Fréttatíminn - 08.10.2010, Blaðsíða 66
54 dægurmál Helgin 8.-10. október 2010
Hafðu samband
sími 444 7000 • arionbanki.isVerðbréfaþjónusta Arion banka
er söluaðili sjóða Stefnis.
Stefnir - Ríkisvíxlasjóður.
Traustur kostur fyrir
einstaklinga og fyrirtæki.
• 90% ríkisvíxlar og ríkisskuldabréf / 10% innlán
• Víxlar og stutt skuldabréf með ábyrgð íslenska ríkisins.
Sjóðnum er heimilt að fjárfesta allt að 10% í innlánum.
• Litlar sveiflur í ávöxtun og enginn binditími.
• Hentar þeim sem vilja fjárfesta í þrjá mánuði eða lengur.
• Lágmarkskaup 5.000 kr.
• Enginn munur á kaup- og sölugengi.
Stefnir - Ríkisvíxlasjóður er verðbréfasjóður skv. lögum nr. 30/2003, um verðbréfasjóði og fjárfestingarsjóði. Rekstrarfélag sjóðsins er Stefnir hf. Vakin er sérstök athygli á að almennt fylgir áhætta fjárfestingu í hlutdeildarskírteinum
sjóða, t.d. getur fjárfesting rýrnað eða tapast að öllu leyti. Fyrri ávöxtun sjóða gefur ekki áreiðanlega vísbendingu um framtíðarávöxtun þeirra. Nánari upplýsingar um sjóðinn, þ.á m. nánari upplýsingar um áhættu við fjárfestingu
í hlutdeildarskírteinum hans, má finna í útboðslýsingu eða útdrætti úr útboðslýsingu sjóðsins, sem nálgast má á www.arionbanki.is/sjodir.
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
A
R
I
49
43
3
03
/1
0
Kynntu þér sjóðina hjá starfsfólki
verðbréfaþjónustu Arion banka
í síma 444 7000, í næsta útibúi
eða á arionbanki.is/sjodir
Fatahönnun: ELM opnar vErsLun í norEgi
Þrælar útlitsdýrkunar
Er fræga fólkið að fara yfir um í lýtaaðgerðum? Við fáum æ
oftar fréttir af því að heimsþekktar stjörnur hafi breytt útliti
sínu með einum eða öðrum hætti. Hinir ýmsu líkamspartar
taka breytingum. Ýmist er strekkt, fjarlægt eða einhverju
bætt við með sílíkonfyllingum.
Eru útlitskröfur orðnar svo miklar að lýtaaðgerðir eru
nauðsynlegar til að standast þær?
Fegurstu konur í heimi á borð við Megan Fox, Heidi Montag
og Blake Lively hafa líklega allar komist í kynni við hnífinn,
að minnsta kosti hefur útlit þeirra breyst verulega á undan-
förnum árum eins og þessar myndir bera með sér. -KP
ÚtLitið og Fræga FóLkið
FYRIR
EFTIR
FYRIR
EFTIR
FYRIR
EFTIR
Lj
ós
m
yn
d/
G
et
ty
Lj
ós
m
yn
d/
G
et
ty
Lj
ós
m
yn
di
r/
G
et
ty
Blake Lively
Heidi Montag
Megan Fox
Líf og fjör þegar
ELM opnaði í Ósló
„Það eru fáir í útrásarhugleiðingum núna en
við sjáum tækifæri í kreppunni líka,“ segir
Kristín Ýr Hrafnkelsdóttir, framkvæmda-
stjóri ELM design, sem opnaði glæsilega
fataverslun í Ósló um mánaðamótin. Hún segir
erlent ferðafólk kaupa mikið í verslun ELM á
Laugavegi og þar sem norskar konur hafi verið
sérstaklega áberandi í þeim hópi hafi Ósló
orðið fyrir valinu fyrir fyrstu smásöluverslun
ELM í útlöndum.
Undanfarin ár hafa allt að 80 prósent af tekjum
félagsins komið af útflutningi og vörur ELM
hafa verið á boðstólum hjá tugum vel þekktra
verslana í Evrópu og Bandaríkjunum.
Mikið var um
dýrðir þegar
ELM opnaði í
Ósló og meðal
annars sýndu
dansarar listir
sínar í fötum frá
ELM við undirleik
fiðluleikarans
Hjörleifs Vals-
sonar sem
er búsettur í
Noregi.
Norska
fyrirsætan Mona
Grundt er eitt-
hvert þekktasta
nafnið í norskum
tískuheimi og
koma hennar í
opnunarhófið
tryggði mikla
athygli norskra
fjölmiðla.
Kristín, framkvæmdastjóri ELM, ásamt hönnuðunum Ernu
Steinu, Lisbet og Matthildi, í miðri versluninni sem er á
besta stað á Øvre Slottsgate 12, hliðargötu út frá Karl
Johan, einni helstu verslunargötu Óslóar.