Læknablaðið - 15.01.1994, Side 33
LÆKNABLAÐIÐ
23
14-66%). Ekki reyndist kynjamunur á
algengi, 54% karla og 52% kvenna með
IgG mótefni. Algengi IgG mótefna var
lægst fyrir 10 ára aldur (p<0,01) en fór
síðan stigvaxandi til sjötugs (p<0,01).
Meðalalgengi IgG í aldurshópunum frá 70-
99 ára var 60%, vikmörk 55-66%. Hjá þessum
eldri einstaklingum var algengið marktækt
lægst hjá 80-89 ára hópnum (p<0,05). í
34 sýnuin greindust IgM mótefni gegn C.
pneumoniae. Tólf þeirra voru jákvæð fyrir
IgM gigtarþáttum en eftir meðhöndlun með
IgG mótefni úr geitasermi greindust IgM
mótefni einungis úr tveimur sýnum og í lágum
títer (1/16). IgM gigtarþættir fundust einnig í
báðum sýnunum.
UMRÆÐA
Algengi C. pneumoniae mótefna í þessari
rannsókn reyndist hátt eða 53%. Tíðnin var
lág hjá börnum (14%) en fór síðan marktækt
stighækkandi til sjötugs (66%). Ef litið var
sérstaklega til eldri aldurshópanna, 70-99 ára,
var algengi IgG mótefna marktækt lægst hjá
fólki á aldrinum 80-89 ára, þótt skýring þess
sé ekki Ijós.
Svipaðar niðurstöður frá nálægum löndum
hafa nýlega verið birtar. I Hollandi var
algengi 80% (10), og rannsóknir í Danmörku
og Seattle í Bandaríkjunum sýna svipað
algengi og hérlendis (1,6). Nýleg rannsókn
frá Taiwan leiddi hins vegar í ljós mun hærra
algengi IgG mótefna þar í landi, eða 67% í
táningum og 96% í eldri aldurshópum (19).
Þar var þó miðað við 1/16 sem marktæka IgG
mótefnasvörun, en ekki 1/32 eins og í þeirri
athugun sem hér er kynnt og í flestum öðrum
rannsóknum af þessu tagi (13).
Einungis reyndist eitt barn yngra en fimm ára
með IgG mótefni gegn C. pneumoniae og ber
því vel saman við aðrar rannsóknir (1,9,10).
Þar sem viðkomandi var einungis þriggja
mánaða er líklegt að mótefnin hafi komið frá
móður.
Mesta aukning á algengi IgG var milli
aldurshópanna 0-9 ára, 10-19 ára og 20-29
ára og virðast því flestir sýkjast milli tektar
og þrítugs. Sambærilegar niðurstöður hafa
fengist úr öðrum rannsóknum (5). Enginn
munur var á algengi mótefna milli kynja, en
rannsóknir í nálægum löndum hafa sýnt að
algengi meðal karla sé um 10 til 25% hærra
en kvenna (1,4,5).
Samkvæmt þessum niðurstöðum er C.
pneumoniae algeng orsök sýkinga hér á landi.
Um helmingur þjóðarinnar hefur mótefni
gegn bakteríunni. Að öllum líkindum eru
nýsýkingar algengastar á aldrinum 10-30
ára en þar sem engin IgM jákvæð sýni
greindust er erfitt að draga ályktanir um
nýsýkingar. í reynd er athyglivert að marktæk
hækkun á IgM skuli ekki hafa greinst í neinu
sýnanna miðað við hátt algengi sýkingarinnar
hérlendis. Skýring þessa er ekki ljós en hafa
verður í huga að sýnum var ekki safnað frá
fólki með öndunarfæraeinkenni sérstaklega,
sjúkdómurinn getur gengið í faröldrum og
nýgengi verið afar lágt þess á milli (1), og að
lokum er þekkt að endursýkingar eru algengar
einkum hjá öldruðum, en verða oft án IgM
mótefnasvörunar (1).
Lengi hefur verið þekkt að IgM gigtarþættir
geti truílað mótefnamælingar (14,20) og einnig
að algengi IgM gigtarþátta fer vaxandi með
aldri (21,22). Af þeim 34 einstaklingum sem
voru í fyrstu IgM jákvæðir í okkar rannsókn
voru 32 yfir fimmtugu og 18 yfir áttrætt.
Að öllum líkindum er þessi truilun vegna
gigtarþátta. Nýlegar rannsóknir frá Hollandi
sýna að IgM gigtarþættir geta haft truflandi
áhrif á mælingar á IgM mótefnum gegn C.
pneumoniae með flúrskinsaðferð (15). Því
ber að gæta sérstakrar varúðar við túlkun
jákvæðra niðurstaðna úr IgM mótefnamælingu
gegn C. pneumoniae hjá eldra fólki, eða fella
út sértæk IgG að öðrum kosti.
ÞAKKIR
Höfunar þakka Þorbirni Jónsyni lækni og
Helga Valdimarssyni prófessor gagnlegar
ábendingar og fyrir mælingu á gigtarþáttum.
Háskóla Islands er þökkuð aðstoð við
ferðakostnað vegna kynningar rannsóknarinnar
á 18. alþjóðaþinginu um meðferð sýkinga og
illkynja sjúkdóma (18th International Congress
of Chemotherapy) í Stokkhólmi 1993.
HEIMILDIR
1. Grayston JT. Infections caused by Chlamydia
pneumoniae strain TWAR. Clin Infect Dis 1992; 15:
757-63.
2. Kleemola M, Saikku P, Visakorpi R, Wang SP,
Grayston JT. Epidemics of pneumonia caused by
TWAR, a new Chlamydia organism, in military
trainees in Finland. J Infect Dis 1988; 157: 230-6.
3. Saikku P, Ruutu P, Leinonen M, Panelius J, Tupasi
TE, Grayston JT. Acute lower respiratory tract
infection in Filipino children associated with