Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.09.1993, Síða 4

Læknablaðið - 15.09.1993, Síða 4
Við meðferð á bakteríusýkingum Cipmxirí ciprofíoxacin Eiginleikar: Lyfiö er breiövirkt sýklalyf af kínólónflokki. Verkunarmáti er aö nokkru óþekktur, en lyfið blokkar DNA-gýrasa, sem er sýklum nauðsynlegur til frumuskiptingar. Lyfið frásogast um 70-80% frá meltingarvegi. Hámarks blóðþéttni næst eftir 2 klst. og helmingunartimi í blóði er um 4 klst. Um það bil helmingur lyfsins útskilst óbreytt í þvagi, en afgangurinn sem niðurbrotsefni í þvagi, galli og saur. Lyfið verkar á margar sýklategundir, þar á meðal Gram-neikvæða stafi (einnig Pseudomonas aerugionosa, Branhamella catarrhalis); einnig á Gram-jákvæða sýkla. Oviss verkun er á loftfælna sýkla. Mjög virkt gegn Neisseria gonorrhoea. Ábendingar: Sýkingar af völdum næmra sýkla, t.d. þvagfærasýkingar, iðrasýkingar (salmonella o.fl.), sýkingar í blöðruhálskirtli. Frábendingar: Ofnæmi fyrir lyfinu. Meðganga og brjóstagjöf. Varúð: Lyfið á ekki að gefa börnum á vaxtarskeiði vegna möguleika á brjóskskemmdum af völdum lyfsins. Einnig ber að gæta varúðar við gjöf lyfsins hjá sjúklingum með tilhneigingu til krampa. Aukaverkanir: Ógleöi, uppköst og óljós magaóþægindi. Stöku sinnum niðurgangur. Svimi, höfuð- verkur og þreytutilfinning. Stöku sinnum sjóntruflanir og einstaka tilvik ofskynjana. Húðútbrot. Tímabundin hækkun lifraren- zýma hefur sést. Kristallamyndun í þvagi kemur fyrir, ef þvag er basískt, en virðist þó ekki valda nýrnaskemmdum. Oft sést tímabundinn húðroði yfir æðinni, sem lyfið er gefið í. Trombophlebitis kemur fyrir. Ráðlagt að nota stórar æðar eða miðlægar. Innrennslistími á 100 mll er 1 klst. Milliverkanir: Lyfið hindrar niðurbrot teófýllíns og skyldra lyfja og hækkar því blóðþéttni þeirra. Ef nauðsynlegt er að gefa lyfin saman, þarf að fylgjast vel með blóðþéttni teófýllins. Sýrubindandi lyf, sem innihalda magnesíum- eða alúminíumhýdroxið geta hindrað frásog lyfsins. Athugið: Ónæmi getur myndast meðan á lytfjagjöf stendur, t.d. við beinasýkingar.Skammtastærðir handa fullorðnum: Þvagfærasýkingar: 100-250 mg tvisvar til þrisvar sinnum á dag. Lekandi: 250 mg, gefið í einum skammti einu sinni. Iðrasýkingar: 500 mg tvisvar til þrisvar sinnum á dag. Beinasýkingar: 750 mg tvisvar til þrisvar sinnum á dag. Skammta verður að minnka, ef kreatínínclearance er undir 30 ml/mínútu. Innrennslislyf: 100-400 mg (= 50 ml - 200 ml) tvisvar sinnum á dag. Skammtastæröir handa börnum: Lyfið er ekki ætlað börnum. Pakkn- ingar: Innrennslislyf 2 g/l: fl. 100 ml x 1. Töflur 250 mg: 10 stk. (þynnupakkað) 20 stk. (þynnupakkað). Töflur 500 mg: 10 stk. (þynnupakkað) 20 stk. (þynnupakkað). Töflur 750 mg: 10 stk. (þynnupakkað) 20 stk. (þynnupakkað). Einkaumboð á íslandi: Pharmaco hf. Hörgatúni 2, 210 Garðabæ.

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.