Læknablaðið - 15.09.1993, Side 30
282
LÆKNABLAÐIÐ
Safnað var upplýsingum um sjúklingana með
aðstoð tölvudeildar spítalans. Athugaður var
heildarfjöldi þessara sjúklinga og hlutfall
miðað við aðra aldurshópa, skipting þeirra
milli kynja og aldursdreifing.
Til þess að meta alvarleika heilaáverka var
athuguð skipting sjúklinga rnilli deilda,
þar sem alvarlegustu tilfellin eru lögð
inn á gjörgæsludeild, en þau vægustu
á gæsludeild. Legutími á gæsludeild er
sjaldnast umfram sólarhring. A heila- og
taugaskurðlækningadeild koma að jafnaði
sjúklingar sem þarfnast innlagnar umfram einn
til tvo sólarhringa, en ekki gjörgæslu.
Leitast var við að meta alvarleika áverka
nánar með því að afla nákvæmari upplýsinga
um sjúkdómsgreiningu. ICD númerin 851-854
þýða að um alvarlegri áverka en heilahristing
(ICD númer 850) sé að ræða. ICD 851 er
notað um heilamar eða tættan heila, ICD
852 blæðingu í heilahimnum, ICD 853 aðra
óskilgreinda blæðingu innan höfuðkúpu af
völdum áverka, og ICD 854 annan áverka
innan höfuðkúpu, sem ekki er skilgreindur
nánar.
Einnig var aflað upplýsinga um fjölda barna
með heilaáverka sem hlutu greiningu, þjálfun
eða endurhæfingu á árunum 1987-1991. Þetta
var meðal annars gert með því að kanna
lengd innlagnar sjúklinga með heilaáverka
á barnadeildum Landakots og Landspítala,
fjölda innlagðra barna með heilaáverka á
Grensásdeild og Reykjalund, og fjölda þeirra
sem komu til greiningar á Greiningar- og
ráðgjafarstöð ríkisins. Þessara upplýsinga var
aflað með aðstoð tölvudeilda viðkomandi
stofnana og með viðtölum við yfirlækna
þeirra.
Þau börn sem lögð voru inn á barnadeildir
Landakots og Landspítala voru ekki talin með
við útreikninga á nýgengi.
NIÐURSTÖÐUR
Á árunum 1987-1991 voru alls
824 einstaklingar lagðir inn á
gæsludeild, gjörgæsludeild og heila- og
taugaskurðlækningadeild Borgarspítalans með
höfuðáverka (ICD 850-854), að meðaltali um
165 á ári. Börn 14 ára og yngri voru 297
(36%), um 59 á ári að meðaltali, nýgengi
um 1.40/1000. Tafla I sýnir aldurs- og
kyndreifingu í þessum hópi barna yngri en
15 ára. Aldurshópurinn fimrn til níu ára
var fjölmennastur allra aldurshópa barna og
fullorðinna.
Tafla II sýnir skiptingu barnanna 297 milli
deilda spítalans. Það er eftirtektarvert hve lítill
kynjamunur er milli barna á gjörgæsludeild,
þar dvöldu níu piltar og átta stúlkur. Einnig
er eftirtektarvert hátt hlutfall ungra barna á
gjörgæsludeild, sex voru undir fimm ára aldri
og 14 yngri en 10 ára.
Tafla III sýnir flokkun barnanna 297 eftir
sjúkdómsgreiningu (ICD 850-854). Þrjátíu
og átta (13%) barnanna hlutu ICD greiningu
851-854.
Nýgengi alvarlegra áverka reyndist 0.08/1000
þegar miðað var við fjölda innlagna á
Tafla I. Fjöldi, aldurs- og kynjaskipting barna 14 ára
og yngri, sem iögð voru inn á deildir Borgarspítalans
með heilaáverka (ICD 850-854) um fimm ára skeið,
1987-1991.
Aldur Piltar (%) Stúlkur (%) Alls (%)
0- 4 ára 54 (18) 26 0) 80 (27)
5- 9 ára 67 (23) 54 (18) 121 (41)
10-14 ára 65 (22) 31 (10) 96 (32)
Alls 186 (63) 111 (37) 297 (100)
Tafla n. Fjöldi, aldurs- og kynjaskipting bariui 14 ára og yngri með lieilaáverka (ICD 850-854) á gceshideild,
gjörgœshideild og heila- og taugaskurðlcekningadeild Borgarspítalans árin 1987-1991.
Aldur 0-4 ára 5-9 ára 10-14 ára
Kyn Piltar Stúlkur Piltar Stúlkur Piltar Stúlkur
Deildir Alls (%)
Gæsludeild 16 14 31 33 34 19 147 (49)
Gjörgæsludeild Heila- og tauga- 2 4 5 3 2 1 17 (6)
skurölækningadeild 36 8 31 18 29 11 133 (45)
Alls 54(18%) 26(9%) 67(23%) 54(18%) 65(22%) 31(10%) 297 (100)