Læknablaðið - 15.11.1983, Page 41
LÆKNABLAÐIÐ
299
Number
Fig. 1. Number of patients with myocardialinfarction at St. Joseph's Hospital, Reykjavík, 1966-1980, by year
and sex.
lagður inn á spítalann vegna kransæðastíflu
eða fékk hana í legunni. Af peim körlum sem
voru lagðir inn vegna kransæðastíflu, dóu
14.3 %, en 21.9 % kvenna. Samanlagt 16.9 %.
Þeir sjúklingar sem fengu kransæðastíflu í
legunni eru að jafnaði eldri og komu á
spítalann vegna annarra sjúkdóma, létust eftir
uppskurði eða voru hjúkrunarsjúklingar. Dán-
artíðni karla í peim hópi var 31.8 % en kvenna
70.6 %, samanlagt 48.7 %.
Á töflu 3 sést aldursdreifing peirra 19
sjúklinga sem dóu af peim 39 sjúklingum sem
getið er í töflu 2 og létust eftir að hafa fengið
kransæðastíflu í legunni eða reyndust hafa
hana við krufningu. Eru peir flestir 70 ára eða
eldri.
Tafla 4 sýnir hve einkenni um kransæða-
stíflu höfðu staðið lengi áður en sjúklingar
komu á spítalann. Heldur fleiri koma innan 6
klst. (37.7 %) en við fyrri rannsókn (31 %).
Eins og nánar verður komið að síðar, eru peir
sjúklingar sem koma innan 6 klst. sá hópur
sem hugsanlega gæti notið góðs af peim lækn-
ingaaðferðum sem á allra síðustu árum eru að
ryðja sér til rúms við kransæðastiflu.
Tafla 5 sýnir pann tíma sem leið frá komu á
Number
Age
Fig. 2. Age and sex distribution of patients with
myocardial infarction at St. Joseph's Hospital,
Reykjavík, 1976-1980.