Læknablaðið - 15.12.1986, Qupperneq 19
LÆKNABLAÐIÐ
333
og Kjósarhreppi. Sjúklingar í úrtakinu á þessu
svæði voru alls 2.272 eða 92.9% af
heildarfjöldanum.
Sjúklingar sem komu frá fjarlægari slóðum, voru
væntanlega þeir, sem hlotið höfðu meiri háttar
áverka, en hinir er minna voru slasaðir, hafa af
eðlilegum orsökum fengið meðferð í
heimahéraði. Því þótti ekki rétt að taka þá, sem
búsettir voru utan höfuðborgarsvæðisins með í
uppgjör þetta, nema í nokkrum tilvikum, sem
getið er sérstaklega.
Auðvitað hafa ekki allir þeir, sem meiddust við
vinnu á höfuðborgarsvæðinu, leitað til
Slysadeildarinnar, heldur hafa sumir fengið
læknishjálp á heilsugæslustöðvum, hjá
heimilislæknum, í öðrum sjúkrastofnunum á
svæðinu og aðrir hreinlega ekki leitað læknis.
Þar eð slysaathugun þessi er þannig bundin við
höfuðborgarsvæðið er hætt við að hún gefi ekki
rétta faraldsfræðilega mynd af vinnuslysum í
landinu öllu, því að atvinnuhættir eru talsvert
ólíkir í hinum ýmsu landshlutum. T.d. er meira
um ýmis konar iðnað en minna af
landbúnaðarstörfum á höfuðborgarsvæðinu en
annars staðar. Eðli fiskveiða og mönnun þeirra
gæti einnig verið frábrugðin á landsbyggðinni því
sem gerist á höfuðborgarsvæðinu.
Afdrif slasaðra. Erfitt reyndist að rekja feril
margra sjúklinga eftir útskrift frá deildinni,
einkum þeirra er lítil meiðsl höfðu hlotið. Raunar
voru mjög margir sem aldrei útskrifuðust
formlega, heldur hurfu úr meðferð án
lokaskoðunar. Ótrúlega margir leituðu aldrei eftir
vottorði hvorki fyrir vinnuveitanda eða
Tryggingastofnun ríkisins. Má því gera ráð fyrir
að vinnutap þeirra hafi verið hverfandi. Oftast
var auðvelt að fylgjast með afdrifum þeirra, er
mikið voru slasaðir, enda saga þeirra frá upphafi
rakin í sjúkraskrám og í afritum af vottorðum.
Dvöl á legudeild, endurkomufjöldi á göngudeild
og hversu alvarleg slysin reyndust gefa auðvitað
nokkra hugmynd um hve lengi sjúklingar voru að
ná sér.
Flokkun eftir því hversu alvarleg slysin eru. Til
þess að meta hve alvarleg slysin voru, er stuðst við
The Abbreviated Injury Scale 1980 (AIS) (7).
Hefir kerfi þetta aðallega verið notað af the
American Association for Automotive Medicine í
sambandi við mat umferðaslysa, en virðist einnig
henta vel við önnur slys.
I grófum dráttum byggist AIS flokkunin á
eftirfarandi atriðum:
AIS-1. Grunn sár, mar, vægar tognanir, fyrsta
stigs bruni, óverulegur heilahristingur, sprungur í
fingur- eða tákjúkum og fleira þess háttar.
Vinnutap er lítið eða ekkert, helst í sambandi við
sár sem ekki mega blotna eða óhreinkast. Gera
má ráð fyrir fullum bata á skömmum tíma.
AIS-2. Meiri háttar sár, annars stigs brunablettir,
tímabundin sköddun á æðum og taugum útlima,
einföld brot í leggbeinum eða höfuðkúpu og
vægur heilahristingur.
Batahorfur eru góðar, venjulega án eftirstöðva,
en talsvert vinnutap getur orðið t.d. í sambandi
við beinbrot.
AIS-3. Djúp tætt sár, annars til þriðja stigs bruni
á 15-25% yfirborðs húðar, höfuðkúpubrot með
verulegum einkennum frá heila, los á augasteini,
blæðing eða loftleki í brjósthol, mar í lunga, mar
á innýflum í kviðarholi eða á þvagfærum,
tímabundin mænusköddun, meiri háttar brot t.d.
á lærlegg og fleira. Þetta eru alvarlegir áverkar,
sem oft leiða til langrar dvalar á sjúkrahúsi og
ósjaldan til varanlegrar örorku og jafnvel dauða.
AIS-4. Brunasár annars til þriðja stigs er ná yfir
26-35% yfirborðs húðar, höfuðáverkar með
varanlegum minni háttar heilaskemmdum, miklir
andlitsáverkar, sköddun á stórum æðum t.d. á
hálsi, í brjóstholi eða kviðarholi, rifin innýfli,
varanleg skemmd mænu, þó án algjörrar
lömunar, aflimun ganglims og fleira. Þessir
áverkar eru oft lífshættulegir og batahorfur
vafasamar. Hætt er við meiri eða minni örorku.
AIS-5. Miklar skemmdir í heila með djúpu
meðvitundarleysi, annars til þriðja stigs bruni á
36-90% yfirborðs húðar, varanleg þverskemmd á
mænu, stórar æðar í hálsi, kviðarholi eða
brjóstholi mikið rifnar, sköddun á hjarta,
útbreiddar skemmdir á innýflum kviðarhols og
fleira þess háttar. Hér er mjög tvísýnt um líf
sjúklinga og líkur á meiri háttar örkumlum þó svo
að þeir lifi, t.d. andlegri skerðingu*, varanlegri
lömun eða annarri bæklun.
AIS-6. Stóráverkar oft fjölþættir, sem leiða til
dauða.
Fjöldi slysa á hverja 10.000 í atvinnugreininni,
nýgengi. Eins og áður sagði fengust upplýsingar