Læknablaðið - 15.09.1983, Blaðsíða 47
LÆKNABLADID
219
öðru tagi. Skipulag meðferðar slasaðra. Þjálf-
un eftirlitsaðila í afstýringu slysa.
1.4 Geðsjúkdómar
Hjá WHO hafa farið fram einstakar kannanir
á pjónustu við geðsjúka s.l. tíu ár en forvarnar-
starf er lítt þekkt. Talið er, að mjög fá svið
geð- og taugasjúkdóma séu þess eðlis, að pað
starf nýtist, sem á að miða að pví að afstýra
þessum sjúkdómum. Undir geðsjúkdóma
koma hér að nokkru leyti áfengis- og lyfjaof-
notkun, en að nokkru leyti eru petta sérstök
verkefni.
1.5. Tannsjúkdómar
Forvörn felst fyrst og fremst í uppeldi og
upplýsingum um matarvenjur og tannhirðu.
Lögð er áhersla á skipulag tannlæknapjón-
ustu og flúormeðferð sem skipulagðri varn-
araðgerð.
ÁHÆTTUPÆTTIR
Á fundum WHO, sem hafa verið haldnir um
langvinna sjúkdóma, hefur síðustu 4-6 ár verið
rætt um sérstaka og sameiginlega áhættu-
þætti, sem valdið gætu pessum sjúkdómum.
Hér er um að ræða marga þætti og hefur
málið verið athugað frá ýmsum sjónarhornum:
í töflu I er lýst fyrirkomulagi varna og eftirlits.
Rannsóknir varðandi alla pessa sjúkdóma
beinast að orsök og árangri meðferðar. í
Tafla II. Nokkur dæmi um forvörn, eftirlit og meðferð.
Löggjöf Heilbrigðispjónusta Hegðunarbreyting
Fyrsta Skattur: Tóbak, áfengi Upplýsingar Reykingar
stig sælgæti. Varnaðarorð á Heilbrigðisfræðsla Áfengisofnot
söluvöru og auglýsingabann Fæðuval
Mengunarvarnir Flúornotkun Þjálfun
Annað Lög og reglur um heilbrigð- Leit að: Háþrýstingi, Fara að ráðum heilbrigðis -
stig ismál og skyld mál sykursýki, starfsfólks um heilbrigðara
(aldraða, fatlaða, krabbameini, líferni
vinnuvernd, tryggingar) fóstursköðum.
Þriðja Reglur um fyrirkomulag og Meðferð Þekkja takmörk og
stig skipulag heilbrigðis- og félagslegrar þjónustu Endurhæfing tilgang meðferðar
Tafla III. Forvarnarstarf og framkvæmdaadilar.
Vettvangur Sjúkdómar Aðili
/. Hátterni Hegðun Tóbak — Áfengi Hjarta-, lungna- lifrar - og illkynja 1/2/3*
Mataræði — Þjálfun sjúkdómar og sykursýki
II. Sérhópar Kyn/aldur Hjartasjúkdómar, 2
0 + 0/30 + heilablæðing, sykursýki
Þyngd, blóðþrýstingur, þvagsykur
0/35 +
Leghálsskoðun Leghálskrabbi 2
111. Verdandi mædur Fósturskoðun Meðfæddir gallar 2
IV. Sérstakir starfshópar Vinnuaðstaða og umhverfi Hjarta-, lungna-, gigt- og illkynja 1/2/3
sjúkdómar, slys
V. Lög og reglur Loft, vatn, matvæli, húsnæði, Hjarta-, lungna-, tann- og iilkynja 1
umferð, tóbak, áfengi sjúkdómar, slys
*) l=Löggjöf 2 = Heilbrigðisþjónusta 3 = Einstaklingar (Hegðunarbreytingar).