Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.11.1983, Qupperneq 50

Læknablaðið - 15.11.1983, Qupperneq 50
306 LÆKNABLADID 69,306-320,1983 ÁRSSKÝRSLA LÆKNAFÉLAGS ÍSLANDS starfsárið 1982-1983 Inngangur Skýrsla pessi nær yfir tímabilið frá 16. maí 1982 til 31. júlí 1983. Alls greiddu 558 læknar árgjald árið 1982. Þar af greiddi 461 fullt árgjald, en 97 hluta árgjalds. Læknar á skrá, komnir yfir sjötugt og/eða hættir störfum, voru 58 í árslok 1982. Af árgjaldinu, sem var kr. 4.500.00, var hluti svæðafélags óbreyttur frá fyrra ári kr. 600.00. Innheimt árgjöld samsvöruðu 523 heilum árgjöldum, og skiptust pau pannig milli svæðafélaga: Læknafélag Reykjavíkur 401, Læknafélag Vestur- lands 24, Læknafélag Vestfjarða 11, Læknafélag Norðvesturlands 13, Læknafélag Aukureyrar 38, Læknafélag Norðausturlands 8, Læknafélag Austur- lands 12 og Læknafélag Suðurlands 16. Vorið 1982 útskrifuðust 39 kandídatar frá Lækna- deild Háskóla íslands. Eftirtaldir læknar hafa látizt frá síðustu árs- skýrslu: Eggert Briem.............. f. 15.06.37 d. 03.02.83 Guðmundur Eyjólfsson...... f. 08.09.16 d. 23.06.83 Halldór Arinbjarnar....... f. 04.09.26 d. 04.06.82 Lárus Jónsson ............ f. 23.03.96 d. 03.07.83 Valtýr Bjarnason ......... f. 06.03.20 d. 10.03.83 Aðalfundur L.í. Aðalfundur L.Í. árið 1982 var haldinn á hótelinu í Stykkishólmi dagana 25. og 26. júní. Fundinn sátu auk stjórnar og framkvæmdastjóra félagsins fulltrúar eftirtalinna svæðafélaga: Lækna- félags Reykjavíkur 12 (af 13), Læknafélags Vestur- lands 2, Læknafélags Vestfjarða, Læknafélags Norðvesturlands, Læknafélags Akureyrar 3, Lækna- félags Norðausturlands, Læknafélags Austurlands, Læknafélags Suðurlands, F.Í.L.B. og F.Í.L.Í.S. Félag íslenzkra lækna I Norður-Ameríku sendi ekki full- trúa á fundinn. Gestir fundarins voru: Páll Sigurðsson, ráðuneyt- isstjóri, Arinbjörn Kolbeinsson, formaður Sérfræð- ingafélags íslenzkra lækna, Guðjón Magnússon, aðstoðarlandlæknir og Póroddur Jónasson, læknir á Akureyri. Áheyrnarfulltrúi Félags ungra lækna sat einnig fundinn. Formaður flutti skýrslu stjórnar og urðu nokkrar umræður um hana. Arinbjörn Kolbeinsson flutti skýrslu stjórnar Domus Medica og svaraði ásamt formanni félagsins fyrirspurnum, sem fram komu. Páll Sigurðsson og Þovaldur Veigar Guðmunds- son fluttu framsöguerindi um »Læknafjölda og læknapörf«. Ólafur örn Arnarson hafði framsögu um »Starfsemi göngudeilda«, Þóroddur Jónasson og Jón Bjarni Þorsteinsson fluttu framsöguerindi um »HeilsugæzIustöðvar, starfsemi peirra og rekstrar- form almennra lækninga«. Allmiklar umræður fóru fram að loknum framsöguerindum hvers páttar. Á fundinum var sampykkt eftirfarandi breyting á 13. gr. laga félagsins (kemur í stað ákvæðis um Kjararáð): »Til að samræma kaup og kjör lækna skal stjórn Læknafélags íslands halda kjaramálafund eigi sjaldn- ar en tvisvar á ári. Til fundarins skal boða formenn samninganefnda L.í. og svæðafélaga pess, fulltrúa Sérfræðingafélags ísl. lækna, Félags yfirlækna, Fé- lags ísl heimilislækna, Félags ungra lækna, svo og aðra pá, sem stjórnin telur ástæðu til.« Eftirtaldar ályktanir voru sampykktar á aðalfund- inum: 1. Aðalfundur L.Í. felur stjórn Læknafélags íslands að skipa nefnd til að endurskoða lána- og sjóðamál lækna frá grunni og athuga möguleika á aukinni fyrirgreiðslu við pá. M.a. skulu kannaðir möguleikar á lánveitingu til lækna vegna tækja- kaupa, atvinnuhúsnæðis og rannsóknastarfa. 2. Aðalfundur L.Í. skorar á landlæknisembættið að gangast fyrir pví, að gefnar verði út staðlaðar leiðbeiningar um framkvæmd barnaeftirlits. Átt er við eftirlit forskólabarna jafnt sem skólabarna. 3. Aðalfundur L.í. ályktar, að Iæknasamtökin skuli hafa frumkvæði að fræðslu almennings um afleið- ingar fíkniefnanotkunar. Stjórn Læknafélags ís- lands skipi nefnd til að skipuleggja markvissa fræðslu, afla upplýsinga um fíkniefni og fíkniefna- notkun og gera tillögu til lækna um notkun peirra upplýsinga við pessa fræðslu. 4. Aðalfundur L.í. telur brýnt, að koma á sem allra fyrst skipulögðu framhaldsnámi lækna á íslandi. Aðalfundur heimilar stjórn félagsins að greiða Iaun, allt að prem eyktum sérfræðings, lækni, sem ráðinn yrði til að vinna að framgangi málsins. Þessi ákvörðun skal koma til endurskoðunar á næsta aðalfundi félagsins. 5. Aðalfundur L.Í. felur stjórn félagsins að hafa for- göngu um stofnun nefndar, sem fjalla á um siðfræði rannsókna og tilrauna á mönnum (hu- man experimentation). Unnið skal að pví að auk
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.