Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.01.1994, Síða 16

Læknablaðið - 15.01.1994, Síða 16
6 LÆKNABLAÐIÐ fengu lyfið við brjóstsviða en 77 fengu lyfið gegn aukaverkunum annarra lyfja. Ekki fengust upplýsingar í öllum tilvikum um hvaða annað lyf væri að ræða, en að minnsta kosti 10 sjúklingar fengu BEYGL og tveir voru á prednisóloni. Þegar litið er á hverjir ávísa lyfjunum og af hvaða ástæðum kemur í ljós að þegar sjúklingur hefur sársjúkdóm eða magabólgur ávísa meltingarsérfræðingar hlutfallslega oftar lyfjunum en þegar um aðrar ástæður er að ræða (tafla IV), og þeir ávísa hlutfallslega sjaldnar lyfjum gegn aukaverkunum annarra lyfja. Rannsóknir: Af þeim 1131 (100%) sem svöruðu spurningunum höfðu 756 (67%) farið í magaspeglun eða röntgenrannsókn, þar af 541 (48%) á síðustu fimm árum. Skipting milli þessara rannsókna var þannig að 685 (91%) fóru í speglun og 71 (9%) í röntgen. Þegar litið er á rannsóknir síðustu 12 mánaða verður hlutfallið þannig að 284 (94%) voru speglaðir og 19 (6%) rannsakaðir með röntgen (tafla V). Lyfjum var ávísað til 375 sjúklinga (33%) eftir viðtal við lækni eingöngu. Þegar litið er til þess í hvaða rannsóknir sjúklingarnir höfðu farið eftir mismunandi sjúkdómum, kemur í ljós að af þeim 333 sem voru með sársjúkdóm höfðu 272 (82%) einhvern tímann verið speglaðir og 32 (10%) farið í röntgenrannsókn (tafla VI). Sjúklingar sem komu frá heilsugæslulæknum og svöruðu spurningum um lyfjanotkun sína voru 772. Af þeim höfðu 63% verið rannsakaðir, 429 speglaðir og 54 verið rannsakaðir með röntgen. Þar af höfðu 137 verið rannsakaðir á liðnu ári (18%). Meltingarsérfræðingar ávísuðu lyfjum til 159 sjúklinga en af þeim höfðu 92% verið rannsakaðir, 144 speglaðir og tveir farið í röntgenrannsókn. Rannsóknir yngri en ársgamlar voru 105, þannig að tveir af hverjum þremur voru nýrannsakaðir. Ef einungis er litið á sársjúkdóma komu 62 sjúklingar frá meltingarsérfræðingum, en 60 þeirra voru speglaðir, þar af 39 innan árs, einn var greindur með nýrri röntgenrannsókn og einn sjúklingur kom eingöngu í viðtal. Hjá heilsugæslulæknum greindust 223 sjúklingar með sársjúkdóma, þar af voru 173 speglaðir, 49 innan árs, 27 greindir með röntgenrannsókn og 20 með viðtali eingöngu. Tafla IV. Hverjir ávísa lyjjunum og af hvaða ástœöum. Ástæða Melt- Heilsu- ingar- gæslu- sérfræð- Sjúkra- læknar ingar hús Aðrir %i (%> (%> (%> Sársjúkdómur 67 19 10 4 Magabólgur 70 17 3 10 Brjóstsviöi 71 11 3 15 Meltingaróþægindi. 74 11 4 11 Aukaverkanir lyfja . 52 4 19 25 Tafla V. Sjúklingar i ' magaspeglun eða röntgenrannsókn. Fjöldi Fjöldi Aldur rannsóknar í speglun í röntgen < 1 árs .. 284 19 1-5 ára .. 215 23 > 5 ára 84 22 Óvíst .. 102 7 Alls 685 71 Tafla VI. Rannsóknir með tilliti til sjákdóma. Speglun Röntgen Viðtal Ástæða Fjöldi (%) <%) (%) Sársjúkdómur .... 333 82 10 8 Magabólgur .... 239 64 5 31 Brjóstsviöi .... 322 55 6 39 Meltingaróþægindi. .... 104 37 2 61 Aukaverkanir .... 77 29 4 67 Aðrar ástæður .... .... 43 47 7 46 Sjúklingur veit ekki ... 13 23 0 77 Tafla VII. Lyfjaval lœkna. Óme- Læknar Hi-blokkar prazól Annað Samtals Heilsugæslulæknar . 1113 167 26 1306 Meltingarsérfræðingar 149 129 29 307 Aðrir læknar 228 37 10 275 Frá sjúkrahúsum . 100 13 6 119 Upplýsingar vantar 13 0 1 14 Alls 1603 346 72 2021 Lyfjaflokkar: H,- blokkar voru mest notaðir. Alls fengu 1603 sjúklingar af 2021 slík lyf eða 79%. Ómeprazól fengu 346 sjúklingar eða 17%. Einungis 4% sjúklinga fengu lyf af öðrum lyfjaflokkum. Heilsugæslulæknar ávísuðu H,-blokkum í 1113 tilvikum, en ómeprazóli í 167 tilvikum. Meltingarsérfræðingar ávísuðu H,-blokkum í 149 tilvikum en ómeprazóli í í29 tilvikum (tafla VII). Hlutfallslega

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.