Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.11.1983, Page 57

Læknablaðið - 15.11.1983, Page 57
LÆKNABLADID 311 1. 4.0 % hækkun frá 1. ágúst 1982. 2. 3.1 % hækkun frá l.des. 1982. 3. 2.1 % hækkun, sem kom til framkvæmda 1. janúar 1983. Lágmarksorlof varð 10.17 %, en hækkar í 11.59 % við 40 ára aldur eða 10 ára starfsaldur og 13.04 % við 50 ára aldur eða 18 ára starfsaldur. Þá varð lenging á námsferðum eldri aðstoðarlækna. Gjaldskrá heilsugæzlulækna. Síðustu gjaldskrársamn- ingar heilsugæzlulækna voru gerðir 1979. Frá peim tíma hafa komið á gjaldskrána sjálfvirkar hækk- anir með skertum vísitöluuppbótum og hækkanir í samræmi við óverulegar kjarabætur til handa öðr- um BHM mönnum. Eftir langar og oft erfiðar samningaviðræður tókst að gera nýjan gjaldskrár- samning við Tryggingastofnum ríkisins og var hann undirritaður 11. apríl sl. Hefur verið litið á þennan samning sem bráðabirgðasamning, enda gildir hann aðeins til og með 29. febrúar 1984. Helstu breytingar á gamla samningnum fyrir utan orðalagsbreytingar í einstökum liðum urðu sem hér segir: 1. Öll læknisverk gjaldskrárinnar skulu hækka um 3.8 %, vegna breytingar á grunnröðun heilsu- gæslulækna úr launaflokki 110 í 111, sbr. sér- kjarasamning L.Í. og fjármálaráðherra frá 07.12.- 1982. Að auki skulu öll læknisverk gjaldskrárinn- ar hækka um 1.7 %, til samræmis við hækkað or- lof frá 01.12.1982. 2. Gjaldskrárliðir 101 og 103 (þéttbýlisviðtöl) skulu hækka um 7 %. 3. Stofuviðtalsgjöld sérfræðinga í heimilislækning- um skulu hækka um 10%. Sama gildir um viðtalsgjöld lækna, sem við undirritun samnings þessa hafa fullnað 8 ára starfstíma sem heilsu- gæslulæknar/heimilislæknar, eða ná þeim starfs- tíma á samningstímanum. 4. Fyrir læknisstörf unnin á laugardögum er heimilt að taka sama gjald og fyrir læknisstörf unnin á tímabilinu kl. 18.00-23.00. 5. Þegar læknir hefur verið frá störfum vegna veikinda eða barnsburðar samfleytt lengur en hálfan mánuð, skal hann mánaðarlega frá þeim tíma fá greitt sem svarar mánaðarmeðaltali síðustu 3ja mánaða gjaldskrárgreiðslna til hans. Þessar greiðslur skerðast eða falla niður á sama hátt og föst laun skv. reglugerð um orlof og veikindaforföll starfsmanna ríkisins. 6. Vidbót við ákvædi um framkvæmd samningsins: Verði ágreiningur ekki leystur með þessum hætti, skal Gerðardómur skera úr um framkvæmd samningsins. Undir hann má hvor aðili um sig eða einstakir læknar, sem eru aðilar að ágreiningnum, bera ágreiningsmál. Gerðardómur skal svo skip- aður: Læknafélag íslands skipar einn mann, Tryggingastofnun ríkisins einn og yfirborgar- dómarinn í Reykjavík einn mann, og er hann formaður dómsins. Gerðadómur hefur vald til að fella fullnaðarúrskurð í öllum deilumálum milli L.í. og T.R. út af samningi þessum. Slík mál sem aðilar eiga óskoraða aðild að, skulu ekki borin undir dómstóla, nema þegar um fullnægingu dóms er að ræða. í Gerðardómi ræður afl atkvæða úrslitum. Komi fram 3 mismunandi at- kvæði, ræður atkvæði formanns. Akvædi til brádabirgda. Vegna dráttar sem orðið hefur á samningsgerð, kemur tímabundið álag á gjaldskrárliði vegna viðtala og læknisverka, sem nemur 2 %. Álag þetta fellur út úr grunngjaldi 1. mars 1984. Störf almennra lækna utan heilsugæzlustöðva. í sept. sl. barst L.Í. afrit af bréfi T.R. til formanns sjúkrasamlags Árnessýslu, þar sem því var beint til samlagsins að endurgreiða sjúkiingum ekki almenna læknishjálp heimilislæknis, sem starfar utan heilsu- gæzlustöðvar. Var bréf T.R. sent skv. tilmælum heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytisins. Fulltrúar L.í. gengu á fund T.R. og mótmæltu þessari fyrirætlan. Þann 28. okt. óskaði heilbrigðismálaráðherra eftir því, að L.í. tilnefndi 3 fulltrúa til viðræðna við ráðuneytið, T.R. og landlækni um mörkun stefnu um þátttöku ríkissjóðs vegna almennra læknisstarfa utan heilsugæzlustöðva. L.í. tilnefndi formann, vara- formann og framkvæmdastjóra félagsins til þessara viðræðna. Nokkrir fundir voru haldnir, og tók heilbrigðismálaráðherra þátt 1 einum þeirra. Aðilar urðu sammála um, að setja þyrfti almennar reglur um greiðslur sjúkratrygginga vegna almennr- ar læknishjálpar utan heilsugæzlustöðva, en ekki binda slíkar reglur við einn ákveðinn stað. Urðu aðilar einnig sammála um, að um gjald fyrir slíka þjónustu yrði samið af L.í. og T.R. Hins vegar náðist ekki samkomulag um, í hvaða tilvikum sjúkratrygg- ingum bæri slík þátttaka. Ráðherra vildi, að heimild yrði bundin leyfi úr ráðuneyti hverju sinni, en L.í. taldi rétt, að landlæknir eða héraðslæknir og þá jafnvel með þátttöku heimamanna veitti slíka heim- ild. Könnun á atvinnuástandi í 3. tbl. Fréttabréfs lækna var rætt nokkuð um atvinnuhorfur lækna á íslandi og sendur út spurn- ingalisti til að kanna stöðuna í þessum málum. Þetta Fréttabréf var sent öllum læknum, sem skrif- stofan hafði upplýsingar um, og minnt var á könnun- ina í næsta Fréttabréfi. Svör bárust frá 16 sérfræð- ingum, sem höfðu hlotið sérfræðiviðurkenningu 1980 eða síðar (’80:3, '81:2, '82:10, ’83:2) og frá 34 yngri læknum. Af sérfræðingunum eru 8 búsettir á íslandi, einn hafði hálft starf í sérgrein sinni, en annars atvinnu- laus, annar hafði fullt starf, en ekki í sérgreininni, en hinir 6 voru í starfi í sinni sérgrein og 4 töldu, að sér hefði gengið vel að fá starf (3 á stofnunum, 1 á stofu og 2 bæði á stofu og stofnun).

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.