Læknablaðið - 15.11.1983, Blaðsíða 51
LÆKNABLAÐIÐ
307
fulltrúa frá Læknafélagi Islands eigi heilbrigðis-
yfirvöld, Háskóli íslands og leikmenn sæti í
nefndinni.
6. Aðalfundur L.Í. beinir þeim tilmælum til stjórnar
Læknafélags íslands, að hún hlutist til um við
viðkomandi yfirvöld, að allar auglýsingar um
læknastöður, sem veita á til eins árs eða lengri
tíma, verði auglýstar með minnst tveggja mánaða
fyrirvara. Jafnframt verði gerðar ráðstafanir, til
að tilkynningum um lausar læknisstöður verði
dreift til íslenzkra Iækna erlendis nægilega fljótt,
til að þeir hafi möguleika á að sækja um stöður
þessar. Jafnframt beinir fundurinn þeim tilmælum
til stjórnar Læknafélags íslands, að hún beiti sér
fyrir því, að samræmdar reglur náist um stöðu-
auglýsingar á norrænum vinnumarkaði lækna.
7. Aðalfundur L.í. felur stjórn. og framkvæmda-
stjóra Læknafélags íslands að kanna, hvað verði
um greiðslur íslenzkra lækna í lifeyrissjóði erlend-
is, og þá einkanlega í Svíþjóð. Niðurstöður könn-
unar verði kynntar félagsmönnum Læknafélags
íslands.
8. Aðalfundur L.í. ályktar að ítreka það við stjórn
Læknafélags íslands, að hún vinni að því að losa
lækna undan þeirri kvöð að skrifa fjarvistarvott-
orð fyrir skólanemendur vegna skammtímaveik-
inda, þriggja daga eða skemur.
9. Aðalfundur L.í. felur stjórn Læknafélags íslands
að athuga möguleika þess, að læknar reki á eigin
vegum læknastöðvar, sem veiti sömu/svipaða
þjónustu og heilsugæzlustöðvar. Verði fengnir
rekstrarráðgjafar, er kanni, hvaða skilyrði þurfi
að vera fyrir handi, til þess að læknar geti sjálfir
rekið slíka stöð á þéttbýlissvæðum. Niðurstaða
verði tilbúin fyrir 1. nóv. 1982.
Gjaldkeri kynnti ársreikninga félagsins fyrir árið
1981 og fjárhagsáætlun fyrir næsta ár. Hvort
tveggja var samþykkt samhljóða. Árgjald ársins
1983 var ákveðið kr. 6.800.00.
Stjórn L.í. gerði tillögur um menn í stjórn til 2ja
ára, og voru þeir sjálfkjörnir: Varaformaður Halldór
Steinsen, ritari Kristján Eyjólfsson og meðstjórn-
andi Kristófer Porleifsson (endurkjörinn). Varamenn
kosnir til eins árs: Helgi Sigurðsson, Katrín Davíðs-
dóttir og Ólafur Z. Ólafsson. Fyrir í stjórn voru
Porvaldur Veigar Guðmundsson, formaður, og Jón
Bjarni Þorsteinsson, gjaldkeri.
Endurskoðandi var endurkjörinn Einar Jón-
mundsson og Þorkell Bjarnason til vara.
í Gerðardóm skv. Codex Ethicus voru endurkjörn-
ir Gunnlaugur Snædal og Guðmundur Sigurðsson
og einnig varamenn Sigursteinn Guðmundsson og
Víkingur H. Arnórsson.
Undir dagskrárliðnum önnur mál skýrði formaður
frá stofnun Félags íslenzkra lækna í þýzkalandi með
8 félagsmönnum. Borin var upp beiðni frá félaginu
um að verða svæðafélag innan L.Í. Var það
samþykkt samhljóða.
Katrín Fjeldsted vakti athygli á hættu þeirri, sem
stafaði af kjarnorkustríði og flutti ásamt öðrum
tillögu til ályktunar þar um. Að loknum umræðum
var ályktunartillögunni vísað til stjórnar.
Formaður félagsins lýsti því yfir, að hann mundi
beita sér fyrir því, að haldin yrði ráðstefna á vegum
L.í. um viðbrögð við kjarnorkustríði.
Fundargerð aðalfundar 1982 birtist I 1. tbl. Lækna-
blaðsins 1983 og vísast að öðru leyti til hennar og
viðbótar í 5. tbl. s.á.
Að loknum fundinum laugardaginn 26. júní var
sameiginlegt borðhald fundarmanna og gesta þeirra
undir frábærri veizlustjórn Pálma Frímannssonar,
heilsugæzlulæknis í Stykkishólmi.
Næsta dag var siglt með flóabátnum Baldri um
Breiðafjörð og út í Flatey í ládauðum sjó og
blíðuveðri, og voru þátttakendur mjög ánægðir með
ferðina.
Stjómarfundir
Stjórn Læknafélags íslands kemur saman að jafnaði
á þriðjudögum kl. 17.00. Á því tímabili, sem skýrslan
nær yfir, hafa verið haldnir 40 fundir, og að
meðaltali hafa verið tekin fyrir 10 mál á hverjum
fundi. Auk þessa eru sameiginlegir fundir stjórna L.Í.
og L.R., og hafa 5 slíkir fundir verið haldnir á
starfsárinu.
Formannaráðstefna
Fundur stjórnar L.í. með formönnum svæðafélag-
anna var haldinn laugardaginn 16. apríl 1983 í
Domus Medica. Þá var fulltrúum frá Félagi íslenzkra
heimilislækna, Félagi ungra lækna, Sérfræðingafé-
lagi íslenzkra lækna og Félagi yfirlækna boðið að
sitja fundinn, og komu fulltrúar frá þrem þeim
fyrstnefndu.
Stjórn og framkvæmdastjóri gerðu grein fyrir
afgreiðslu ályktana síðasta aðalfundar, og fram-
kvæmdastjóri og formaður samninganefndar heilsu-
gæzlulækna gerðu grein fyrir stöðunni í samninga-
málum. í framhaldi af því urðu umræður um
fyrirkomulag undirritunar samninga fyrir heilsu-
gæzlulækna. Hingað til hefur tíðkast, að samninga-
nefndirnar skrifuðu undir þessa samninga án fyrir-
vara og án þess að samningurinn væri borinn undir
þá, sem fá greitt samkvæmt honum. Fundarmenn
voru sammála um, að slíkt gæti ekki gengið lengur,
en á hinn bóginn eru ýmis vandkvæði við atkvæða-
greiðslu, þar sem stór hluti atkvæðisbærra manna er
dreifður um landið. Talið var eðlilegt, að atkvæða-
greiðsla færi fram bréflega, en bent var á, að upp
gætu komið aðstæður, þar sem sllkt fyrirkomulag
væri of seinlegt, og þá þyrfti að fara aðrar leiðir.
Þetta er mál, sem heilsugæzlulæknar þurfa að ræða
meira I sínum hópi.
Læknafélag Akureyrar hefur lagt til, að L.í. gerist
aðili að og skipi fulltrúa í samninganefnd þá, sem
semur um sérfræðivinnu utan sjúkrahúsa. Þetta mál
var rætt og fékk einróma undirteknir. Sjá nánar
undir: önnur mál.
L.Í. innheimtir árgjöld svæðafélaganna, en þau