Læknablaðið - 15.01.1994, Blaðsíða 31
LÆKNABLAÐIÐ 1994; 80: 21-24
21
Sigurður Einarsson, Helgi K. Sigurðsson, Sólveig D. Magnúsdóttir, Helga Erlendsdóttir,
Haraldur Briem, Sigurður Guðmundsson
ALDURSBUNDIÐ ALGENGI MÓTEFNA GEGN
CHLAMYDIA PNEUMONIAE Á ÍSLANDI
ÁGRIP
Chlamydia pneumoniae er nýlega uppgötvaður
sýkill, og bendir flest til að hann sé algeng
orsök loftvegasýkinga. Markmið þessarar
athugunar var að kanna algengi hans á Islandi.
Rannsóknin var gerð á 1020 sermisýnum frá
einstaklingum á aldrinum 10-99 ára. Sýnunum
var deilt í hópa eftir aldri einstaklinga og
tók hver hópur til 10 ára tímabils. IgG og
IgM mótefni voru mæld með flúrskinsaðferð
(micro-immunofluorescence). Jákvæð sýni
voru þau talin þar sem IgG títer var 1/32 og
IgM >1/16.
Meðalalgengi (istaðalfrávik) IgG í
aldurshópunum var 53±16% og vikmörk
(range) 14-66%. Hvorki reyndist kynja-
né árstíðamunur á algengi. Algengi IgG
mótefna var lægst hjá börnum undir 10 ára
aldri (p<0,001) en fór síðan stigvaxandi til
sjötugs (P<0,005). í fyrstu atrennu greindust
IgM mótefni hjá 34 einstaklingum og voru
flestir þeirra í elstu aldurshópunum. Eftir
að þessi sýni höfðu verið meðhöndluð með
IgG mótefni úr geitum til að fella út sértæk
truflandi IgG mótefni var ekkert sýni IgM
jákvætt.
Samkvæmt þessum niðurstöðum er algengi
C. pneumoniae sýkinga hátt á Islandi og
svipað því er greinst hefur í nálægum löndum
austan hafs og vestan. Nauðsynlegt er að gæta
varúðar við túlkun jákvæðra prófa úr IgM
mótefnamælingum hjá eldra fólki.
INNGANGUR
Chlamydia pneumoniae er tiltölulega
nýgreindur sýkill sem er algeng orsök sýkinga
í efri og neðri öndunarfærum og getur valdið
Frá lyfjadeild og sýkladeild Borgarspítalans, Reykjavík.
Fyrirspurnir og bréfaskipti: Sigurður Guðmundsson
lyflækningadeild Landspítala, 101 Reykjavík.
Rannsókn þessi var að hluta unnin sem rannsóknarverkefni
4. árs læknanema (S.E., H.K.S., S.D.M.) og sem hluti
B.S. verkefnis í læknadeild H.í. (S.E.).
svæsnum lungnabólgum (1). Flestar sýkingar
eru þó einkennalitlar eða einkennalausar
(2-4). Bakterían var fyrst einangruð 1965
í Taiwan, en var ekki þekkt sem orsök
öndunarfærasýkinga fyrr en 1983 (1,5).
Rannsóknir í nágrannalöndunum sýna að C.
pneumoniae er algeng orsök lungnabólgu
utan sjúkrahúsa og innan (6,7). Nýlegar
rannsóknir sem gerðar voru á Norðurlöndum
og í Seattle hafa leitt í ljós að algengi mótefna
gegn C. pneumoniae er á bilinu 50-60% hjá
einstaklingum eldri en 10 ára (4,8), og að
sýkingar í börnum yngri en fimm ára eru
fátíðar (1,9,10). Ekki er vitað um tíðni eða
aldursdreifingu sjúkdómsins hér á landi, en
hins vegar hefur C. psittaci greinst hérlendis
öðru hvoru um árabil. Sú greining hefur verið
gerð með komplementbindiprófi (complement
fixation) sem ekki greinir á milli C. psittaci og
C. pneumoniae (1). Því er mögulegt að mörg
(og ef til vill flest) tilvik psittacosis sem talin
hafa verið greind hérlendis hafi í reynd verið
C. pneumoniae sýkingar. Unnt er að greina
C. pneumoniae sértækt með flúrskinsaðferð
(micro-immunofluorescence) og því ákváðum
við að kanna dreifingu mótefna gegn C.
pneumoniae hjá Islendingum bæði með tilliti
til kyns og aldurs.
EFNIVIÐUR OG AÐFERÐIR
Sermisýni voru fengin úr sýnabanka sem
safnað var frá einstaklingum sem komið höfðu
í blóðrannsókn á Borgarspítalann á tímabilinu
frá mars 1989 til maí 1990. Sýnunum var
upphaflega safnað til algengirannsóknar á
HIV mótefnum (11). Þeint var safnað (oftast
sem afgangssermi) frá öllum sem blóð var
tekið úr af hvaða ástæðu sem var á nefndu
tímabili (raðsöfnun). Persónuupplýsingum
um þessi sýni hafði verið eytt, svo einungis
lágu fyrir upplýsingar um aldur og kyn
þeirra sem sýnin höfðu gefið. Upplýsingum
um ástæður blóðtöku, sjúkdómseinkenni og
fleira í þeim dúr var einnig eytt. Sýnunum,