Fréttatíminn - 08.10.2010, Blaðsíða 8
Guðrún Jónsdóttir
Svik fremur en
nauðgun
„Maðurinn hefur augljóslega svikið
konuna en ég hef ekki klára sýn á
hvort skilgreina á það sem nauðgun,“
segir Guðrún Jónsdóttir, starfskona
Stígamóta, um kanadíska dómsmálið
sem hún segir fjarri því að vera klass-
ískt viðfangsefni samtakanna. “Það er
nauðgun að gera manneskju eitthvað
sem hún vill ekki, að virða ekki kyn-
frelsi hennar. Þetta er hins vegar
eitthvað sem ég hoppa ekki á, mér
finnst ekki sjálfgefið að tala um
þetta sem nauðgun, heldur svik,
en þá erum við farin að tala um
annað.”
Kynferðisleg misnotkun eða svik í ástum
Ástin á piparsveininum dofnaði þegar í ljós kom að hann hafði sagt rangt til nafns, var kvæntur og tveggja barna faðir
Jónas
Haraldsson
jonas@
frettatiminn.is
Kanada Eru KynmöK á fölsKum forsEndum rEfsivErð?
8 fréttir Helgin 8.-10. október 2010
Ef kynmök eru stunduð á fölsk-
um forsendum, hver er þá staða
þess sem blekktur var? Kanadískur
dómstóll stendur frammi fyrir því að
úrskurða um það hvort blekkingin
hafi verið nauðgun, kynferðislegt
misneyti eða svik í ástum – en hið
síðastnefnda er varla refsivert.
„Ég gaf Kam Ali samþykki mitt til
kynmakanna, piparsveini sem var
að leita að varanlegu sambandi,“
segir Minki Basu. Hún hafði kynnst
hinum meinta einhleypa manni á
netinu en komst að því eftir fimm
mánaða samband að hann var
kvæntur og tveggja barna faðir –
og hét alls ekki Kam Ali heldur Kaz
Akbar.
Minki sætti sig ekki við lygarnar
og kærði manninn, sagði hann hafa
brotið gegn sér og hverjar samfarir
þeirra kynferðislega árás af hans
hálfu. Kam, eins og hann kallaði sig
þá, hafi vísvitandi villt á sér heim-
ildir í því skyni að táldraga hana.
Ljóst er að konan gekk viljug til
samræðisins en á forsendum sem
hún sættir sig ekki við eftir að hið
sanna kom í ljós um manninn. Spurt
er hvers eðlist svik geti verið svo
saknæm teljist; að ljúga til um aldur,
atvinnu eða trú, svo dæmi séu tekin.
Ísraelskur dómstóll komst
t.d. nýlega að þeirri niður-
stöðu að um „svika-nauðg-
un“ hefði verið að ræða þeg-
ar kona, gyðingur, féllst á
samræði með manni sem
sagðist vera gyðingur en
eftir á kom í ljós að
um Palestínumann
var að ræða.
F ólk grét á Húsavík þegar það frétti að skera ætti niður fé til Heilbrigðisstofnunar Þing-
eyinga um 40%, segir Bergur Elías
Ágústsson, sveitarstjóri Norður-
þings. Hann er reiður: „Eldra fólk er
með áhyggjur, börn koma í skólann
með áhyggjur af pabba og mömmu.
Hver kemur svona fram við fólk?
Þessi ákvörðun hefur haft hræði-
leg áhrif.“
Á annað þúsund Þingeyingar
funduðu um niðurskurð fjárfram-
laga til stofnunarinnar um fjörutíu
prósent, sem þýðir að segja þarf
upp 60 til 70 starfsmönnum. „Eng-
inn fyrirvari, ekkert samráð. Þessu
er dengt framan í samfélagið og við
það verður ekki unað,“ segir Bergur
Elías.
Leggja byggðina í rúst
Guðrún Á. Guðmundsdóttir, yfir-
hjúkrunarfræðingur á Heilbrigðis-
stofnuninni, segir áfallið skelfilegt:
„Við erum gáttuð, hissa, sorgmædd
og öskureið
„Þeir sem missa vinnuna munu
lenda á atvinnuleysisbótum. Ein-
hverjir munu flytja úr landi. Sér-
fræðimenntaðir fara. Við missum
fagþekkingu og menntun burtu. Við
eigum hér hús og komumst ekki í
burtu. Við okkur blasir gjaldþrot,“
segir Guðrún sem hugsar þó fyrst
og fremst um sjúklinga sem nú þurfi
að senda heim og þá sem ekki verði
hægt að sinna: „Hér eru biðlistar
en samt ber okkur að fækka rým-
um og senda sjúklinga heim,“ segir
hún. “Við eigum skilið að horft sé
framan í okkur og að við fáum svör
og útskýringar og getum þá fært
rök fyrir því af hverju þetta má ekki
gerast.”
Svæðinu veitt náðarhögg
Í grein sem Steingrímur J. Sig-
fússon fékk birta í þingeyska
fréttamiðlinum Skarpi á Húsavík
í febrúar 2007 tíundaði hann tæki-
færi Þingeyinga, önnur en álver á
Bakka, og á toppnum trónaði Heil-
brigðisstofnunin, sem mætti efla.
„Það er mitt mat að Steingrímur sé
úr takti við samfélagið hér,“ segir
Bergur Elías. „Þessari vitleysu þarf
að afstýra strax.“ Undir það tekur
Guðbjartur Ellert Jónsson, fjármála-
stjóri sveitarsfélagsins: „Fólk hefur
barist áfram og reynt að byggja upp
atvinnulífið. Í hvert skipti er lagður
steinn í götu þess. Þetta er náðar-
högg sem á að veita samfélaginu
hér.“
Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
gag@frettatiminn.is
Fólk grét á Húsavík
Þingeyingar eru slegnir yfir þeirri stefnu ríkisstjórnarinnar að skera niður fjárframlög til
Heilbrigðisstofnunarinnar um 40%. Gjaldþrot blasir við þeim sem ekki flýja land og samfélagið er
lagt í rúst, segir yfirhjúkrunarfræðingur. Sveitarstjórinn harmar samráðsleysið.
ÞinGEyinGar bErJast fyrir HEilbriGðisstofnuninni
Þitt sjónarmið á erindi
Framboðsfrestur rennur út á hádegi 18. október 2010
Stjórnlagaþing - Borgartúni 24 – 105 Reykjavík – sími 422-4400 - www.stjornlagathing.is - www.kosning.is - www.landskjor.is
Stjórnlagaþing 2011
Guðrún Jónsdóttir,
starfskona Stígamóta.
Ljósmynd/Hari
Guðrún Á. Guðmundsdóttir horfir á
eftir 85% sviðsins sem hún stýrir, verði
af niðurskurðartillögum fjárlaga ríkis-
stjórnarinnar. Hér er hún á Heilbrigðis-
stofnun Þingeyinga.
Hætt að taka á móti
börnum í Eyjum
Hætt verður að taka á móti börnum í Vest-
mannaeyjum gangi niðurskurðaráform
ríkisstjórnarinnar eftir. Nýir Eyjamenn fæðast
þá uppi á fastalandi, segir í Eyjafréttum. Þar
er greint frá því mati Gunnars K. Gunn-
arssonar, framkvæmdastjóra Heilbrigðis-
stofnunarinnar í Vestmannaeyjum, að loka
verði skrifstofu, hætta fæðingarþjónustu og
segja upp allt að þrjátíu starfsmönnum til
að mæta niðurskurðinum. Bæjarráð Vest-
mannaeyja fordæmir niðurskurðarhugmynd-
irnar og ætlar að óska eftir öryggisúttekt frá
landlækni í ljósi landfræðilegrar sérstöðu
eyjanna.
Þrjár heilbrigðisstoðir
riða til falls
Grunnþjónusta við íbúa verður stórlega skert
ef fram fer sem horfir, segir m.a. í ályktun
bæjarstjórnar Reykjanesbæjar sem allir
bæjarfulltrúar skrifuðu undir. Þar er harðlega
mótmælt fyrirhuguðum niðurskurðartil-
lögum í heilbrigðisþjónustu á Suðurnesjum.
Einnig segir þar að þrjár stoðir og stolt í
starfsemi Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja
(HSS) séu að bresta; fæðingardeild og
sjúkradeild auk þess sem heimahjúkrun riði
til falls, að því er Víkurfréttir greina frá. Hljóð
mótmæli voru boðuð vegna niðurskurðarins í
skrúðgarðinum við HSS í gærkvöld.
Skelfing í Skagafirði
Það er mikill ábyrgðarhluti af hálfu stjór-
nvalda að leggja fram svo óraunsæjar tillög-
ur sem aukinheldur valda ótta og skelfingu
í þeim byggðarlögum þar sem harðast er
borið niður, segir í tilkynningu sveitarstjórnar
Skagafjarðar sem mótmælir harðlega þeirri
aðför sem boðuð er í fjárlagafrumvarpi
næst árs, eins og þar segir. Þar kemur fram
að Heilbrigðisstofnuninni á Sauðárkróki er
ætlað að taka á sig um 30% niðurskurð á
næsta ári til viðbótar við 11% niðurskurð á
yfirstandandi ári. Sveitarstjórnin segir að
stofnunin muni ekki halda velli í núverandi
mynd ásamt því að stór hluti af þeirri
þjónustu sem hún hefur veitt verði aflagður.
Stjórn Félags ungra framsóknarmanna í
Skagafirði mun standa fyrir táknrænum
mótmælum fyrir utan sjúkrahúsið á Sauðár-
króki á morgun, laugardag kl. 16, að því er
segir í tilkynningu stjórnarinnar -jh
Aðför að Vestfjörðum
Vestfirðingar segja tillögur ríkisstjórnarinnar um 40% niður-
skurð á sjúkrahúsþjónustu hjá Heilbrigðisstofnun Vestfjarða
aðför að öryggi og lífsgæðum íbúa á Vestfjörðum, að því er
fram kemur á bb.is. Bolungarvíkurkaupstaður, Ísafjarðarkaup-
staður og Súðavíkurhreppur efndu til opins borgarafundar
í íþróttahúsinu Torfunesi í gærkvöld. Í ályktun sem lögð var
fyrir fundinn var alfarið hafnað þeim stórfellda niðurskurði á
heilbrigðisþjónustu á Vestfjörðum sem lögð var til í fjárlaga-
frumvarpinu og þess krafist að fallið yrði frá honum.
40%
niðuRSKuRðuR
aðför að öryggi og
lífsgæðum íbúa á
Vestfjörðum
Borgarafundur Allt að fimmtán hundruð sátu fund um mikinn niðurskurð hjá Þingeyingum. Fólk er gáttað, hissa, sorgmætt og
öskureitt yfir áformunum. Ljósmynd/Heiðar Kristjánsson/Skarpur