Fréttatíminn - 08.10.2010, Blaðsíða 23

Fréttatíminn - 08.10.2010, Blaðsíða 23
VILDARÞJÓNUSTA BYRS Heilsan skiptir öllu máli. Þess vegna fá viðskiptavinir Vildarþjónustu Byrs frítt vikukort hjá Hreyfingu og 20% afslátt af Betri aðild með margs konar fríðindum. Komdu í Hreyfingu – glæsilega líkamsræktar- stöð með einstakri Blue Lagoon slökunaraðstöðu. Vertu í Vildarþjónustu Byrs og fáðu aukin fríðindi, persónulega þjónustu og sjálfvirkar lausnir sem veita þér betri yfirsýn yfir fjármálin. Þannig færðu tíma fyrir það sem skiptir máli. Að auki færðu ýmis sértilboð hjá samstarfsaðilum. Gefðu þér tíma fyrir það sem skiptir máli VILDARÞJÓNUSTUTILBOÐ Í HREYFINGU BYR | Sími 575 4000 | www.byr.isKynntu þér kostina á byr.is D Y N A M O R E Y K JA V ÍK tvisvar með kosningu á milli. Svo getur vel verið að í þessu frumvarpi verði önnur ákvæði um það hvernig breyta eigi stjórnarskránni í fram- tíðinni. Því meiri eindrægni sem skapast á stjórnlagaþingi og því betra sem frumvarp stjórnlagaþings verður, t.d. ekki fullt af minnihlutaálitum, þeim mun minni líkur eru á að Al- þingi finni sig knúið til að breyta því. Því jákvæðara sem fólk er gagn- vart stjórnlagaþingi og þessari til- raun allri og leggur sig fram við að láta hana takast, því sterkara verð- ur það,” segir formaður stjórnlaga- nefndarinnar. Hún segir það auðvitað geta gerst að stjórnmálaflokkarnir reyni að setja puttana í þetta en þeir stjórni ekki atkvæðum fólks í kjörklefan- um. “Kjósendur verða bara að vera vakandi. Það er ekki hægt að koma í veg fyrir þetta en það er kjósenda að segja álit sitt á því,” bætir hún við. “Ég geri ráð fyrir því að flestir frambjóðendur kynni sig á netinu. Það kostar ekki mikið og hægt er að fá aðstoð einhvers 11 ára eða svo á heimilinu til að aðstoða sig við það ef á þarf að halda, unga fólkið kann þetta. Það þarf ekki að skrifa lang- lokur en þeir geta sagt frá sínum baráttumálum í lengra máli en því prentaða sem borið er í hús. Það fer prufukjörseðill til allra landsmanna með öllum nöfnum þeirra sem bjóða sig fram en merkja á við eftir númeraröð. Þar verða menn að velja, þetta er eins konar tossaseðill og menn taka hann með sér inn í kjörklefann og millifæra nöfnin með blýanti yfir á kjörseðil- inn.” Guðrún hvetur landsmenn til að kynna sér málin á kosning.is og thjodfundur2010.is þar sem finna má upplýsingar um stjórnlagaþing, stjórnarskrá og þjóðfundinn, auk þess sem vefurinn stjornlagathing. is var opnaður í gær. Hugsanlegir frambjóðendur Þessi hafa verið nefnd Jón Ólafsson, Herdís Þorgeirsdóttir, Ólafur Teitur Guðnason, Jónas Kristjánsson, Andri Snær Magnason, Sigríður Þorgeirsdóttir, Rúnar Freyr Gíslason, Pétur Gunnarsson, Guð- mundur Andri Thorsson, Jakob F. Ásgeirsson, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, Óskar Magnússon, Sigríður Andersen, Finnur Beck, Ragna Árna- dóttir, Jón Björnsson, Viggó Örn Jónsson, Ómar Ragnarsson, Vigdís Finnbogadóttir, Benedikt Erlingsson, Jón Baldvin Hannibals- son, Hannes Pétursson, Brynjar Níelsson, Hermann Guðmundsson, Sigurður Gísli Pálma- son, Karl Axelsson, Þorvaldur Þorsteinsson, Þórhildur Þorleifsdóttir, Guðrún Agnarsdóttir, Vilhjálmur Þorsteinsson, Ólafur Proppé, Guð- finna Bjarnadóttir, Guðfinna Eydal, Heimir Örn Herbertsson, Tryggvi Gíslason, Ragnheiður Davíðsdóttir, Bryndís Hlöðversdóttir, Katrín Fjeldsted, Lára Hanna Einarsdóttir, Jón Ormur Halldórsson, Margrét Pála Ólafsdóttir, Sveinn Biering, Björg Eva Erlendsdóttir, Sr. Gunnar Kristjánsson, Davíð Scheving Thorsteinsson, Helgi Vilhjálmsson, Sigríður Margrét Guð- mundsdóttir, Lárus Ýmir Óskarsson Um hvað fjallar stjórnlagaþing? g Stjórnlagaþingið sem kosið verður í haust og kemur saman í febrúar skal sérstaklega taka til umfjöllunar eftirfarandi þætti, að því er fram kemur í lögum þar um, en getur ákveðið að taka til umfjöllunar fleiri þætti: g Undirstöður íslenskrar stjórnskipunar og helstu grunnhugtök hennar. g Skipan löggjafarvalds og framkvæmdavalds og valdmörk þeirra. g Hlutverk og stöðu forseta lýðveldisins. g Sjálfstæði dómstóla og eftirlit þeirra með öðrum handhöfum ríkis- valds. g Ákvæði um kosningar og kjördæmaskipan. g Lýðræðislega þátttöku almennings, m.a. um tímasetningu og fyrir- komulag þjóðaratkvæðagreiðslu, þar á meðal um frumvarp til stjórnar- skipunarlaga. g Framsal ríkisvalds til alþjóðastofnana og meðferð utanríkismála. g Umhverfismál, þar á meðal um eignarhald og nýtingu náttúru- auðlinda. Sömu laun og alþingismenn g Forseti Alþingis setur stjórnlagaþingið í febrúar, stýrir kjöri forseta þingsins úr hópi þingfulltrúa í sérstöku kjöri en víkur síðan af þinginu. Forseti stjórnlagaþings stýrir kjöri varaforseta og þriggja formanna starfsnefnda úr hópi þingfulltrúa á fyrsta fundi þess. g Forseti, varaforseti og formenn starfsnefnda skipa forsætisnefnd stjórnlagaþings. g Forseti stjórnlagaþings er formaður forsætisnefndar og ber ábyrgð á rekstri stjórnlagaþings og hefur æðsta vald í stjór- nsýslu þess. g Fulltrúar á stjórnlagaþingi njóta á samkomutímabili þingsins launa sem samsvara þingfararkaupi alþingismanna. Ríkis- sjóður greiðir launin. Forseti stjórnlagaþings nýtur samsvarandi launa og forseti Alþingis. Nefndarformenn njóta samsvarandi launa og formenn fastanefnda Alþingis. g Auk forsætisnefndar skulu þrjár starfsnefndir starfa á vegum þingsins: Nefnd um undirstöður íslenskrar stjórnskipunar, dómstóla og réttarríkið. Nefnd um skipan löggjafarvalds og framkvæmdarvalds og hlutverk forseta lýðveldisins og nefnd um kosningamál og þjóðaratkvæðagreiðslur. g Stjórnlagaþing starfar í einni málstofu. Þingfundir verða haldnir í heyranda hljóði, öllum opnir eftir því sem húsrúm leyfir. g Stjórnlagaþingsfulltrúar eru, að því er fram kemur í lögum þar um, eingöngu bundnir við sannfæringu sína og ekki við nein fyrirmæli frá kjósendum sínum eða öðrum. Stjórnlagaþingið nýtur sömu verndar og Alþingi. -jh fréttir 23 Helgin 8.-10. október 2010
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.