Læknablaðið - 15.01.1994, Blaðsíða 39
LÆKNABLAÐIÐ 1994; 80: 29-31
29
Þorvaldur Ingvarsson, Brynjólfur Mogensen
BEINBROT OG LIÐHLAUP EFTIR
KRAMPAKÖST
ÁGRIP
Greint er frá sex sjúklingum, sem hlutu 12
beinbrot og/eða brotaliðhlaup eftir krampaköst
og komu til meðferðar á Borgarspítala,
Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri og
Landakotsspítala á árunum 1987-1991.
Sum þessara brota eru mjög sjaldgæf. Töf
varð á greiningu þriggja sjúklinganna. Þrír
sjúklinganna höfðu beingisnun en enginn,
að talið er, beinmeyrnun (osteomalacia).
Flogaveikum, þó sérstaklega þeim sem taka
krampahemjandi lyf að staðaldri, er allt að
sex sinnum hættara við beinbrotum en fólki
almennt (1,2). Við drögum þá ályktun að
krampaköst geti valdið mjög fjölbreyttum
beinbrotum og brotaliðhlaupum. Læknar
er taka á móti sjúklingum eftir krampaköst
ættu að hafa í huga að þessum sjúklingum er
hættara við beinbrotum en öðrum og skyldu
taka stoðkerfiskvartanir þeirra alvarlega.
INNGANGUR
Broti og brotaliðhlaupi við krampaköst var
fyrst lýst 1907 af Lhendorf (3). Algengasta
staðsetning brota eftir krampaköst er
samfallsbrot í hrygg, brot í efri hluta
upphandleggs og í mjöðni en nær allri
staðsetningu hefur verið lýst (1-4). Beinbrot
við rafstuðsmeðferð geðlækna voru algeng
fyrir tilkomu vöðvaslakandi lyfja (1). Fólk
getur hlotið beinbrot á ólíklegustu stöðum við
krampaköst (1,2,4) og hlotið mörg beinbrot
í sama kastinu (1-4). Tíðni samfallsbrota
í hrygg hefur verið lýst hjá allt að 16%
sjúklinga eftir krampaköst (6). Tilgangurinn
með skrifum þessum er að vekja athygli á því,
að sjúklingar sem hafa fengið flog geta hlotið
beinbrot og liðhlaup við krampana.
EFNIVIÐUR
Skoðaðar voru sjúkraskýrslur sex sjúklinga
Frá slysa- og bæklunarlækningadeild Borgarspitalans.
Fyrirspurnir, bréfaskipti: Porvaldur Ingvarsson, slysa- og
bæklunarlækningadeild Borgarspítalans, 108 Reykjavík.
sem hlutu beinbrot og/eða brotaliðhlaup
eftir krampaköst og komu til meðferðar
á Borgarspítala, Fjórðungssjúkrahúsinu á
Akureyri og Landakotsspítala á árunum 1987-
1991.
1. Þrjátíu og sjö ára flogaveik kona sem hafði
tekið krampahemjandi lyf árum saman, fékk
krampakast við akstur bifreiðar. Hún fann
fyrirvara kastsins og náði að leggja bifreiðinni
áður en krampakastið reið yfir. Hún var spennt
í bílbelti. Við komu á sjúkrahús kvartaði hún
um verk í baki.
Röntgenmynd af lendhrygg var tekin daginn
eftir krampakastið og leiddi í ljós innkýlt
brot á öðrum lendhryggjarbol (mynd 1).
Sjúklingurinn var tekinn til aðgerðar, brotið
rétt og fest með Harringtonstögum með
góðum árangri. Stögin voru fjarlægð eftir 13
mánuði. Tveimur árum seinna fékk sjúklingur
aftur krampakast og hlaut samfallsbrot í neðri
hluta brjósthryggjar. Brotið var meðhöndlað
með bakbelti og sjúkraþjálfun.
2. Sjötíu og níu ára gamall maður, sem hafði
tekið steralyf vegna astma í mörg ár, fékk
krampakast er hann var að horfa á sjónvarp.
Hann sat í stól og féll ekki í gólfið. Við
Mynd I. Tölvusneiðmynd af lendliryggjarbol er sýnir brot
er gengur inn í mœnugöngin.