Læknablaðið - 15.11.1983, Page 34
296
LÆKNABLADID
þau fjögur atriði sem minnst var á: Hvað
varð tilefni könnunar eða rannsóknar, hvað
var gert og hvernig, hver varð útkoman og
hvaða þýðingu hefir hún? Þessi útdráttur gefur
lesanda kost á að meta hvort hann hafi áhuga
fyrir efninu og auðveldar honum lestur grein-
arinnar.
Inngangur (indtroduction). Hér svarar þú í
stuttu máli fyrstu spurningunni: Why did you
start? Pú greinir frá þeim hugmyndum, sem
liggja að baki athugunum þínum (hypothesis).
Næst kemur frásögn af því, hvað aðrir hafa
gert (litterature reviewed) og hver afstaða
vinnukenningar þinnar er til þeirra niður-
staðna.
Hér vil ég aðeins endurtaka: Reyndu að
vera eins stuttorður og þú getur. Pú ert ekki að
skrifa mannkynssöguna eða sögu læknisfræð-
innar, ekki einu sinni sögu viðkomandi sjúk-
dóms.
Að vísu skaðar engan þó að þú eyðir þrem
línum í að segja frá því, að fyrsta lýsing hafi
fundist í papyrushandriti frá fimmtu öld fyrir
Krist, næsta tilvitnun er síðan beint tengd því
vandamáli, sem þú hefir verið að fást við og
vinnukenning þín fjallar um.
Hafir þú ekki upphaflega grein eða rit undir
höndum greindu þá frá hvar þú fékkst tilvitnun
í upphaflegt rit. Auk þess: Þú færð aðeins að
nota takmarkaðan fjölda tilvitnana. Eyddu
þeim ekki að óþörfu hér!
Að síðustu vísar þú svo til tölfræðilega að-
ferða, sem beitt er við könnun á niðurstöðum.
Efnividur og adferdir (Material and methods.
Patients and methods). Oft vill þessi kafli
verða óþarflega langur, það er óþarft vegna
þess að þú þarft hér aðeins að segja frá því
hvað þú gerðir og hvernig þú fórst að því.
Aðrir, sem fjalla um sama efni, geta þá
endurtekið athugun þína og að minnsta kosti
lagt mat á gildi aðferðanna og þar með á
niðurstöðurnar.'
Þú lýsir aðferðum sér og fjallar um efnivið-
inn sér. Ef »efniviðurinn« eru sjúklingar
verður yfirskriftin: Sjúklingar og aðferðir. Ef
þú ert að fjalla um einn eða fleiri sjúklinga
fellir þú efnivið, aðferðir og niðurstöður sam-
an í einn kafla undir yfirskriftinni: Sjúkra-
sögur.
Niðurstöður. (Results) Hér kemur svarið við
þriðju spurningunni: What answer did you
get? Settu fram allar niðurstöður og sem mest
af þeim í töfluformi. Forðastu að ræða um
efnið, (separate fact from opinion (7)), nema til
þess að benda á mikilvæg atriði og tengsl milli
þátta í athuguninni. Forðastu að endurtaka í
textanum það sem auðveldlega má lesa úr
töflum eða myndlýsingu.
Umræða. (Discussions). Nú er komið að því að
meta það, hvað niðurstöðurnar tákna: What
does it mean? Styðja niðurstöðurnar kenningu
þína? Veita þær svör við þeim spurningum,
sem leiddu til þess að þú gerðir athugun þína?
í rauninni mætti hugsa sér að hægt væri að
sleppa alveg allri umræðu. (»The results have
been presented and in so doing their implicati-
ons are made clear. What is there to discuss?
(11)). Þetta gildir að sjálfsögðu ekki alltaf, en
þetta er áminning um það að vera eins
stuttorður og hægt er. Tengdu niðurstöður
þínar við það sem aðrir hafa gert, en forðastu
endurtekningu á því sem áður kom fram í
texta.
Skil. (Conclusion). Ef efniviður og niðurstöður
eru margbrotin hlýðir að draga saman undir
þessari fyrirsögn, á sama hátt og gert er í lok
góðs erindis veigamestu atriðin í niðurstöðum
þínum:
1) þær staðfesta það sem allir vissu áður,
2) þær staðfesta það sem menn hefir grunað,
3) þær eru nýjar af nálinni eða ganga í
berhögg við niðurstöður annarra.
Um frágang handritsins sjálfs er vísað til
leiðbeininga í Handbókinni (1), en vera kann
að síðar komi nánari leiðbeiningar t.d. um
töflur og myndlýsingu. Þangað til gætir þú
stuðst við norrænar leiðbeiningar im þetta
efni (12).
Dómendur (referees). Þegar svo handritið er
komið til ritstjórnar er það annað hvort metið
hæft til birtingar eða ekki. Sé um sérhæft efni
að ræða er handritið sent dómanda, sem
valinn er af einhverjum úr ritstjórn og vita
ekki aðrir um það hver dómandi er hverju
sinni. Umsögn hans er send höfundi, sem gerir
viðeigandi breytingar. Fallist höfundur ekki á
gagnrýni dómanda svarar hann henni með
skriflegri greinargerð sem ritstjórn fjallar
síðan um. Reynsla okkar í ritstjórn af þessu
kerfi er mjög góð og myndi mörg greinin hafa
tafist, ef ekki hefðu komið til góð ráð dóm-
enda.