nýfluttur er til Ísafjarðar, að reyna
að púsla saman lífi sínu eftir að hafa
orðið fyrir óbærilegum missi. Þre-
menningana fer fljótt að gruna að
þau séu ekki ein í eyðiþorpinu á
Hesteyri og læknirinn dregst inn
í rannsókn á sjálfsvígi eldri konu á
Súðavík.
Þóra lögfræðingur er f jarri
góðu gamni en Yrsa ákvað að gefa
henni smá frí og þótt hér sé samt
um spennusögu að ræða fetar Yrsa
sig nær hrolli og draugagangi. „Ég
hélt að það yrði svo gaman að búa til
nýjar persónur en ég saknaði Þóru
mikið við skrifin. Það er samt viss
áskorun fólgin í því að fást við nýtt
fólk og ekki má maður festast alveg
í því sama,“ segir Yrsa um Ég man
þig sem er öðrum þræði drauga-
saga. Aðdáendur Þóru lögfræðings
þurfa ekki að örvænta og hún mun
láta að sér kveða í næstu bók Yrsu
sem verður væntanlega skrifuð í
nýju gömlu húsi
É g er sjónvarpsfíkill en hef samt aldrei séð þátt af Sigt-inu. Satt best að segja hafði
ég ekki mikla trú á karakternum.
Því fóru þættirnir fram hjá mér
á sínum tíma. Það var því með
ákveðnum fordómum sem ég horfði
á DVD-útgáfuna af Mér er gaman-
mál, samsafn þáttanna sem sýndir
voru nýverið á Stöð 2.
Borgarstjórinn, Jón Gnarr reið á
vaðið sem viðmælandi Frímanns.
Mér leið svolítið eins og þegar ég
sá þættina Limbó um árið. Ég var
ekki tilbúinn. Grínið var örugglega
gott en ég skildi það ekki. Ég var
fastur í öðrum húmor. Alveg eins
og í Limbó þegar Davíð Þór hótaði
Hjálmari Hjálmarssyni að hann
myndi drepa hann leyndist súr
hrútspungur í pöntuninni hans.
Brjálæðislega gott stöff sem ég
bara skildi ekki. Ég var enn fastur í
gamla góða revíuhúmornum þeirra
Spaugstofumanna.
Það var því með blendnum til-
finningum sem ég horfði á þátt
númer tvö. Þar var komið að meist-
ara Frank Hvam. Þátturinn rúllaði
af stað og ég þorði varla að borða
poppið mitt. Af einskærum ótta við
að ég myndi hlæja svo mikið að það
festist í hálsinum á mér og eiginkon-
an þyrfti að halda mér öfugum fram
af svölunum og slá í bakið á mér.
Þátturinn rúllaði af stað og gott ef
ég var ekki aðeins byrjaður að fatta
grínið en hafði látið poppið kólna
að óþörfu. Svo um miðbik þáttarins
hugsaði ég mér að setja á pause og
poppa ferskan skammt en lét það
vera og guð minn góður! Það var
eins gott því að það sem kom á eftir
var svo mikil snilld að ég hef bara
ekki upplifað annað eins. Án þess
að skemma neitt fyrir neinum full-
yrði ég að lokakafli þáttarins var
einfaldlega það fyndnasta sem ég
hef séð á lífsleiðinni.
Þættirnir eru allir góðir og vel
gerðir, kvikmyndatakan er lifandi
og skemmtileg, tónlistin og leikur-
inn frábær. Það sem þáttaröðin líður
svolítið fyrir er að við þekkjum ekki
nema þessa tvo fyrrnefndu grín-
ara. Þetta gerir þá líka mjög góða
til útflutnings. Því hver þjóð mun
hampa sínum þætti og kynnast um
leið rugluðum grínfrændum sínum
og einum nöttara frá Englandi.
Haraldur Jónasson
Mér er gamanmál
dvd-dómur: mÉr er gamanmál
Lokakafli þáttar-
ins var einfaldlega
það fyndnasta
sem ég hef séð.
Yrsa sigurðardóttir skrifaði draugasögu og stendur í ströngu
Rithöfundur rústar hús
Yrsa Sigurðardóttir er einn vinsælasti rithöfundur landsins en glæpasögur hennar um lög-
fræðinginn Þóru hafa gert það gott á liðnum árum. Yrsa stendur í ströngu um þessar mundir en
auk þess að senda frá sér nýja bók er hún að endurbyggja heimili sitt.
Yrsuhús. Yrsa þurfti að taka á viðhaldi
á heimili sínu og gengur heldur betur
vasklega til verks. Mynd/Hari
Yrsa býður upp á draugagang á Vestfjörðum þetta árið en Þóra lögfræðingur mun láta á sér kræla fyrr en síðar.
Ljósmynd/Kristinn Ingvarsson
Kim verslaði
grimmt í
New York
Þokkadísin Kim Kardashi-
an náðist á mynd þar sem
hún var í verslunarleiðangri
í New York á miðviku-
daginn. Kardashian var í
New York til að kynna nýtt
greiðslukort frá Mastercard
sem kennt er við hana og
systur hennar. Á myndinni
má sjá að hún hefur komið
við í vöruhúsinu Jeffrey sem
er vöruhús fína fólksins
í New York og Atlanta.
Ekki fylgir sögunni hvað
hún keypti en í kynningu
á heimasíðu fyrirtækisins
segir að boðið sé upp á
einstaka verslunarupplifun
þar sem aðeins það besta
í heimi tískunnar sé á boð-
stólum hverju sinni.