Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.01.1994, Page 46

Læknablaðið - 15.01.1994, Page 46
36 LÆKNABLAÐIÐ sem til þurfti (7). Vera má að hann hafi haft hin fleygu orð Bertrand Russel »You can’t whisper in this world, you have to shout« í huga, en þessi aðferð er ekki beinlínis eftirsóknarverð fyrir heimilislækna ef þeir eiga síðan yfir höfði sér málshöfðun með milljóna króna miskabótum í hvert sinn sem þeir láta í sér heyra í ijölmiðlum. KENNSLA Enda þótt nú séu liðin um 25 ár síðan Læknisþjónustunefnd Reykjavíkur lagði til að kennslan yrði efld í heimilislæknisfræðum innan læknadeildar og tæp 20 ár síðan læknadeild staðfesti slíkt fyrirkomulag, er það fyrst núna sem tillögumar eru að komast til framkvæmda. Fyrsti kennarinn í heimilislækningum var ráðinn til deildarinnar árið 1976, sá næsti 1977 og síðan prófessorinn árið 1991. Síðastnefnda embættið telst til mestu og merkustu nýjunga innan fagsins í dag, enda gert ráð fyrir að það verði lyftistöng fyrir kennslu, þróun og rannsóknir í heimilislækningum. Helstu nýjungar á okkar sviði í kennslunni eru þær að kennarar í heimilislækningum sinna, ásamt kennurum í öðrum greinum, kennslu í atferlis- og samskiptafræðum eða humaniora eins og fræðin eru nefnd á latínu. Þessi fræði leggja áherslu á það að líta beri á sjúklinginn samtímis í líffræðilegu, félagslegu, mannlegu og siðferðilegu tilliti. í háskólunum í Tromsö í Noregi, Linköping í Svíþjóð og McMaster í Kanada hafa verið unnin brautryðjendastörf á þessu sviði. Stúdentar byrja nú þegar á öðru ári að tala við sjúklinga og læra um það hvernig það er að vera ineð sjúkdóm í stað þess að læra eingöngu um sjúkdóminn sjálfan. Einnig er stúdentum nú kennt á fyrsta ári að lesa tímaritsgreinar á gagnrýninn hátt. Þeir fá þannig betri skilning á því hvernig sú þekking verður til sem þeir lesa um í textabókum. Verkleg kennsla í heimilislækningum hefur einnig aukist, en er þó mun minni en sambærileg þjálfun á Norðurlöndunum. HEILSUVERND 1 byrjun 20. aldarinnar var eitt af megin viðfangsefnum héraðslækna að sinna heilsuverndarmálum svo sem að bæta skólp- og sorphreinsun og koma á vatnsveitu. Númerakerfið fyrrnefnda miðaðist fyrst og Mynd. Heilsuvernd, sem annars vegar er beint að liópi með mikla áhœttu á að fá sjúkdóma (high-risk strategy) og hins vegar þar sem íhlutun er heitt á allan hópinn (mass strategv). fremst við það að heimilislæknar sinntu einstaklingum í samlaginu. Heilsuvernd var því stunduð á einstaklings- og fjölskyldustigi. Með endurreisn heilsugæslunnar upp úr 1974 voru teknar upp nýjar aðferðir í heilsuverndinni þar sem starfsfólki heilsugæslustöðva var einnig falið að vinna að heilsuvernd í tengslum við verkefni bæjar- og sveitarfélaga. Hér var í raun verið að endurvekja viðfangsefni gömlu héraðslæknanna. Athyglinni var nú aftur beint að hópum í stað einstaklinga (8) eins og sjá má á mynd og reynt að minnka áhættuþætti fyrir marga í einu. Nýjustu rannsóknir sýna að það gefur falskar væntingar, lítinn árangur og sóun á fjármunum að bjóða aðeins upp á reglulegar heilsufarsskoðanir ef þeim er ekki fylgt eftir með íhlutandi aðgerðum og reglulegu eftirliti og ábendingum (9). Sem dæmi um árangursríka heilsuvernd á hóp manna má nefna íhlutun við að lækka blóðfitur nteðal starfsmanna í Járnblendiverksmiðjunni á Akranesi (10) með því að breyta matseldinni hjá kokknum í mötuneytinu. I annarri starfsmannaheilsuvemd af þessu tagi hefur starfsfólk heilsugæslunnar því lagt aukna áhersla á fræðslu og eigin ábyrgð starfsfólksins á heilsu sinni í stað ómarkvissra líkamsskoðana. BÓLUSETNINGAR Kerfisbundnar ónæmisaðgerðir ná nú til 80% allra barna í heiminum og talið er

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.