Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.01.1994, Síða 40

Læknablaðið - 15.01.1994, Síða 40
30 LÆKNABLAÐIÐ Mynd 2. Röngenmynd er sýnir innkýlt brotaliðhlaup i vinstri augnkarli. röntgenrannsókn kom í ljós samfallsbrot á sjöunda brjósthryggjarbol. Innkýlt brotaliðhlaup í vinstri augnkarli (central acetabulum fracture) og lærleggshálsbrot í hægri mjöðm. Maðurinn hafði beingisnun. Hann var tekinn til aðgerðar, settur hálfliður í hægri mjöðm og strekkur settur á vinstri sköflung til meðferðar á brotaliðhlaupinu. Ekki tókst að finna orsök krampanna. Hann lést þreinur mánuðum seinna úr lungnabólgu. 3. Fimmtíu og tveggja ára flogaveik kona sem ekki tók krampahemjandi lyf sat við borð er hún fékk krampakast og rann á gólfið. Við röntgenmyndatöku kom í ljós að hún hafði hlotið samfallsbrot á fimmta, sjöunda og níunda brjósthryggjarbol. Þar sem áverkinn þótti óvenjulegur ntiðað við sjúkrasögu var gerð ísótópaskimun (TC 99) sem staðfesti að unt fersk brot var að ræða. Konan var talin hafa væga beingisnun. 4. Sextíu og tveggja ára fiogaveikur maður, sem ekki tók krampahemjandi lyf að staðaldri, fékk krampakast er hann sat í kyrrstæðum bíl. Við komu á sjúkrahús var hann sljór en kvartaði um verk í báðum öxlum. A yfirlitsmyndum af lungunt kom í ljós að hann hafði hlotið aftara brotaliðhlaup í báðum öxlum. Hann var tekinn til aðgerðar og settur hálfiiður í báðar axlir. Tveimur árum eftir aðgerð leið sjúklingi vel og hafði góðan hreyfiferil í öxlum. 5. Sextíu og sjö ára gamall flogaveikur maður, áfengissjúklingur er tók krampahemjandi lyf sín sjaldan, sat í bifreið er hann fékk krampakast. Við komu á sjúkrahús var í fyrstu álitið að hann hefði fengið heilablæðingu. Hann kvartaði um verk frá vinstri mjöðm en ekki þótti ástæða til frekari rannsókna. Þegar sjúklingur fékk skyndilega lost var farið að leita orsaka og kom í ljós að hann hafði innkýlt brotaliðhlaup í vinstri augnkarli (mynd 2). Hann var meðhöndlaður í strekk nteð góðum árangri. 6. Fertug kona fékk krampakast er hún stóð í biðröð. Hjástaddur maður greip hana og lagði í gólfið. Röntgenmynd leiddi í ljós sainfallsbrot á sjöunda brjósthryggjarbol. í ljós kom að konan hafði væga beingisnun. UMRÆÐA Beinbrot eftir krampaköst hafa til þessa ekki verið talin algeng á Islandi. Greining þriggja sjúklinga tafðist, að hluta til vegna sljóleika þeirra eftir krantpana og að hluta til vegna þess að læknum hugkvæmdist ekki að þeir gætu brotnað við krampana. Þrír sjúklinganna höfðu beingisnun en enginn, að talið er, beinmeyrnun. Flogaveikum, þó sérstaklega þeim sem taka krampahemjandi lyf að staðaldri, er allt að sex sinnum hættara við beinbrotum en fólki almennt (1,2). Orsakir þessa eru raktar til þess að krampahemjandi lyf minnka aðgengi D-vítamíns í líkamanum og marktækt minnka steinefnainnihald beina (kalk og fosfór) (1,4,6,8) og geta því valdið beinmeyru (osteomalacia). Einnig eru flogaveikir minna á ferli og því er styrkleiki beina þeirra minni (5,8). Hjá 226 flogaveikum, sem tóku krampahemjandi lyfið phenytoinn fundu Christiansen og samstarfsmenn (6) að steinefnainnihald beina þeirra var 13% minna en samanburðarhóps. Svipuðu hefur verið lýst við carpazepam krampahemjandi meðferð (7). Sörnu sjúklingar tóku 2000 alþjóðlegar einingar D-vítamíns daglega í þrjá mánuði og juku steinefnainnihald beina sinna um 4% á þeim tíma. Hjá samanburðarhópi er tók lyfleysu jókst steinefnainnihald beina ekkert (6). D-vítamín meðferð flogaveikra getur því bætt steinefnabúskap þeirra (6,8) en hagkvæmni meðferðarinnar er óviss. Leitt hefur verið að því rökum að D- vítamínskortur sé einn af orsakaþáttum lærleggshálsbrota á Islandi (9). Fjórir sjúklinganna höfðu samfallsbrot í hrygg, sem eru algeng brot hjá sextugu fólki og eldra með beingisnun, en þrír af fjórum sjúklinganna

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.