Læknablaðið - 15.11.1983, Síða 52
308
LÆKNABLADID
eru alls staðar pau sömu og hafa ekki hækkað 2
undanfarin ár. Formaður leitaði eftir, hvort nauðsyn-
legt væri að hækka árgjöld svæðafélaga, en engar
óskir komu fram um það á fundinum, og hafa ekki
komið, þegar þessi skýrsla er skrifuð.
Ýmis önnur mál voru rædd, svo sem greiðslur
sjúkratrygginga til lækna, sem starfa að heimilis-
lækningum utan heilsugæzlustöðva (sjá síðar), um
skilyrði sérfræðiviðurkenningar í heimilislækningum
til að fá fasta stöðu við heilsugæzlustöð og um
hugsanlegan atvinnuleysistryggingasjóð lækna.
Kjaramálafundur
Á aðalfundi 1982 var samþykkt breyting á 13. gr.
laga félagsins, þar sem ákveðið var að fella niður
kjararáð, sem í reynd hafði nánast ekkert starfað, en
í þess stað var lögð sú skylda á stjórn L.Í. að halda
kjaramálafund eigi sjaldnar en tvisvar á ári og: »Til
fundarins skal boða formenn samninganefnda L.i. og
svæðafélaga þess, fulltrúa Sérfræðingafélags ís
lenzkra lækna, Félags yfirlækna, Félags íslenzkra
heimilislækna, Félags ungra lækna, svo og aðra
þá, sem stjórnin telur ástæðu til.«
Fyrsti kjaramálafundurinn var haldinn föstudag-
inn 17. nóv. 1982. Fundinn sátu þeir, sem rétt áttu til
þess skv. ofannefndri lagagrein, svo og aðalstjórn
L.R. Formenn samninganefnda gáfu yfirlit yfir stöðu
samningamála, en síðan urðu töluverðar umræður
um göngudeildir, m.a. hvort reyna ætti að fá inn í
samninga að launa göngudeildarvinnu á sérstakan
hátt.
Framkvæmdastjóri kynnti lauslegan samanburð á
dagvinnulaunum hinna ýmsu hóþa lækna. Hann
hafði þó allan fyrirvara á þessum samanburði og
gerði grein fyrir því, að mjög erfitt er að gera slíkan
samanburð, t.d. mætti fá ýmsar tölur launa heilsu-
gæzlulækna og númeralækna, eftir því hvað væri
talinn eðlilegur fjöldi viðtala og eðlilegur fjöldi
einstaklinga í samlagi. Heildarniðurstaða var í stuttu
máli, að laun fyrir dagvinnu lækna væru nokkuð
sviþuð, nema að númeralæknar skáru sig úr og voru
með mun lægri laun fyrir »eðlilegan fjölda einstak-
linga í samlagi«.
Afgreiðsla ályktana aðalfundar 1982
Ályktun um athugun á lánamálum lækna. Til þessar-
ar athugunar voru skiþaðir Stefán Bogason, Víg-
lundur Þ. Þorsteinsson og Matthías Kjeld. f nefnd-
inni lagði Stefán fram hugmyndir um ýmsa þætti,
sem gæti komið til greina að breyta við úthlutun
lána. Hugmyndir þessar voru sendar stjórnum L.Í.
og L.R. og ræddar á stjórnarfundi L.Í., þar sem
mættir voru Stefán Bogason og Kristján Baldvins-
son, formaður L.R. Nefndin hefur ekki lokið störfum,
en frá breytingum á úthlutunarreglum sjóða lækna
er greint aftast í ársskýrslunni.
Ályktun um, ad landlæknisembættid gefi út stadl-
aðar leidbeiningar um framkvæmd barnaeftirlits.
Landlæknir svaraði áskorun þessa efnis með bréfi í
ágúst 1982, þar sem hann benti á, að árið 1980 var á
ráðstefnu um heilsuvernd fjallað um svokallaðar 4
ára forskoðanir ungbarna. Segir þar, að væntanlegar
séu tillögur um framkvæmd ungbarnaeftirlits, sem
sendar verði L.í. til umsagnar.
Ályktun um frædslu um fíkniefni og fíkniefnanotkun.
Stjórnin skiþaði Hannes Pétursson, Tómas Zoega,
Sigurbjörn Sveinsson og síðar Jóhannes Bergsveins-
son til að skiþuleggja fræðslu um þessi efni. Nefndin
vinnur nú að gagna- og upþlýsingasöfnun, en hefur í
bréfi til stjórnar L.í. lýst því yfir, að hún muni ekki
ljúka störfum á þessu ári.
Ályktun um naudsyn skipulags framhaldsnáms hér-
lendis. Formaður félagsins boðaði til fundar með
yfirlæknum lyfjadeilda spítalanna í Reykjavík og
fulltrúa frá F.U.L. Á þeim fundi tóku yfirlæknarnir
að sér að undirbúa fræðslunámskeið fyrir þá, sem
hyggja á framhaldnám í lyflæknisfræði. Unglæknar
tilnefndu síðan 2 aðstoðarlækna í þessa undirbún-
ingsnefnd (sjá um framhaldsmenntun síðar í skýrsl-
unni).
Ályktun um forgöngu L.Í. um stofnun nefndar, sem
fjalli um sidfrædi rannsókna og tilrauna á mönnum.
Ályktunin var send heilbrigðismálaráðherra, mennta-
málaráðherra, landlækni og Háskóla íslands. í bréfi
frá landlækni kemur fram, að í tíð núverandi
landlæknis hafi allir læknar, sem lagt hafi stund á
»hóprannsóknir« utan sjúkrahúsa, leitað eftir áliti
embættisins, áður en rannsókn var hafin. Land-
læknir telur eðlilegt, að rannsóknir eða tilraunir á
sjúklingum séu háðar eftirliti, t.d. siðanefndar við-
komandi sjúkrahúss. Stjórnin fékk 2 lækna til að
fylgja málinu eftir, og hafa þeir haft undirbúnings-
fundi með formanni félagsins.
Alyktun um stöduauglýsingar var send heilbrigðis-
málaráðuneyti, ríkisspítölunum, Borgarspítala og
öllum stærri sjúkrahúsum í landinu. Síðan Fréttabréf
lækna fór að koma út hafa ýmsar stöður verið
auglýstar þar. Afrit auglýsinga bárust skrifstofu
félagsins nokkuð vel um tíma, en lakar nú í seinni tíð.
í allmörgum stöðuauglýsingum hefur umsóknarfrest-
ur verið meiri en 4 vikur, og er það nýlunda. Enn
vantar þó nokkuð á, að mál þessi geti talizt í góðu
lagi.
Alyktun um könnun á, hvad verdi um greidslur
íslenzkra lækna í lífeyrissjódi erlendis, var komið á
framfæri við Friðrik E. Yngvason, lækni, sem dvelur
í Svíþjóð og hafði kynnt sér þessi mál þar. Upplýs-
ingar hans ásamt fleiru birtast í Fréttabréfi Iækna í
september og vísast til þess.
Ályktun um fjarvistarvottord vegna skammtímaveik-
inda skólanemenda var komið á framfæri við
menntamálaráðuneyti, og hefur formaður félagsins
átt viðræður við deildarstjóra ráðuneytisins um það
mál.