Fréttatíminn - 12.11.2010, Side 70
70 dægurmál Helgin 12.-14. nóvember 2010
VILT ÞÚ
VITA HVERS
VIRÐI EIGNIN
ÞÍN ER Í DAG?
PANTAÐU FRÍTT
SÖLUVERÐMAT ÁN
SKULDBINDINGA!
HRINGDU NÚNA
Bær820 8081
Sylvia Walthers // best@remax.is
Brynjólfur Þorkelsson // 820 8080
Rúnar S. Gíslason
Lögg. fasteignasali.
H ugmyndin um að opna Laundro-mat Cafe hér heima hefur nú komið upp áður. Einhverra
hluta vegna varð aldrei neitt úr því en nú
er loksins komið að því,“ segir Friðrik
Weishappel sem stóðst ekki mátið þegar
húsið við Austurstræti 9 losnaði óvænt.
„Þetta húsnæði er ofboðslega fallegt
þannig að ég gat ekki annað en slegið
til enda veit ég að Laundromat á eftir að
smellpassa inn í þetta umhverfi.“
Egill Jacobsen opnaði verslun sína
árið 1906, flutti hana í húsið við Aust-
urstræti 9 1921 og þar var hún allt til
ársins 1997 þegar henni var lokað.
„Þetta frábæra hús hefur heillað mig
alveg frá því ég var barn og það hýsti
vefnaðarvöruverslunina. Þannig að ég
er ofsalega stoltur af því að fá að hanna
Laundromat þarna inn. Það gleður mig
líka að fá tækifæri til að taka til hend-
inni í Reykjavík aftur,“ segir Friðrik
sem er nú með iðnaðarmenn á fullu
við að koma húsinu í stand. „Þetta
gengur ofsalega vel og hratt en ég vil
gera þetta mjög vel,“ segir Friðrik sem
stendur ekki einn í þessum stórræðum.
“Strákarnir sem eiga veitingastaðina
Austur og Vegamót eru með í þessu og
munu sjá um reksturinn á Laundromat
í Reykjavík.”
Skemmtistaðir á borð við Rex og
Jacobsen bar hafa starfað í húsinu en
óhætt er að segja að töluverð breyting
verði á starfseminni með tilkomu La-
undromat. „Við munum hafa opið frá
klukkan átta á morgnana og þetta verð-
ur alveg jafn barnvænn staður og úti í
Köben. Þetta er alltof fallegt hús til þess
að hafa það lokað á daginn og opna það
ekki fyrir fólki fyrr en um eða upp úr
miðnætti.“
Friðrik hefur rekið Laundromat í
Danmörku í sex og hálft ár og segir að á
þeim tíma hafi tugþúsundir Íslendinga
komið á staðinn, þekki matseðilinn og
viti hverju þeir mega eiga von á þeg-
ar staðurinn verður opnaður í Austur-
stræti. Friðrik segir að þótt húsnæðið
sé gerólíkt staðnum í Kaupmannahöfn
muni fólk vita nákvæmlega hvar það er
statt ef það þekkir Laundromat. „Þarna
verða sömu innréttingarnar og sömu lit-
irnir. Þvottahúsið verður niðri í kjallara
og þar verður líka risastórt barnasvæði
með stóru bókasafni.“
laundromat Cafe opnað í reykjavík í vor
mótorHjól royal enfield-klúbburinn
Frikki flytur hug-
myndina heim
Friðrik Weishappel hefur rekið kaffihúsið Laundromat Cafe í Kaupmannahöfn við miklar vin-
sældir um árabil. Hann er nú kominn á fulla ferð við að innrétta Laundromat í Austurstræti 9 í
því fornfræga húsi sem hýsti verslunina Egill Jacobsen í tæp 80 ár.
Friðrik ætlar að leggja mikið upp úr því að fjölskyldufólki líði vel á Laundromat í Reykjavík.
Þ etta er klúbbur sem varð til í sumar,“ segir Guðmundur Már Ástþórsson, formaður
Royal Enfield-klúbbsins, í samtali við
Fréttatímann. Royal Enfield er mótor-
hjólategund sem á rætur að rekja til
Bretlands og Indlands og hefur ekk-
ert breyst frá því fyrsta hjólið var
smíðað árið 1955. Klúbburinn telur
rúmlega tíu manns og segir Guð-
mundur Már að stefnan sé að fara í
pílagrímsferð til Indlands í febrúar.
Draumur allra Royal Enfield-manna
sé að komast upp á hæsta veg ver-
aldar, Khardung La, sem er í 5.359
metra hæð og vonast Guðmundur
Már til að komast þangað einn góðan
veðurdag.
Aðspurður segir Hugi Hreiðars-
son, einn af meðlimum klúbbsins,
að það sé draumur að keyra hjólið.
„Þetta er svo mjúkt, sérstaklega á
möl, og gríðarlega rásfast. Það er
enginn ógnarkraftur og hámarks-
hraðinn er rétt um 100
kílómetrar. Þetta er af-
skaplega þægilegt hjól,“
segir Hugi.
Þegar mótorhjóla-
klúbbar berast í tal
koma fyrst upp í hug-
ann klúbbar eins og MC
Iceland, sem er við það
að ganga í Hells Angels.
Guðmundur Már segir
Royal Enfield-klúbb-
inn ekki vera á þeim
slóðum. „Við erum
ekki með nein tengsl
við Hells Angels,“ segir
hann og hlær. -óhþ
„Við erum ekki með nein
tengsl við Hells Angels“
Systurnar Þóra og
Kristín Tómasdætur
voru gestir Sigríðar
Arnardóttur á sunnu-
dagsmorgni á Rás 2 fyrir
viku. Tilefnið var útkoma
bókarinnar Stelpur!
eftir þær systur og Sirrý
bauð upp á stelpnalínu i
beinni þar sem Þóra og
Kristín sátu fyrir svörum,
tilbúnar að leysa hverrar
stúlku vanda. Glöggir
hlustendur þóttust hjá
einum innhringjaranum
bera kennsl á kerlingar-
rödd sem Jón Gnarr
hefur ítrekað brugðið
fyrir sig í Tvíhöfða og
Fóstbræðrum. Kona
þessi, sem liggur undir
grun um að hafa verið
sjálfur borgarstjórinn,
spurði hvort til væri
sérstakt sjampó fyrir
konur til þess að þvo sér
á viðkvæmum stöðum,
áður en hún skellti á.
Jón hefur farið nokkuð
í taugarnar á Sóleyju,
stóru systur Þóru og
Kristínar, í borgarstjórn
og ekki þykir ólíklegt
að hann hafi verið í
símahrekkjastuði árla á
sunnudaginn.
Símahrekkur borgarstjóra?
Herdís bind-
ur söguna
saman
Mikið kveður að leik-
konunni ástsælu, Herdísi
Þorvaldsdóttur, í heim-
ildarmynd um uppsetningu
Benedikts Erlingssonar á
Íslandsklukkunni og 60 ára
sögu Þjóðleikhússins sem
sýnd verður í Ríkissjón-
varpinu á sunnudagskvöld.
Opnunarsýning leikhússins
fyrir 60 árum var einmitt
Íslandsklukkan og þá lék
Herdís, Snæfríði Íslandssól.
Herdís er enn á fjölunum
og svo skemmtilega vill til
að hún leikur í Íslands-
klukkunni um þessar
mundir og er nú í hlutverki
móður Jóns Hreggviðs-
sonar. Þannig bindur hún
saman sögu Þjóðleikhúss-
ins með aðeins öðruvísi
snærisspotta en þeim sem
Jón Hreggviðsson var sak-
aður um að hafa stolið.
Hannes og
Pálmi sáu
Vesturport
Fjölmargir Íslendingar hafa
lagt leið sína á sýningar
leikhópsins Vesturports á
Faust í London í haust. Meðal
þeirra sem hafa heiðrað
leikhópinn með nærveru
sinni eru útrásarvíkingarnir
Hannes Smárason og Pálmi
Haraldsson. Þeir félagar
virtust kunna vel að meta
íslenskan leiklistarútflutning
en létu lítið fyrir sér fara á
veitingastaðnum í leikhúsinu
að sýningu lokinni.
Það gleður mig
líka að fá tæki-
færi til að taka
til hendinni í
Reykjavík aftur.
Þetta
er svo
mjúkt og
rásfast.