Fréttatíminn - 08.10.2010, Blaðsíða 61

Fréttatíminn - 08.10.2010, Blaðsíða 61
 frumsíningar Bankaræningjar eiga sviðið í frum- sýningarmyndum helgarinnar en rétt eins og í The Town segir Takers frá hópi bankaræningja. Þeir eru vel skipulagðir og fljótir að tæma þá sjóði sem þeir herja á og láta sig svo hverfa þannig að lögreglan getur lítið annað en klórað sér í hausnum. Áform þeirra um að ræna tuttugu milljónum dollara komast í uppnám þegar grjótharður rannsóknarlög- reglumaður, sem Matt Dillon leikur, einsetur sér að hafa hendur í hári þeirra og gefur ekkert eftir í þeim efnum. Á meðal annarra leikara í myndinni eru Idris Elba úr uppá- haldssjónvarpsþáttum Jóns Gnarr, The Wire, og Hayden Christensen sem gerði garðinn frægan í hlut- verki hins unga Svarthöfða í seinni Stjörnustríðsþríleiknum. Dómar í öðrum miðlum: Imbd: 4,9/10, Rotten Tomatoes: 29%, Metacritic: 45 Bíræfnir bankaræningjar Verður Mátturinn með honum þegar hann mætir sjálfum Matt Dillon? bíó 49 Helgin 8.-10. október 2010 Gjöfin inniheldur: Idealist 7ml – undirlagskrem sem gerir kraftaverk Daywear, 7ml – Dagkrem með umhverfisvörn Double Wear Light Makeup, 10ml – farða fyrir allar húðgerðir Sumptuous Mascara – svartan mascara Pure Color Lipstick – varalit, lit Bois de Rose Fallega snyrtisösku *meðan birðir endast *verðgildi gjafarinnar er kr. 15.200.- Kringlunni Gjön þín í Lyum & heilsu Kringlunni Þetta er gjöfin þín ef þú verslar Estée Lauder snyrtivörur fyrir kr. 5.900 eða meira dagana 8. – 13. október.  frumsíningar Með Gone Baby Gone árið 2007 sýndi leikarinn Ben Affleck að hann er ágætis leikstjóri. Nýjasta leikstjórnarverkefni hans er glæpa- myndin The Town sem segir frá hremmingum bankaræningja í Boston. Affleck leikur sjálfur aðal- hlutverkið, bankaræningjann Doug MacRay. Á meðan hann leggur á ráð- in um næsta rán, ásamt þjófagengi sínu, þarf hann einnig að glíma við þrjóskan FBI-mann sem er á hælum hans. Þar að auki dreymir hann um að skilja við glæpalífið og stendur frammi fyrir því að þurfa annað hvort að svíkja félaga sína eða missa frá sér konuna sem hann elskar. Bókin sem myndin byggist á fékk Hammett- verðlaunin fyrir frábæran glæpa- skáldskap árið 2005. Sér til halds og trausts í myndinni hefur Affleck toppmenn á borð við Pete Postlet- hwaite og Chris Cooper. Löggur og bófar í Boston Stjörnustríð í þrívídd George Lucas hefur nú látið þau boð út ganga, ófáum Stjörnustríðs- aðdáendum til mikillar gleði, að fyrirtæki hans ætli að endursýna allar kvikmyndirnar sex í geimóperubálknum í kvikmyndahúsum. Þetta væri svo sem ekki í frásögur færandi ef ekki vildi svo skemmtilega til að myndirnar verða sýndar í þrívídd. Orðrómur um að myndirnar yrðu settar í þrívídd hefur verið á kreiki í nokkur ár og eftir þá miklu sprengju sem orðið hefur í þrívíddarmyndum undanfarið var ákveðið að kýla á þetta. The Phantom Menace, fyrsti kaflinn í sögunni, verður sýnd fyrst og er ráðgert að hún komi í bíó árið 2012. Köngulóarmaðurinn fær nýja kærustu Hin mjög svo geðþekka leikkona Emma Stone, sem hefur verið á hraðri uppleið í sögunni eftir leik sinn í Superbad og Zombieland, hefur tekið að sér hlutverk Gwen Stacy í næstu Spiderman-mynd. Eins og fram hefur komið er Toby Maguire genginn úr skaftinu og leikur Peter Parker ekki aftur. Í hans stað fer Andrew Garfield í rauða búninginn. Þetta gefur tilefni til þess að stokka spilin upp á nýtt og nú verður horfið aftur í tímann til byrjunarára Köngulóarmannsins og Emma leikur Gwen, sem var kærasta Peters áður en Mary Jane kom til sögunnar. Myndasögugaur tekur við Ofurmenninu Warner Bros hefur gengið frá samningi við Zack Snyder um að hann leikstýri næstu Superman- mynd. Snyder er þekktastur fyrir að hafa komið hinum margrómuðu myndasögum 300, eftir Frank Miller, og Watchmen, eftir Alan Moore, á hvíta tjaldið með miklum ágætum og fer því væntanlega frekar létt með að gera Ofurmenninu viðunandi skil.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.