Fréttatíminn - 08.10.2010, Blaðsíða 16

Fréttatíminn - 08.10.2010, Blaðsíða 16
n Bandidos n Áhangendur  Hells Angels  Áhangendur  Outlaws Áhangendur  Forseti norskra Vítisengla Látum ekki stöðva okkur n orska rannsóknarlögreglan hefur fylgst með vélhjólagengjum frá því í lok níunda áratug-arins, þegar þau fyrst náðu þar fótfestu. Séð í baksýnispeglinum segir hún öruggt að hægt hefði verið að bregðast öðruvísi við til að sporna við gengj- unum en aðferðir lögreglunnar hafi þróast í takt við viðfangsefnin. Norska lögreglan segir enga einfalda lausn á því hvernig berjast eigi við MC-vélhjólagengin. Klæð- skerasauma þurfi áætlanir og aðgerðir sem ráðist sé í hverju sinni. Val á árangursríkum aðgerðum krefjist þekkingar á umhverfi þeirra. Til þess að berjast gegn mótorhjólagengjunum sé lykilatriðið skilningur á því hvers konar samfélagsleg ógn þau séu. ekki þaulskipulögð glæpasamtök „Reynsla okkar sýnir að umræðan um samtökin snýst fyrst og fremst um hvernig þau brjóta af sér en ekki hvers vegna. Hefðbundin glæpasamtök eins og ítalska mafían, kínversk glæpasamtök og albanska mafían eru skipulögð þannig að þau geti þénað sem mest með minnstri mögulegri áhættu. Menn í vél- hjólasamtökunum eru oft viðriðnir stórglæpi, jafnvel þótt þau hafi ekki sama hefðbundna og fastmótaða valdastrúktúrinn og þar þekkist,“ segir í svörum norsku lögreglunnar við fyrirspurn Fréttatímans. „Tilgangur samtakanna er að koma í veg fyrir að lífsstíl vélhjólamannanna sé ógnað. Glæpastarfsemi er afleiðing af því. Til að einfalda þetta er hægt að segja að lífsstíll vélhjólamanna, en ekki löngunin til að verða glæpamaður, sé markmið þeirra og hvatn- ing með inngöngu í samtökin.“ Útistöður Vítisengla við Útlaga Norska lögreglan segir að það sem helst einkenni 1% vélhjólasamfélagið í Noregi þessa stundina séu svæð- isbundin gengjaátök milli Vítisengla og áhangenda- klúbba þeirra annars vegar og hins vegar Útlaganna, Outlaws. 1% stendur í þessu tilviki fyrir karlaklúbba sem byggja lífsstíl sinn á bræðralagi í kringum vél- fáka sína. Síðustu ár eru Vítisenglar sagðir hafa haft vinninginn og ráðið yfir stærstu svæðunum, enda flestir sem tilheyri vélhjólagengjum í Noregi innan þeirra raða. Norska lögreglan telur að þar sem Out- laws geri nú atlögu að nánast einveldi Hells Angels í Noregi geti á næstu misserum komið til frekari átaka milli klúbbanna. Hells Angels MC Norway hafa, að sögn norsku lögreglunnar, síðasta árið og fram á þetta ár fengið til liðs við sig fleiri svokölluð götugengi í Þránd- heimi, Kristiansand, Ósló, Stavanger og Tromsø. Þau skipa yngri menn sem hafa ekki áður tengst véhjólalífsstílnum og MC-mótorhjólaumhverfinu. Í Kristian sand eiga margir þessara manna sér sögu sem ofbeldisfullir kynþáttahatarar, í líkingu við það sem sést hefur meðal vélhjólagengja í Danmörku, en norska lögreglan bendir á að þar gangi þau undir nöfnunum AK 81 = Alltaf klárir 81. Átta standi þá fyrir áttunda stafinn í stafrófinu, eða H, og 1 þann fyrsta, sem er jú A = Hells Angels. Norsku götu- gengin hafa fengið húfur og jakka með ásaumuðum táknum sem gefa í skyn hollustu og að þeir tilheyri bræðralaginu Hells Angels MC Norway. Norska lögreglan segir að þrátt fyrir þetta séu samskiptin milli Hells Angels í Noregi og Danmörku ekki mikil og telur hún að Hells Angels í Danmörku séu að einhverju leyti rasísk samtök því þau berjist við innflytjendur. Svo sé ekki í Noregi. glæpir ekki á ábyrgð klúbbanna Reynsla norsku lögreglunnar er sú að með- limir mótorhjólaklúbbanna séu orðnir miklu færari en áður í að dulbúa glæpa- starfsemina sem fyrirfinnst innan sam- takanna. Glæpastarfsemin segir hún að sé í höndum einstakra meðlima klúbbanna sem stundi umfangs- mikla eiturlyfjasölu og vopnavið- skipti. Hluti gróðans í tengslum við þessi viðskipti lendi í pen- ingakössum klúbbanna. Önnur viðskipti eigi sér oft stað í umhverfi þar sem persónur og leik- endur vinni á gráu svæði lögmætra og ólögmætra viðskipta. Sprenging vélhjólagengja í Noregi Bandidos Norska lögreglan hefur talið 48 í vélhjólagenginu. Þeir gegni fjórum stöðum; séu fullgildir meðlimir, á reynslu- passa eða probationaries, prospects og hangarounds. Af þessum 48 hafa 30 hlotið refsidóma, eða um 62%. Bandidos er með sjö vél- hjólagengi í Noregi, Þeim fylgi tíu áhangendaklúbbar, staðsettir víða í Noregi og hafi meðlimir Bandidos MC gert skurk frá árinu 2007 í að styrkja stöðu sína í 1% vélhjólasamfélaginu. Hinn 1. ágúst hafi hópar áhangenda verið á bilinu átta til tíu. Hells angels Alls taldi norska lögreglan 113 fullgilda meðlimi, prospects og hangarounds í Hells Ang- els MC í Noregi í febrúar 2010. Af þessum 113 hafa 85 hlotið dóma, sem samsavarar um 75% meðlima. Hells Angels MC Norway er langstærsti klúbburinn með um 90% þeirra sem tilheyra svokölluðum 1% klúbbum í Noregi. Lögreglan segir að á síðustu þremur árum hafi Hells Angels MC tekið inn fleiri áhangendaklúbba en áður og að samtökin séu einnig með svokallaðan prospects-klúbb í Björgvin, rétt eins og hér á landi. Hún segir höfuðsamtökin í Noregi stuðningssamtök MC Iceland. Það þýði að þeir séu ráðgjafar og leiðbeinendur fyrir íslenska klúbbinn. Form- lega verði því Hells Angels MC Norway að samþykkja allar ákvarðanir sem hafi einhverja þýðingu í klúbbnum. Norska rannsóknarlögreglan býst við því að MC Iceland verði hluti af Hells Angels MC Norway áður en árið er liðið. Vítisenglagengin í Noregi eru talin vera sjö. Þá séu Sam- tökin Renegades MC Bergen áhangendur þeirra; svokölluð hangarounds. Þeim fylgi þó einnig götugengi víða í Nor- egi. Outlaws Norska lögreglan gaf ekki upp hve margir væru í þessum samtökum í Noregi, aðeins að ellefu hópar væru með fulla aðild að vélhjólagengjum undir merkjum Outlaws, eða Útlaganna. Þeim fylgi einnig þrír hópar undir nafninu Coffin Cheaters. Mest hefur fjölgað í Outlaws MC-klúbb- unum í Noregi síðustu þrjú árin, að mati lögreglunnar. Outlaws munu einnig hafa tekið stuðningskúbbinn Black Pistons MC í Haugasundi upp á sína arma. Leiðtogi hópsins er íslenskur ríkis- borgari sem var áður tengdur MC Iceland. Norska lögreglan fékk í september upplýsingar um að fulltrúar Outlaws MC Norway hefðu komið hingað til Íslands til þess að stofna stuðningsklúbb í nafni Black Pistons MC.  noregur MC-klúbbarnir Venjulegt fólk finnur ekki fyrir vélhjólagengjunum í sínu daglega lífi og lendir ekki í útistöðum við meðlimi þeirra, að mati norsku rannsóknarlögreglunnar. Hins vegar segir hún að þegar vélhjólagengi takist á hugsi þau lítið um stað og stund. Fréttatíminn leitaði til norsku lögreglunnar og fékk hana til að deila reynslu sinni af vélhjólagengjum þar í landi svo að lesendur geti velt því fyrir sér hvort svipuð staða geti komið upp hér. „Það er sama hvernig íslensk yfirvöld haga sér. Þau munu aldrei stöðva inngöngu MC Iceland í Hells Angels. Vilji þau haga sér sem börn verður komið fram við þau sem slík,“ segir Leif Ivar Kristiansen, forseti Hells Ang- els í Noregi. Hann vill ekki gefa upp hvert markmiðið er með inngöngu íslenska klúbbs- ins í Hells Angels og ekki hvað íslensku vél- hjólamennirnir fást við þegar þeir koma til Noregs í nafni samtakanna. Leif Ivar hefur í árafjöld leitt norsku Vítis- englana, samkvæmt veffrétt Dagbladet.no. Hann er fimmtugur og var meðal stofnenda Hells Angels-klúbbsins í Þrándheimi og leiðir hann nú. Hann var til að mynda handtekinn í janúar með mikið magn fíkniefna og vopn. Vítisenglar í Noregi eru fjöl- mennustu vélhjólasamtökin þar og segir norska lög- reglan 75% allra meðlima þeirra vera afbrotamenn. Þeir lendi í síendurteknum útistöðum við meðlimi Out- laws, sem stækki hraðast. „Ég kannast ekkert við þá og hef aldrei heyrt á þá minnst,“ svarar Leif Ivar glaðhlakkalega, spurður um samskipti samtak- anna við Outlaws. Kortleggja vélhjólasamtökin og meðlimi þeirra Norska rannsóknarlögreglan hefur kortlagt vélhjólagengin og þróun þeirra í Noregi. Hún hefur á árunum 2007 til 2010 séð æ fleiri sækja í vélhjólagengin, sem lögreglan telur ekki til glæpasamtaka heldur til samtaka fullra af glæpamönnum. Hér á eftir fer mat hennar á stöðu vélhjólasamtakanna eins og hún var þar í landi í byrjun september. gunnhildur arna gunnarsdóttir gag@frettatiminn.is tromsö Þrándheimur Björgvin stavanger Kristiansand sKien drammen ÓslÓ asKer eidsvoll hamar leif ivar Kristiansen er forseti Vítisengla í Noregi. horten halden FredriKstad moss lillestrØm jessheimhadeland gjØviK stjØrdal rogan 16 fréttaskýring Helgin 8.-10. október 2010
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.