Læknablaðið - 15.12.1986, Side 69
LÆKNABLAÐIÐ
369
en staðbundnar skemmdir. Á lyfjadeild eru 50%
sjúklinga 60 ára og eldri með glöp skv. prófinu og rúmur
helmingur þeirra með alvarleg glöp. Álit reyndra
aðstoðarlækna fylgdi niðurstöðum prófsins hvað best.
Stöðugleiki prófsins við endurtekningu með stuttu
millibili reyndist góður. Hjá fullorðnum vinnandi
mönnum greindust ekki nein glöp með prófinu en á
meðal háaldraðra utan sjúkrahúss greindust væg glöp í
um 40% tilvika.
ÓSKURÐTÆK LUNGNAKRABBAMEIN AF
»NON-SMALL CELL« GERÐ
Sigurður Árnason, Bergný Marvinsdóttir, Grétar
Ólafsson, Sigurður Björnsson. Krabbameinsiækninga-
og handlækningadeildir Landspítalans.
Á árunum 1983-1985 var 117 sjúklingum með
lungnakrabbamein vísað til
krabbameinslækningadeildar Landspítalans, en það er
um það bil 60% allra sjúklinga sem greindust með
lungnakrabbamein á fslandi á tímabilinu. 77 reyndust
með »non-small cell« krabbamein, 28 konur og 49
karlar. 25 (90%) konur og 48 (98%) karlar voru
reykingamenn eða fyrrverandi reykingamenn, einn
sjúklingur hafði aldrei reykt en upplýsingar vantaði um
þrjá. Meðalaldur var 64 ár (48-78). Sjö reyndust með
sjúkdóm á fyrsta stigi, fjórir á Öðru en 66 með
þriðjastigssjúkdóm. 25 (30%) höfðu farið í
»thoracotomiu«. Á krabbameinslækningadeildinni
fengu 22 (28%) einungis stoðmeðferð, 38 (49%)
geislameðferð eingöngu, 13 (18%) geisla- og
lyfjameðferð og (5%) lyfjameðferð eingöngu. Miðlifun
(»median survival«) var fimm mánuðir hjá sjúklingum
með stórfrumukrabbamein (n 7), sex mánuðir hjá
sjúklingum með slímyndandi krabbamein (n 36) en sjö
mánuðir hjá sjúklingum með flöguþekjukrabbamein (n
30). Þetta er svipuð miðlifun og meðal sjúklinga sem fá
einungis stoðmeðferð (skv. erlendum rannsóknum). 15
(20%) sjúklingar eru enn á lífi 4-22 mánuðum eftir
greiningu, þar af hafa fjórir engin merki virks sjúkdóms
4-22 mánuðum eftir greiningu. Aukaverkanir af
meðferðinni voru »þolanlegar«.
SMÁFRUMUKRABBAMEIN í LUNGUM 1983-1985:
ÁRANGUR MEÐFERÐAR
Sigurður Árnason, Sigurður Björnsson, Tryggvi
Ásmundsson, Magni Jónsson. Krabbameinslækninga-
og lyflækningadeildir Landspítalans, lyflækningadeild
Borgarspítalans.
Af 117 sjúklingum með lungnakrabbamein, sem komu
til meðferðar á krabbameinslækningadeild
Landspítalans á tímabilinu 1983-1985, reyndust 40
(34%) með smáfrumukrabbamein. Fimmtán konur og
25 karlar. Meðalaldur kvennanna var 66 ár (51-74) en
karlanna 62 ár (42-75). Helmingur sjúklinganna
reyndust við meinvarpaleit hafa dreifðan sjúkdóm (þ.e.
vöxt eða meinvörp utan whemithorax ipsilateralis«).
Meðferðin sem gefin var: adriamycin 25 mg/m2 i.v. dag
og og vincristin mg/m2 dag og etoposide 200 mg p.o.
dag 2-5. Dag 22 cyclofosfamide 1000 mg/m2 i.v. og
vincristin mg/m2 i.v. og etoposide 200 mg p.o. dag
23-26. Þessir tveir kúrar voru svo gefnir til skiptis út
meðferðartímabilið á 3-4 vikna fresti í 36-45 vikur.
Geislameðferð Gy/F var gefin á móðuræxlið og
aðliggjandi eitlastöðvar dag 8, 15, 29, 36, 50 og 57 10-20
mg cisplatinum var gefið i.v. hálftíma fyrir geislun.
Miðlifun reyndist vera sex mánuðir hjá sjúklingum með
dreifðan sjúkdóm en níu mánuðir ef um staðbundinn
sjúkdóm var að ræða. Tólf (30%) eru á lífi 4-34
mánuðum eftir upphaf meðferðar. Þar af hafa fjórir
lokið meðferð og hafa engin merki um sjúkdóm 10-34
mánuðum eftir upphaf meðferðar. Aukaverkanir: nær
allir sjúklingar fá einhverja geislafibrósu í lungun.
Fjórtán sjúklingar hafa fengið sepsiseinkenni.
Leukopenia (hvít blk < 1500) og anaemia (Hb < 100)
eru algengar. Enginn sjúklinganna lést beinlínis af
völdum meðferðar. Árangur þessarar meðferðar er
heldur lakari hvað varðar meðallifun miðað við
rannsóknir erlendis frá, en þess ber að gæta, að hér er
um nær óvalinn hóp að ræða. Aukaverkanir hjá okkar
sjúklingum virðast vægari (engin dauðsföll af völdum
meðferðar)
TÓBAKSVARNANÁMSKEIÐ
Þorsteinn Blöndal, Bjarni Valtýsson, Bjöm Magnússon,
Garðar P. Jónsson, Júlíus Björnsson, Nikulás
Sigfússon, Sigurður Árnason. Lungna- og
berklavarnadeild Heilsuverndarstöðinni,
lyflækningadeild Landspítalans, Reykjalundur,
geðdeild Landspítalans, Rannsóknastöð Hjartaverndar,
krabbameinslækningadeild Landspítalans.
Á árunum 1984-1986 var 802 reykjandi konum og 892
körlum boðin þátttaka í tóbaksvarnanámskeiði á
lungna- og berklavarnadeild. í MONIKU hluta
rannsóknarinnar voru 86 einstaklingar, meðalaldur 45,5
ár. í ULRIKU hlutanum voru 96 einstaklingar,
meðalaldur 38,3 ár. Um 13% þeirra kvenna og 9%
þeirra karla, sem skrifað var, féllust á þátttöku og komu
á námskeið. Námskeiðin byggðust upp á fimm fundum
á 4-5 vikum. Fyrirlesið var um sögu og faraldsfræði
tóbaks, um níkótín sækni, um léttar/sterkar sígarettur
og óbeinar reykingar, um sjúkdómsfræði tóbaks og loks
um áhrif þess að hætta að reykja. Síðan umræður. Hver
þátttakandi fékk í upphafi möppu með öllu
fræðsluefninu. Samanlagt tóku 182 einstaklingar þátt í
námskeiðunum og var þeim skipt í 12 hópa með 9-20
þátttakendum í hverjum. Hver hópur fékk annað
tveggja, Nicorett 4 mg eða placebo og var mælt með 1-3
mánaða notkun allt eftir þörfum. Skilyrði fyrir
inngöngu í rannsóknina var að tilheyra úrtakinu, koma
á a.m.k. einn fund og reykja. Engir voru útilokaðir, sem
á annað borð komu á einn fund. Á þriggja mánaða
fresti í eitt ár var haft símasamband við þátttakendur,
hvort heldur þeir reyktu eða ekki. Hjá þeim, sem
kváðust vera í reykbindindi eftir eitt á var til
staðfestingar gerð mæling á kolsýringi í útöndunarlofti.
Ef gildin mældust hærri en 10 (ppm) milljónustu hlutar
eða þátttakendurnir mættu ekki í mælinguna voru þeir
taldir reykja.
Hættir að Reykja í maí 1986 - Áfangauppgjör
Nicorette A Nicorette B
Fylgitimi N °7o N °7o
3 mánuðir........... 38/77 49,4 61/92 66,3
6 mánuðir........... 23/48 47,8 35/75 46,7
9 mánuðir........... 12/29 41,4 27/57 47,4
12 mánuðir.......... 13/29 44,8 26/57 45,6