Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.01.1994, Qupperneq 36

Læknablaðið - 15.01.1994, Qupperneq 36
26 LÆKNABLAÐIÐ efni í blóði, svo sem human chorionic gonadotrophin (hCG) og estríól í þvagi (uE3) (2,8). Þessi efni, ein sér eða fleiri saman, hafa verið notuð til þess að skima fyrir þrístæðum, jafnframt því að tekið er tillit til aldurs móður. Niðurstöður 23 aftursýnna rannsókna hafa sýnt að miðgildi AFP, ef um er að ræða fóstur með þrístæðu 21, eru um 25% lægri en í eðlilegri þungun (8). Með mælingu á AFP einu sér finnast um 25% fieiri þunganir með þrístæðu 21 en ef einungis aldur er notaður til að velja áhættuhóp (2). Forspárgildi skimunarinnar eykst ef hCG er bætt við. Veruleg hækkun verður á hCG í sermi þungaðra kvenna þar sem fóstur er með þrístæðu 21 (2,8). Fylgni á milli AFP og hCG er lítil og því má nota þessar mælingar sem óháðar stærðir þegar líkur á þrístæðu 21 eru reiknaðar. Með mælingu á hCG og AFP má greina 50-60% þungana með þrístæðu 21. Beta- eining hCG sameindarinnar hefur enn betra forspárgildi eða allt að 70% (8). Notkun estríóls í þvagi takmarkast af verulegri fylgni milli AFP og uE3 gilda, þannig að næmi og sértæki AFP prófsins batnar lítið þótt uE3 sé bætt við. Þegar AFP og hCG eru notuð ásamt aldursviðmiðun hefur verið mælt með að nota áhættumörkin 1/250 (jafngilt áhættu í >37 ára aldurhópnum). Þá má reikna með að framkvæma þurfi um 70 legvatnsástungur til að finna eitt fóstur með þrístæðu ef skimun er gerð hjá öllum konum, en 100 ef skimun er aðeins notuð undir 35 ára aldri. Skimun með samsettu prófi (AFP±hCG±uE3) hefur verið gerð í upphafi annars þriðjungs meðgöngu (15-18 vikur), vegna þess að næmi AFP til greiningar á klofnum hrygg og heilaleysi, sem einnig er leitað að, er mest á þessum tíma. Staðfesting litningagalla getur þá dregist fram yfir 20. viku meðgöngu. A sónardeild kvennadeildar Landspítalans eru legvatnsástungur nú gerðar í 14.-16. viku. Því væri ákjósanlegt að geta boðið konum skimun f lok fyrsta þriðjungs meðgöngunnar. Forspárgildi AFP og /3-hCG í lok fyrsta þriðjungs meðgöngu er svipað og við 15-18 vikur (8,9). Flvað mætti áætla að leit hjá öllum konum á íslandi kostaði og hvað mundi vinnast? Landlæknisembættið hefur nýverið látið reikna þetta og niðurstaðan bendir til að talsverður ávinningur gæti orðið af slíkri skimun. Ekki er raunhæft að framkvæma skimprófið nema búið sé að ómskoða konuna áður til að meta meðgöngulengd með öryggi (2,10). Sé 4000 aukalegum ómskoðunum bætt við á hverju ári þarf mannafla og tæki sem nú eru ekki að öllu leyti fyrir hendi. Hver ómskoðun og hvert blóðpróf kosta um 2000 kr. og við það þarf að bæta kostnaði vegna um það bil 45% aukningar legvatnsprófa (9). Skipulag og mannafla til að höndla niðurstöður á skilvirkan hátt þarf einnig (5). Ekki má kasta höndum til undirbúnings og framkvæmdar. Nýlegar ýtarlegar leiðbeiningar frá Bretlandi eru þar fyrirmynd (2). Auk hóflegs upphafskostnaðar yrði kostnaður líklega nálægt 18-20 milljónum á ári. Hinsvegar má búast við að fækka megi verulega fæðingu fatlaðra barna. Hvert slíkt barn kostar þjóðfélagið tvöfalt meira en skimunin inundi kosta og er þá ótalinn hinn mannlegi þáttur. Skimunin mundi því leiða til ávinnings þegar til lengri tíma er litið. Nýlega var lagt til að kembileit að litningagöllum verði boðin á Islandi (11). Við tökum undir þá tillögu en leggjum til að byrjað verði á forathugun sem fælist í því að á tveggja ára tímabili yrði öllum þunguðum konum (eða konum undir 35 ára aldri) boðin kembileit að þrístæðu 21 (AFP, /3-hCG og aldur) við 12-14 vikna meðgöngu. Þeim sem falla í áhættuhóp (> 1/250) byðist legvatnsástunga á 14.-16. viku til nánari greiningar. Vandað verði til undirbúnings þannig að allar forsendur framkvæmdar og eftirlits séu fyrir hendi. A sama tíma verði viðhorf hinna verðandi mæðra til prófsins kannað og árangur skimprófsins og kostnaður við framkvæmdina metinn, þannig að góður grundvöllur fáist fyrir framtíðarstefnumörkun. Reynir Tómas Geirsson, kvennadeild Landspítalans Háskóla Islands, Reykjavík, Reynir Arngrímsson, Duncan Guthrie Institute of Medical Genetics, University of Glasgow, Skotlandi. HEIMILDIR 1. NOMESKO. Births and Infant Mortality in the Nordic Countries. NOMESKO, Kobenhavn, 1993; 39: 138. 2. Royal College of Obstetricians and Gynaecologists. Report of the RCOG Working Party on biochemical

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.