Læknablaðið - 15.01.1994, Page 43
LÆKNABLAÐIÐ 1994; 80: 33-39
33
Jóhann Ág. Sigurðsson
NÝJUNGAR í HEIMILISLÆKNINGUM
EINN HLEKKUR í KEÐJUNNI
Haustið 1992 flutti Guðmundur Þorgeirsson
erindi um grunnrannsóknir í læknisfræði í
tilefni af komandi afmælisári Læknafélags
íslands (1). Þar færði hann rök fyrir því
að grunnrannsóknir og framfarir nýttust að
jafnaði á mörgum og oft gjörólíkum sviðum.
Nýjar uppgötvanir í læknisfræði eru á sama
hátt sjaldnast bundnar við eina sérgrein
læknisfræðinnar, heldur nýtast þær innan
hverrar sérgreinar fyrir sig þó í mismiklum
mæli sé.
Heimilislækningar byggjast á þekkingu frá
mörgum sérgreinum auk eigin kjarna. Það
er því ljóst að umfjöllun um nýjungar í
heimilislækningum snýst oft um efni sem eru
skyld öðrum greinum læknisfræðinnar. Þessar
nýjungar hafa jafnvel verið reyndar þar og
síðan teknar upp í heimilislækningum.
Sem dæmi má nefna að fLestar nýjungar
og framfarir í lyfjameðferð við of háum
blóðþrýstingi má rekja til grunnrannsókna í
efna- og lífeðlisfræði. Eftir að rannsóknarferli
í tilraunaglösum og dýratilraunum lýkur eru
ný lyf gjarnan prófuð fyrst á fólki inni á
sjúkrahúsum undir eftirliti lyflækna. Þegar
nægileg reynsla er fengin af nýjum lyfjum
og þróun þeirra komin á lokastig eru þau
einkum notuð af sjúklingum utan sjúkrahúsa
í umsjá heimilislækna. Meðferð sem áður
var nýjung innan lyflækninga er nú orðin
nýjung innan heimilislækninga. Hin nýja
þekking á beitingu streptókínasa við að leysa
upp blóðkekki í bráðri kransæðastíflu er enn
dæmigerð nýjung í lyflæknisfræði. Hins vegar
eru margir heimilislæknar úti á landsbyggðinni
farnir að beita henni við bráðatilvik af þessu
tagi.
Byggt á erindi fluttu á visindaþingi Læknafélags íslands
15. september 1993 sem haldið var í tengslum við 75 ára
afmæli LÍ.
ERU NÝJUNGAR FRAMFARIR?
Með hugtakinu nýjung er átt við eitthvað
nýtt, nýstárlegt eða tilbreytingu. í hugum
flestra er nýjung tengd einhverju jákvæðu,
einhverju nýju sem bundnar eru vonir við á
þeim tíma sem um hana er fjallað. Nýjung er
því eitthvað sem tengt er nútíðinni. Sé nýjung
skoðuð í tímans rás verður hún að þróun. Sé
hugtakið skoðað í sögulegu samhengi er gott
að hafa hugfast að iðulega hefur tíminn leitt í
Ijós að nýjungar í læknisfræðinni hafa ekki
alltaf leitt til framfara. Má í því sambandi
minna á að fyrri tíma nýjungar voru eitt sinn
fólgnar í því að taka mönnum blóð við hvers
kyns veikindum. Fyrir um tveimur áratugum
voru miklar vonir bundnar við lyfið klófíbrat
(Atromid) sem átti að lækna sjúklinga með
of háa blóðfitu, en síðar kom í ljós að það
gerði meiri skaða en gagn. Lyfið talídómíd
var algjör nýjung við svefnleysi á sínum tíma,
en fljótlega kom í ljós að það olli alvarlegum
fósturgöllum.
AÐFERÐIR
Miklar og hraðar breytingar hafa orðið innan
læknisfræðinnar á síðustu áratugum. Til þess
að fá sem gleggsta mynd af skoðunum lækna
á nýjungum í heimilislækningum hérlendis og
erlendis, skrifaði ég nokkrum valinkunnum
starfsbræðrum á Norðurlöndum og Bretlandi
(sjá kafla um þakkir) og spurði þá hvað
þeim fyndist merkast á þessu sviði, án þess
að skýra nánar hvað ég meinti með orðinu
nýjung. Svörin voru margvísleg og lítil skörun
á efnisatriðum. Allir voru sammála um að
ekki væri hægt að aðgreina tækninýjungar í
faginu frá nýjungum í skipulagi, uppbyggingu,
kennslu og rannsóknum. Það sem hér
verður fjallað um byggist að nokkru leyti á
skoðunum þeirra.
SKIPULAGSBREYTINGAR
Merkasta framfaraskrefið sem stigið hefur
verið í heimilislækningum hér á landi er án