Læknablaðið - 15.09.1983, Page 21
LÆKNABLAÐID
201
naumum meirihluta. Miklar deilur urðu um
petta mál bæði utan og innan pings. í lögum
eru engin viðurlög ef öryggisbelti eru ekki
notuð. Alþingismönnum voru rækilega kynnt-
ar niðurstöður athugana frá mörgum þjóðum
um að lögleiðing öryggisbelta án viðurlaga
hefði reynst gagnslaus og þar af leiðandi hefðu
margar erlendar þjóðir lært af þeim mistökum
og tekið upp viðurlög (12).
Ljóst er að íslendingar verða að taka til
höndum í baráttunni við umferðarslysin. Dr.
Leo Kaprio forstjóri Evrópudeildar Alþjóða-
heilbrigðisstofnunarinnar í Kaupmannahöfn
gat þess í setningarræðu Norrænu umferðar-
slysaráðstefnunnar í júní 1982 að meðal pró-
aðra bjóða fækkaði slysum í umferð en
fjölgaði meðai próunarpjóða (10).
ÚRBÆTUR
Eftirfarandi tillögur eru hér með lagðar fram.
1. Notkun öryggisbelta, öryggisstóia fyrir
börn og hjálma í umferð verður að auka.
Gagnslaust er að lögleiða notkun þessara
öryggistækja nema einhver viðurlög komi
til ef viðkomandi fer ekki að lögum.
2. Efla parf til muna alla umferðarfræðslu í
skólum. Eftir að hafa kynnt mér námsefni í
grunnskólum nágrannalanda er ljóst að við
erum eftirbátar nágranna okkar á þessu
sviði. Taka parf upp kennslu í reiðhjóla- og
mótorhjólaakstri í grunnskólum.
í sumum löndum fá unglingar ekki leyfi til
þess að aka mótorhjólum nema þeir hafi
fengið »ökuskírteini« frá skólunum. Stofna
ætti slysanefnd í hverjum bekk er kanna
skal nánar öll slys er bekkjarfélagar verða
fyrir. í framhaldsskólum ber að taka upp
kennslu í bifreiðaakstri. Líklega er tími til
kominn að efla mjög starf námsstjóra í
umferðarfræðum og fyrirbyggjandi slysa-
fræði við grunn- og framhaldsskóla. Efla
þarf kennslu meðal heilbrigðisstétta á
orsökum slysa. Síðastliðin þrjú ár hafa
læknanemar á 6. ári fengið nokkra tilsögn
um þetta efni í sambandi við félagslæknis-
fræðikennslu.
3. Endurskoða parf reglur er gilda um ökurétt-
indi. Vitað er að hingað koma unglingar frá
nágrannalöndum til þess að fá ökuréttindi
þar eða kröfur eru minni hér en þar.
Nauðsynlegt er að umferðarráð og öku-
kennarar taki höndum saman og geri róttæk-
ar tillögur til úrbóta hið bráðasta.
4. Umferðarráð verður að efla og gera starf-
semi þess fjölbreyttari. Nú starfa t.d. engir
fulltrúar lækna eða annarra heilbrigðis-
stétta í ráðinu. Sú ráðstöfun er með öllu
óskiljanleg þegar þess er gætt að fáir
kynnast betur afleiðingum umferðaslysa en
heilbrigðisstéttir. Það skal að vísu viður-
kennt að læknar hafa verið heldur afskipta-
litlir í umræðum um umferðaslysavarnir.
5. Skipulagsmál gatna og bygginga þurfa að
vera í stöðugri endurskoðun. Sú regla að
byggja og reka skóla og dagheimili við
fjölfarnar götur getur ekki talist heppileg
m.t.t. slysavarna. Greinilegt er að mun verr
er búið að gangandi fólki og hjólreiða-
mönnum í umferð hér en í nágrannalönd-
um.
6. Tryggingafélög mega ekki sofa á verðinum.
í Skandinavíu hefur ljóslega komið fram að
slysagreiðslur tryggingafélaga hafi lækkað
verulega eftir að öryggisbeltanotkun jókst
þar. í>að er því skylda þessara félaga
gagnvart viðskiptavinum sínum að berjast
af alefli fyrir bættum öryggisráðstöfunum
þ.á.m. öryggisbeltanotkun.
HEIMILDIR
1. Skýrslur Umferðarráðs 1973-1980.
2. Norræna tölfræðihandbókin 1973-1980. Nord-
iska Ministerrád Stockholm.
3. Umferðarslys og öryggisbelti — Fyigirit land-
læknisembættisins 1980.
4. Bréf Elíasar Davíðssonar til Læknafélags fs-
lands 1978.
5. Thorson J and Sande J. Hospital Statistics on
Road Traffic Accidents Proceedings of the 3rd
Triennial Congress I AATM 1969. p. 20. Univer-
sity of Michigan 1981.
6. Hobbs CA et al. Classification of Injury Severily
by Length of Stay in Hospital. Report 871 in
Crowthorne, U.R. Transport and Road Rese-
arch Institute 1981.
7. Nordentoft EL. Road Traffic Accident Statistics
System in Denmark. Working Paper Presented
to a WHO ad hoc Technical Group. Euro
Reports and Studies 19 WHO Copenhagen
1979.
8. Upplýsingar frá Umferðarráði 1982.
9. Transport Arbeid i Norden 1960-1980 — Nor-
disk Komitté for Transport Ökonomisk Forsk-
ning. Publ nr. 31 apríl 1980.
10. Rune Andreasson. Nordisk Traffik Medicinsk
Konferance Linköbing juni 1982.
11. Bíbelti — Fylgirit landlæknisembættisins 1981.
12. Peter O’Neill Health Crisis 2000 WHO Euro-
Office Copenhagen 1982.