Læknablaðið - 15.11.1983, Blaðsíða 63
LÆK.NABLAÐIÐ
315
íslands, heilbrigðismálaráðuneytis, landlæknis-
embættisins, læknadeildar og utanríkisráðuneytis.«
Þjóðréttarfræðingi utanríkisráðuneytis var sent afrit
bréfsins. í svari heilbrigðismáiaráðuneytisins kom
fram, að ráðuneytið var sömu skoðunar og L.í. að
pessu leyti.
10. A fundi stjórnar L.í. 16. nóv. sl. var m.a. rætt um
slysatíðni í umferðinni hér á landi. Að loknum
umræðum var eftirfarandi bókun sampykkt:
»Stjórn Læknafélags fslands beinir þeim tilmælum
til Útvarpsráðs, að sjónvarpinu verði falið að gera
stutta, hnitmiðaða og fjölbreytta áróðurspætti til
varnar umferðarslysum. Yrðu peir sýndir á þeim
tímum, er flestir horfa á sjónvarpið og gætu sætt sig
við slíka pætti, t.d. strax eftir auglýsingatíma um kl.
20.30 og á öðrum tímum, eftir ástæðum.«
Bókunin var ásamt greinargerð send útvarpsráði.
Dagskrárstjóri sjónvarps hafði samband við fram-
kvæmdastjóra félagsins og pakkaði áhuga félagsins
á málinu. Taldi hann, að tillaga félagsins hefði flýtt
fyrir því, að sjónvarpið hóf nokkru síðar útsendingu
slíkra pátta.
Bandalag háskólamanna
Læknafélag fslands hefur verið aðili að B.H.M. frá
stofnun pess 1958. B.H.M. má raunverulega skipta í 2
hluta, p.e. hin almennu samtök félaganna og launa-
málaráð, sem starfar nánast óháð stjórninni. Ráðið
fer með rétt B.H.M. skv. lögum til að gera aðalkjara-
samning við fjármálaráðuneytið, en einstök félög
annast sérkjarasamninga. Oftast er höfð náin sam-
vinna milli félaganna við pá samningsgerð. Læknar
eiga litla samleið í samningagerð með öðrum
félögum og hafa viljað losa pessi tengsl. Á sl. vetri
fékkst sampykki B.H.M. fyrir, að læknar færu með
allan samningsrétt sinn, en til pess að aðskilnaður
frá launamálaráði verði löglegur, parf fjármálaráð-
herra að viðurkenna Læknafélag íslands sem heild-
arsamtök til að semja við. Slík viðurkenning hefur
enn ekki fengizt.
Á síðasta ári urðu breytingar á stjórnskipun
B.H.M. Fulltrúaráð B.H.M., sem kom saman annað
hvert ár, var lagt niður, en í stað pess var mynduð
svokölluð aðalstjórn, sem skipuð er formönnum
aðildarfélaga B.H.M., fulltrúum frá launamálaráði og
ráði sjálfstætt starfandi háskólamanna, svo og 5
manna framkvæmdastjórn, sem kosin er á þingi
B.H.M. Aðalstjórnin kemur saman á 4-6 vikna fresti
yfir vetrarmánuðina.
Orlofsnefnd
Læknafélögin eiga nú eina íbúð á Akureyri og tvö
orlofshús í Brekkuskógi í Biskupstungum. Engar
ákvarðanir hafa verið teknar um kaup á fleiri húsum
eða íbúðum, en líklegt er, að innan fárra ára verði
keypt íbúð í Reykjavík.
Mikill áhugi hefur verið á orlofsdvöl í Brekku-
skógi nú í sumar, og varð Orlofsnefnd að hafna
fjölda umsókna. Nokkrar kvartanir komu fram
vegna úthlutunarinnar, og gerði pví Orlofsnefnd
grein fyrir úthlutunarreglum í Fréttabréfi Iækna nr.
6 1983. Orlofshúsin hafa verið illa nýtt að vetrinum,
og er pví fyrirhugað að lækka leigugjaldið til að
hvetja menn til að fara þangað um helgar í vetur.
Ekki hefur verið eins mikil ásókn í íbúðina á
Akureyri og búist var við, en í vor og sumar hefur
þó verið góð nýting á henni.
Það hefur valdið Orlofsnefnd og skrifstofu lækna-
félaganna verulegum vandræðum, hvað peir, sem
úthlutun hljóta, draga lengi að staðfesta úthlutunina.
Komið hefur fyrir, að orlofshús hefur staðið autt á
sama tíma og margir voru á biðlista. Á næsta ári
verður tekið mjög hart á þessum málum.
Fræðslunefnd
1. Aðalverkefni Námskeiðs- og fræðslunefndar
læknafélaganna á árinu 1982 var skipulagning
haustnámskeiðs, sem haldið var í Domus Medica
dagana 16.-18. sept. 1982. Á pessu námskeiði var fjall-
að um faraldsfræði undir stjórn peirra Christer Hog-
stedt, prófessors við Arbetarskyddstyrelsen í Sví-
pjóð og Olav Axelsson, yfirlæknis við Yrkesmedic-
inska kliniken í Linköping, Svípjóð. Aðrir hlutar nám-
skeiðsins fjölluðu um bráða slysameðferð, gigtsjúk-
dóma og öldrunarpjónustu. Fjöldi íslenzkra lækna
flutti par erindi.
2. f október gekkst fræðslunefndin fyrir málþingi
um sjúkdóma í heilaæðum. Málþing petta haldið 1
Domus Medica. Auk fjölda íslenzkra fyrirlesara
fluttu tveir erlendir gestir erindi, dr. Charles War-
low, Clinical Reader & Consultant Neurologist,
Radcliffe Infirmary, Oxford, og dr. Salvador Monca-
da, Head Department of Prostaglandin Research,
The Wellcome Research Laboratories, England.
Þingið var vel sótt.
3. Nefndin gekkst fyrir kvöldverðarfundum á fimmtu-
dögum eins og undanfarin ár. Hafa fundir verið
haldnir á Hótel Esju og Hótel Loftleiðum og verið
misvel sóttir, en í ráði er að halda þessu fundaformi
áfram með svipuðu sniði.
4. Þá hélt fræðslunefndin jólafund i desember í
Domus Medica. Guðmundur Pétursson, forstöðu-
maður rannsóknastöðvar Háskóla íslands að Keld-
um, hélt erindi um móðuharðindin og eituráhrif
eldgosa.
5. I apríl var haldinn í Domus Medica fundur um
niðurgang af völdum sýkinga. Auk íslenzkra fyrir-
lesara fluttu par erindi tveir bandarískir sýklafræð-
ingar, Richard C. Tilton, prófessor í sýklafræði við
University of Connecticut, og Raymond R. Ryan,
lektor í sýklafræði við sama háskóla. Var fundurinn
allvel sóttur.
6. f júlí sl. flutti dr. Leon Chameides, prófessor í
barnalækningum við University of Connecticut,
fyrirlestur í Domus Medica um 20 ára uppgjör á
meðferð hjartasjúkdóma í Connecticut.